Morgunblaðið - 21.08.2008, Blaðsíða 34
Með meinleysislegum
rollum, titrandi smá-
blómum og stöku hreindýri
inni á milli … 34
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
TILKYNNING um þjófnað á
skemmtistaðnum Organ barst um
miðjan þriðjudag samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglu höfuðborg-
arsvæðisins.
Ómar Ómar Ágústsson hafði
skipulagt tónleika hipphopptónlist-
armannanna Poetrix og Dabba T á
skemmtistaðnum sem áttu að fara
fram í gærkvöldi og tjáði hann
blaðamanni að svo virtist sem hátal-
arar og tæki til hljóðblöndunar
hefðu verið tekin ófrjálsri hendi.
Reiknar Ómar Ómar með að takist
að útvega nýjan búnað og hefur tón-
leikunum sem vera áttu í gær verið
frestað til föstudags.
Engar upplýsingar um málið var
að finna á heimasíðu staðarins og
Gylfi Blöndal skemmtanastjóri varð-
ist allra fregna af atvikum þriðju-
dagsins. „Ég get sagt það að tón-
leikahaldið heldur áfram. Staðurinn
verður opnaður aftur um helgina í
góðum fíling,“ sagði hann þegar
blaðamaður náði af honum tali.
Skemmtistaðurinn Organ var
opnaður í Hafnarstræti versl-
unarmannahelgina 2007 og hefur
síðan þá skipað sess sem einn helsti
skemmti- og tónleikastaður bæj-
arins. Staðurinn rúmar um 300 gesti.
Græjum stolið frá Organ
Hátalarar og hljóðblöndunartæki tekin ófrjálsri hendi
Tónleikahaldi frestað en fer aftur af stað um helgina
www.myspace.com/org-
anreykjavik
Ómar Ómar
Ágústsson
Sævar Daníel
/ Poetrix
Morgunblaðið/Valdís Thor
Stjórinn Gylfi Blöndal segir staðinn verða opnaðan aftur um helgina „í góð-
um fíling“. Myndin var tekin í tilefni af afmælistónleikum staðarins nýlega.
Strákarnir okk-
ar tóku Pólverj-
ana í gærmorgun
með glæsibrag og
í fyrsta skipti í
handboltasögu
vorri virðast ól-
ympíumedalíur
innan seilingar.
Liðið er á miklu flugi en enginn
eins og fyrirliðinn, hinn stórkost-
legi Ólafur Stefánsson, sem virð-
ist vera kominn á stig sem er hulið
okkur jarðneskum mönnum. Í við-
tali við sjónvarpið eftir Pólverja-
leikinn talaði hann um að hlutir
væru að birtast sem „voru bara
hugsanir og tilfinningar“ og einnig
talaði hann um að „þótt þú deyir
hérna á vellinum, þá deyrðu lif-
andi“. Þá sagði hann: „Við vorum
að klifra þetta fjall og það voru
tvær leiðir í dag. Önnur var *bíb*
og hin var upp.“
Andlegir leiðtogar eins og Yoda
úr Stjörnustríði eða Morpheus úr
Matrix komu óneitanlega upp í hug-
ann eftir þessar yfirlýsingar og
klárt að Spánverjarnir steinliggja á
morgun undir forystu jafn innblás-
ins leiðtoga. Áfram Ísland!
Heilagur Ólafur
Er dagurinn styttri hjá hundum?
Af hverju eru fjögur hólf fyrir
þvottaefni? Og á ég eftir að end-
urholgast sem skítafluga? Þessar
spurningar eru á meðal þeirra sem
Pétur Jóhann Sigfússon ætlar að
takast á við í nýjum einleik sem
settur verður upp í Borgarleikhús-
inu í febrúar. Verkið nefnist Sann-
leikurinn um lífið og er eftir engan
annan en Sigurjón Kjartansson. Ef
að líkum lætur mun verkið slá í
gegn, enda Pétur og Sigurjón á
meðal allra fyndnustu manna lands-
ins – og þótt víðar væri leitað.
Já sæll já fínt!
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
„ÞETTA er bara almenn leti. Það er
því miður ekki hægt að tala um ein-
hverja dramatík,“ segir Freyr Eyj-
ólfsson Geirfugl þegar hann er innt-
ur eftir skýringum á því hvers
vegna heil fimm ár séu liðin frá síð-
ustu Geirfuglaplötu.
