Morgunblaðið - 25.08.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.08.2008, Blaðsíða 1
Eftir Andra Karl andri@mbl.is „ÉG HAFÐI á tilfinningunni að hlutirnir væru að ganga upp. Hún fékk frábæra hjálp frá Vímu- lausri æsku og Lundi í Keflavík, en það var samt eitthvað sem angraði mig,“ segir Elísabet Mark- úsdóttir, móðir 17 ára stúlku sem berst við vímu- efnavanda. Í næstum fjögur ár hefur hún reynt að gera hvað hún getur til að bjarga dóttur sinni úr viðjum vímunnar. Stúlkan féll fyrir tveimur vikum og er nú á nýj- an leik komin í meðferð. Elísabet segir baráttu síðustu ára hafa tekið gríðarlega á og hræðilegt sé að horfa upp á barn sitt drepa sig á vímuefnum. Skili meðferðin ekki tilætluðum árangri óttast hún að tíminn sé á þrotum. „Hún er að verða átján ára og ég er að reyna að nota þessa síðustu daga til að gera það sem ég get til að hjálpa henni.“ Amfetamínfíkn aðalvandi hjá 13% Vímuefnavandi íslenskra ungmenna er mikill og til að mynda koma um 4% allra landsmanna á Sjúkrahúsið Vog fyrir tvítugsaldur. Ungmennin fara ekki varhluta af þróun vímuefnaneyslu hér á landi og hefur orðið gríðarleg aukning í neyslu örvandi vímuefna, s.s. amfetamíns, kókaíns og e-taflna. Amfetamínfíkn var aðalvandi 13% ung- menna undir 19 ára sem leituðu sér meðferðar á Vogi á síðasta ári. Vandinn er þó ekki aðeins þeirra, og fjölskyldur ungra fíkniefnaneytenda þjást ekki síður, enda fíkillinn oftast nær með öll vopnin í höndum sér. Kristín Snorradóttir, móðir 21 árs fíkils í meðferð, vill sjá meira gert fyrir aðstandendur. „Ég sem móðir hef verið á þeim stað að vanlíðanin og sorg- in hefur verið svo mikil að ég hef varla staðið und- ir mér. Þetta er fjölskyldusjúkdómur og mér finnst það oft gleymast.“ Báðar mæður lofa starf Foreldrahúss þar sem þær hafa fengið mikinn stuðning og hvetja að- standendur til að sækja aðstoð þangað og það fremur fyrr en síðar.  Neysla örvandi efna | 12–13 Vímuefnaneysla íslenskra ungmenna er alvarlegt vandamál sem bitnar gríðarlega á aðstandendum Vímuefnafíkn er fjölskyldusjúkdómur Í HNOTSKURN »Innlögnum ungmenna 19ára og yngri á Sjúkrahúsið Vog hefur farið fækkandi á undanförnum árum. »Á síðasta ári voru inn-lagnir 219 en árið 2001 voru þær 294. » Innlögnum ungra kvennahefur hins vegar ekki fækkað. M Á N U D A G U R 2 5. Á G Ú S T 2 0 0 8 STOFNAÐ 1913 231. tölublað 96. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er Leikhúsin í landinu Allir í leikhús Duo >> 33 DAGLEGTLÍF LEIKURINN.IS ER Í BOÐI BRÆÐRA ALÞJÓÐARALLINU LOKIÐ Hrekkjóttar slóðir og frystikista á vegi Eftir Víði Sigurðsson vs@mbl.is „EIGUM við ekki að segja að ég sé kominn í ágætis frí – hve langt það verður veit ég ekki,“ sagði Ólafur Stefánsson, fyrirliði íslenska lands- liðsins í handknattleik, við Morgun- blaðið í Peking eftir að hann tók við silfurverðlaununum á Ólympíuleik- unum ásamt samherjum sínum í gær. Ólafur, sem er 35 ára gamall, var valinn í sjö manna úrvalslið keppn- innar eins og þeir Snorri Steinn Guð- jónsson og Guðjón Valur Sigurðsson, en