Morgunblaðið - 18.08.2008, Blaðsíða 1
UM 90 metra hár foss myndaðist í gærmorgun í
Hafrahvammagljúfri, en um er að ræða yfirfall
úr Hálslóni. Almennt hefur fossinn verið kallaður
Kárahnjúkafoss og er nánast árviss viðburður
sem hægt verður að njóta fram í byrjun október.
Um sumartímann bráðnar mikið úr Brúarjökli
þannig að meira rennur inn í lónið heldur en not-
að er í Kárahnjúkavirkjun. Þá hækkar lónið og
fer vatn að renna yfir þar til gerðan vegg og nið-
ur í nokkur hundruð metra yfirfallsrennu. Þaðan
er vatnið leitt í Hafrahvammagljúfur og myndast
þá fossinn.
Ljósmynd/Helgi Garðarsson
Nýr foss Fossinn fellur um 90 metra í Hafrahvammagljúfur og hefur almennt verið kallaður Kára-
hnjúkafoss. Hann verður að öllum líkindum árviss viðburður sem hægt er að njóta fram í október.
NÍUTÍU METRA
FOSS MYNDAST
Árviss viðburður Um að ræða yfirfall úr Hálslóni
M Á N U D A G U R 1 8. Á G Ú S T 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
224. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
Samstarfsaðilar:
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti
Hittumst
á Hellu!
LANDBÚNAÐARSÝNINGIN
HELLU 22.–24. ÁGÚST 2008
Fjör fyrir alla fjölskylduna
– frá morgni til kvölds
DAGLEGTLÍF
HEFUR SÉRHÆFT
SIG Í ÍSLENDINGUM
TORFÆRA
Heimsbikarkeppn-
inni lauk um helgina
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
ELVAR Guðjónsson, 48 ára fjölskyldufaðir
úr Hafnarfirði ætlar að láta á það reyna
hvort Tryggingastofnun greiðir fyrir aðgerð
á mjöðm sem hann gekkst undir í desember
síðastliðnum. Að-
gerðin var gerð á
einkareknu sjúkra-
húsi í Finnlandi og
kostaði með öllu 1,6
milljónir króna úr
vasa Elvars. Hann
kveðst ekki hafa lát-
ið bjóða sér að lækn-
irinn hans hér heima
segði honum að
harka af sér og bíða
um lengri eða
skemmri tíma á
meðan verkurinn í
mjöðm hans versnaði sífellt. Elvar segist
hvorki hafa fengið góða ráðgjöf um hvaða að-
gerðir væru í boði né verið sagt af rétti sín-
um. Á endanum fór hann í aðgerð þar sem
mjaðmakúlan var löguð en ekki tekin. Hann
segir finnska lækninn telja ráðgjöf íslenskra
lækna til Elvars gamaldags og úrelta.
Ekki reynt á EES-reglur hér áður
Samkvæmt EES-reglum, nánar til tekið
EBE reglugerð nr. 1408/71 eiga sjúklingar í
EES-ríkjum rétt á að fá heilbrigðisþjónustu
sem þeir sækja í öðrum löndum greidda úr
almannatryggingum í heimalandi sínu, ef að-
gerðin er nauðsynleg, að sögn Margrétar
Gunnlaugsdóttur lögfræðings. Hún segir
mál af þessu tagi hafa gengið í öðrum Evr-
ópulöndum. Niðurstaðan ráðist yfirleitt af
því hvort viðkomandi aðgerð teljist nauðsyn-
leg. Einstaklingar hafi unnið slík mál gegn
stjórnvöldum þar. Hún þekkir ekki dæmi
þess að reynt hafi á regluna hér.
Elvar segir það hafa verið mikla skerðingu
á lífsgæðum að vera haltur og sárþjáður á
degi hverjum, ekki síst fyrir mann á hans
aldri, sem alla tíð hefur stundað íþróttir.
Átti að bíða | 2
Vill fá
kostnað
bættan
TR borgi aðgerð sem
gerð var í Finnlandi
Í HNOTSKURN
»Bið eftirsams konar
aðgerð hér á
landi var 8-10
mánuðir.