„Menn hafa bara verið í öðru eins
og gengur. Í öðrum plötum og öðr-
um verkefnum. Börn eru þá komin á
kreik og tíminn verður alltaf minni
og minni. Þessi hljómsveit er eig-
inlega meira eins og saumaklúbbur,
hún samanstendur af gamalli
menntaskólaklíku og er rekin af ein-
skæru metnaðar- og kæruleysi!“
Póstmódernískur aulabrandari
Platan nýja heitir Árni Bergmann
og lýsir Freyr titlinum sem póst-
módernískum aulabrandara.
„Árni Bergmann gaf út skáldsög-
una Geirfuglarnir árið 1982 þannig
að við snúum höfundi og titli ein-
faldlega við og notumst við upp-
runalegu bókarkápuna sem umslag.
Okkur fannst þetta kjörið tækifæri
til að heiðra Árna með veglegum
hætti, enda einn sá merkasti rithöf-
undur og fræðimaður sem við eig-
um. Við Geirfuglar erum miklir
aðdáendur Árna.“
Freyr segir að þetta sé alltaf
sama „helvítis“ klíkan sem skipi
sveitina, eina breytingin sé að nú sé
Ragnar Helgi Ólafsson búinn að
færa sig yfir á gítar og Stefán
Magnússon er tekinn við bassanum,
en hann sá áður um gítarleik.
„Einhverra hluta vegna höfum
við alltaf verið að vandræðast með
bassaleikara. En annars flakka
hljóðfærin fremur frjálslega á milli
okkar.“
Freyr segir að nokkur kúvending
hafi orðið á tónlist Geirfuglanna á
þessum árum.
„Við stungum polkann í bakið og
erum farnir að spila rokk. Ég myndi
lýsa plötunni sem fjórtán laga rokk-
plötu með ljúfsárum undirtóni. Það
er einhver melankólísk Bergman-
stemning yfir henni.“
Freyr segir að textarnir fjalli
þannig um meðvirkni, misheppn-
aðar valdaránstilraunir og annan
heimsósóma.
Aðpurður hvort með þessu sé
hljómsveitin að endurspegla ástand-
ið í þjóðfélaginu í dag svarar Freyr
snöggt:
„Ég ætla rétt að vona ekki! Enda
hefur þessi hljómsveit og öll
hennar verk alltaf verið bölvuð
tímaskekkja. Þetta er útdauð tónlist
í takt við tíðarandann eins og við
segjum svo gjarnan.“
Árni Bergmann skreið saman á
u.þ.b. einu og hálfu ári, gnægð var
af efni og þeir félagar hafa snurfus-
að þetta í rólegheitum. Enginn asi
var í kringum plötugerðina, sem
hagaði sér því rétt eins og dægiljúft
saumaklúbbskvöld.
„Þetta er alíslenskur heimilisiðn-
aður og við sjáum um allt verkferlið.
Ragnar Helgi hannaði t.a.m. káp-
una. Öll lögin eru okkar utan að Val-
geir Guðjónsson á eitt lag, „Næstsíð-
asti geirfuglinn“. Ég hafði lengi
verið að nauða í Valgeiri um að
semja fyrir okkur lag sem myndi
bera titilinn „Síðasti geirfuglinn“.
Hann varð við þeirri bón en þegar
hann afhenti mér lagið sagði hann
mér að enn væri bið í þann síðasta.
Þetta væri því sá næstsíðasti.“
„Alvöru“ hljómsveit
Í haust verður hægt að sjá Geir-
fuglana á sviði Borgarleikhússins en
þeir sjá um undirleik í söngleiknum
Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk
Símonarson
„Þá verða Geirfuglarnir að skríða
úr hreiðrum og þykjast vera alvöru
hljómsveit,“ segir Freyr og kímir.
Geirfuglarnir munu fagna plöt-
unni nýju á Menningarnótt, næst-
komandi laugardag, með útgáfu-
tónleikum í Iðnó.
Ljúfsár tímaskekkja
Geirfuglarnir
gefa út nýja plötu
eftir fimm ára hlé
Morgunblaðið/Golli
Úr hreiðrinu Geirfuglarnir horfast í augu við miskunnarlausan veruleikann. Tuskuapi leysti Halldór Gylfason af
hólmi, en hann hafði öðrum hnöppum að hneppa er ljósmyndara bar að garði.