hann kvaðst ætla að gefa sér tíma til að velta því fyrir sér hvort hann gæfi kost á sér í landsliðið á ný. Það mætir Noregi í fyrsta leiknum í und- ankeppni Evrópumótsins hinn 1. nóvember. Íslenska landsliðið hitti fyrir ofjarla sína í úrslitaleiknum í Peking í gær og tapaði, 23:28, eftir að hafa lent sjö mörkum undir í fyrri hálf- leiknum. „Við gerðum okkur ljóst að fyrsti stundarfjórðungur úrslita- leiksins yrði sá mikilvægasti. Tækist okkur ekki að halda aftur af Íslend- ingum fyrsta korterið gæti farið svo að þeir næðu frumkvæðinu í leiknum og þá yrði voðinn vís hjá okkur,“ sagði Claude Onesta, þjálfari Frakka. En Ísland fékk silfurverðlaun á Ólympíuleikum í aðeins annað skipti í sögunni. Áður fékk Vilhjálmur Ein- arsson þau þegar hann varð annar í þrístökki á leikunum í Melbourne ár- ið 1956. Frammistaða íslenska lands- liðsins vakti heimsathygli, langt út fyrir raðir hefðbundinna áhuga- manna um handknattleik. Kveðjuleikur hjá Ólafi?  Fyrirliðinn óviss um framtíðina eftir að Ísland fékk silfrið á ÓL í Peking Morgunblaðið/Brynjar Gauti Sigurvegarar Ólafur Stefánsson, Snorri Steinn Guðjónsson og Guðjón Valur Sigurðsson voru kampakátir með silfurpeninga á verðlaunapallinum. Gleði Kristján Arason og Guð- mundur Guðmundsson fögnuðu. Ólympíuleikar | 2, íþróttir  Sauðfjárbændur eru uggandi yfir framtíðarhorfum greinar sinnar og segja að fyrirhugaðar hækkanir af- urðaverðs nægi ekki til að vega upp hækkanir á tilkostnaði. Hækk- anirnar munu að sögn bænda að- eins duga fyrir áburðarhækkunum. Margir þeirra sjá sér þann kost vænstan að skera hjarðir sínar og bregða búi lagist ástandið ekki. Sláturleyfishafar telja sig ekki hafa svigrúm til frekari hækkana vegna dýrs birgðahalds. Þá muni markaðurinn ekki sætta sig við að lambakjöt hækki langt umfram aðrar kjöttegundir. Formaður Landssamtaka sláturleyfishafa seg- ir hagræðingu hafa skilað sér til bænda. » 15 Munu skera hjarðir sínar  Dómstóll í Sádi-Arabíu tekur í næsta mánuði fyrir beiðni um að veita átta ára stúlku skilnað frá manni á sextugsaldri, að sögn dag- blaðsins Al-Watan í gær. Blaðið sagði að móðir stúlkunnar hefði lagt beiðnina fram og hafði eftir lögmanni hennar að faðir stúlkunnar hefði gift manninum dóttur sína án þess að segja henni frá því. Eiginmaður stúlkunnar hefur synjað beiðni ættingja hennar um skilnað og segist ekki hafa gert neitt ólöglegt. Ættingjarnir hafa óskað eftir aðstoð sádi-arabískrar mannréttindahreyfingar í málinu. Beiðni um að átta ára stúlka fái skilnað  Dýrar gjafir til opinberra embætt- ismanna og stjórnmálamanna eru siðferðilega óverjandi, að mati sér- fræðings í viðskiptasiðfræði. Í gegn- um tíðina hefur það komið fyrir að opinberir embættismenn og stjórn- málamenn færu í veiðiferðir í boði stórfyrirtækja. Dagur B. Eggertsson hafði for- ystu um smíði siðareglna, sem fjalla m.a. um slíkar gjafir, og hafa þær þrívegis verið lagðar fyrir borgar- ráð en ekki enn verið staðfestar. » 6 Má flokka sem mútur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.