»Verkirnirhindruðu
Elvar í að sinna
athöfnum og
áhugamálum.
Íslenskt heil-
hveiti kemur á
markaðinn í
haust. Ólafur
Eggertsson,
bóndi á Þor-
valdseyri undir
Eyjafjöllum,
hefur ræktað
það um árabil
en hingað til
aðeins notað
það sem
skepnufóður. Ólafur hefur kynnt
sér hveitirækt í Noregi og Svíþjóð
og gert eigin tilraunir til að athuga
hvaða afbrigði henta best. Hann
sáði hveiti í fjóra hektara lands í
fyrra en í ár ætlar hann að sá í sex
hektara. „Tilraunir í byggrækt
hafa skilað okkur hentugri teg-
undum og þetta á að vera hægt í
hveitinu líka,“ segir Ólafur. » 4
Hægt að baka úr íslensku
heilhveiti með haustinu
Kornrækt færist nú
öll í aukana.
Svo virðist sem spár um minni
einkaneyslu séu að rætast. Þannig
var debetkortavelta um 20% minni
að raunvirði í júlí í ár en á sama
tíma í fyrra, en sú velta gefur vís-
bendingu um samdrátt í einka-
neyslu.
Debetkortanotkun hefur farið
stöðugt minnkandi frá síðustu ára-
mótum, en nú er hún að jafnaði um
35 milljarðar á mánuði á móti 40
milljörðum í fyrra.
Kreditkortanotkun hefur aftur á
móti haldist svipuð og í fyrra, eða
um 27 milljarðar á mánuði. » 14
Straujum debetkortin
mun sjaldnar
Eldfjallið
Katla, hamfara-
gos, eyðing lífs í
eldsumbrotum
og orsakir eld-
gosa eru á meðal
viðfangsefna eld-
fjallafræðinga á
einni stærstu
ráðstefnu raun-
vísindamanna
sem haldin hefur
verið hér á landi.
Heimsþing Alþjóðasambands eld-
fjallafræðinga hefst í Reykjavík í
dag. Um 900 fulltrúar frá um 50
löndum sækja þingið. Þar verða
veitt æðstu verðlaun sambandsins
sem kennd eru við Sigurð heitinn
Þórarinsson jarðfræðing. » 10
Eldfjallafræðingar
fjölmenna til Íslands
Sigurður
Þórarinsson
landi. Flestar hafa þær leyfi til að
selja matvæli. Gangi þetta eftir er
markmiðið að breyta búðunum í Ice-
land-verslanir sem Baugur á. Mal-
colm Walker, forstjóri Iceland, fór
fyrir tilboðinu.
Smásöluhlutinn hefur gengið illa
hjá Woolworths. Heimildarmenn
Morgunblaðsins telja að þrýstingur
komi á stjórnendur félagsins að
íhuga tilboðið eða gera gagntilboð.
Venjulega þurfi nokkrar tilraunir
áður en ljóst verði hvort viðskiptin
gangi eftir. bjorgvin@mbl.is
Woolworhts hafnaði tilboði Iceland í smásöluhlutann
Baugur gefst ekki upp
BAUGUR ætlar áfram að reyna að
kaupa smásöluhluta bresku Wool-
worths-verslanakeðjunnar sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Fyrsta tilboði Baugs var hafnað í
gær af stjórnendum Woolworths.
Ekki var uppgefið hversu hátt til-
boðið var en sagt að það hlypi á fáum
tugum milljóna punda í Financial
Times. Markaðsverðmæti Wool-
worhts við lokun markaða á föstudag
var um 100 milljónir punda.
Baugur á um 11% hlut í félaginu
sem rekur yfir 800 verslanir í Bret-
Í HNOTSKURN
»Baugur gerði tilboð í smá-söluverslanir Woolworth
en ekki í heildsöluhluta sem
dreifir tónlist, DVD og bókum.
»Tilboðinu var hafnað enreikna má með þrýstingi á
stjórnendur að íhuga tilboðið
eða gera gagntilboð.