Morgunblaðið - 27.08.2008, Side 4

Morgunblaðið - 27.08.2008, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HSÍ, Handknattleikssamband Ís- lands, verður styrkt um 50 millj- ónir króna í kjölfar frækilegs ár- angurs landsliðsins í handbolta á Ólympíuleikunum í Peking. Þetta ákvað ríkisstjórnin á fundi í gær að tillögu menntamálaráðherra, Þorgerðar Katrínar Gunn- arsdóttur, sem einnig er ráðherra íþróttamála. Í fréttatilkynningu kemur fram að tilefnið sé einstætt afrek íslenska handboltaliðsins, en það hlaut eins og alþjóð veit silfurverðlaun á leikunum. HSÍ þurfti að leggja út fyrir miklum kostnaði vegna þátttöku liðsins og stóð í kjölfarið fyrir söfnunarátaki meðal fyrirtækja og almennings samhliða keppn- inni þar sem söfnuðust yfir 10 milljónir til viðbótar við 50 millj- ónirnar. Ólympíufararnir allir verða hylltir með skrúðgöngu á morgun kl. 18. 50 milljóna styrkur Morgunblaðið/Brynjar Gauti Silfurdrengir Handboltalandsliðið vann þjóðinni ólympíusilfur og HSÍ veitir því 50 milljóna króna styrk í kjölfarið. ÍSLENSKA handboltalandsliðið verður hyllt á Arnarhóli kl. 18.30 í dag. Meðal atriða verður tónlist- arflutningur Valgeirs Guðjóns- sonar auk ávarpa. Lögreglan mun loka Lækjargötu að hluta í dag kl. 10 vegna uppsetningar á sviði við Arnarhól. Þá verður Hverfisgötu við Ingólfsstræti lokað kl. 16 og Eiríksgötu við Njarðargötu. Þá verður Frakkastíg við Berg- þórugötu lokað. Lögreglan býr sig undir álíka mannfjölda í bænum og á Gleðigöngunni eða 17. júní og hvetur fólk til að koma gang- andi eða með strætó. Frítt verður í strætó frá kl. 15. Klukkan 18 verður landsliðinu ekið í opnum vagni frá Skólavörðuholti niður Skólavörðustíg og endar förin á Arnarhóli. Bílstjórar er hvattir til að nýta sér bílastæðahúsin í mið- borginni en þau verða opin til 21 og ókeypis frá klukkan 17. Landsliðið hyllt í dag Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is VARNARÆFINGIN Norður- Víkingur 2008 fer fram hér á landi í næstu viku, hefst mánudaginn 1. september og lýkur föstudaginn 5. september. Æfingin hefur farið fram árlega og er hluti af varn- arsamningi við Bandaríkjamenn og viðauka sem gerður var í tengslum við brottflutning hersins héðan. Samkvæmt upplýsingum frá ut- anríkisráðuneytinu verður um al- menna æfingu að ræða þar sem áhersla er lögð á loftvarnir og flutning liðsafla til og frá landinu á ófriðartímum. Fer æfingin fram í tengslum við loftrýmiseftirlit Bandaríkjamanna sem stendur til 20. september nk. Viðbúnaður í eftirlitinu er svip- aður og hjá Frökkum, sem voru hér á landi fyrr á árinu. Haldið var eftir nokkrum byggingum á varnarsvæðinu til að hýsa þá her- menn sem hingað eiga að koma í eftirlit í lofti. 50 milljónir af fjárlögum Evrópuherstjórn Bandaríkjanna stjórnar æfingunni en undirbún- ingur fer að mestu fram hér á landi á vegum Varnarmálastofn- unar og fleiri aðila. Samkvæmt fjárlögum íslenska ríkisins eru um 50 milljónir króna ætlaðar í þetta verkefni, en kostnaður við æf- inguna liggur að öðru leyti hjá Atlantshafsbandalaginu. Alls munu um 400 manns taka þátt í æfingunni, þar af um 130 manns sem koma hingað til lands vegna loftrýmiseftirlits Banda- ríkjahers. Á æfinguna sjálfa koma 250-300 manns frá Noregi, Kan- ada, Ítalíu, Hollandi, Þýskalandi og fleiri ríkjum Atlantshafs- bandalagsins. Flugsveitir koma frá Noregi, Bandaríkjunum og Kan- ada. Bandaríkjamenn verða með fjórar orustuþotur, Norðmenn með fimm og Kanadamenn með sex. Einnig verður notast við AWACS- ratsjárflugvélar, kafbátaleitarvélar og eldsneytisáfyllingarvélar. Samhliða æfingunni mun danska varðskipið Vædderen æfa lög- reglu- og björgunaraðgerðir á sjó ásamt varðskipi frá Landhelg- isgæslunni. Þyrlur Gæslunnar verða í viðbragðsstöðu meðan á æfingu stendur. Þá kemur lög- reglan á Keflavíkurflugvelli að æf- ingunni ásamt sérsveitarmönnum lögreglunnar og starfsmönnum Flugstoða. Morgunblaðið/ÞÖK Varnaræfing Að þessu sinni munu 15 orustuþotur taka þátt í æfingunni Norður-Víkingi 2008 yfir íslensku hafsvæði. Loftvarnir æfðar  Um 400 manns taka þátt í æfingunni Norður-Víkingi ’08 í næstu viku  Æft í tengslum við lofteftirlit Bandaríkjahers                           Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is „ÞETTA er allt í lagi í svona eina viku. Það er ekkert mál. En þegar ástandið er svona til lengri tíma þá getur þetta verið alveg hræðilega erfitt. Ekki aðeins felur ástandið í sér stanslaust álag á barnið: að vera að senda það fram og til baka í pössun, heldur er þetta streituvald- andi fyrir alla á heimilinu,“ segir Katrín Georgsdóttir. Hún á barn í Vesturbæjarskóla, sem er á biðlista eftir plássi í frístundaheimilinu Skýjaborgum. Fjölmargir eru í sömu sporum og hún. „Að mínu mati hafa frístunda- heimilin uppeldislegt gildi í fé- lagslegum samskiptum barnanna. Ef til dæmis allir í bekknum komast inn nema þrír getur það haft mikil áhrif á félagslega tengingu milli þeirra. Þau geta jafnvel einangrast og ég tel þetta vera mjög alvarlegt mál.“ Katrín bendir jafnframt á að vera á frístundaheimili geti haft mikil áhrif á þroska barns. „Mér finnst oft stórlega vanmetið hvað frístundaheimilin skipta miklu máli fyrir barnið. Á þessum aldri er fé- lagslegi þátturinn eiginlega mun mikilvægari en námið sjálft. Leik- urinn er svo mikilvægur í þroska barnsins.“ Katrín tekur jafnframt fram að hún sé mjög ánægð með starfsemi og stefnu Íþrótta- og tómstunda- ráðs þótt biðlistarnir geti reynst erfiðir. Margir í sömu aðstöðu „Við skráðum stelpuna okkar á lista 31. mars og það var alveg inn- an tímarammans sem var gefinn upp. Hún er núna númer 35 á bið- lista og við vitum ekki hvenær hún kemst að. Það fer væntanlega bara eftir því hvernig gengur að ráða í störfin. Það fælist mun meira ör- yggi í því fyrir okkur ef við vissum hvenær hún kæmist að. Þá gætum við kannski ráðið einhvern til að passa hana þangað til en núna lifum við í óvissu með þetta mál.“ Hún segist jafnframt telja að langstærsti hluti barna í öðrum bekk í Vesturbæjarskóla sé í sömu sporum. Ávallt skortir mannafla Biðlistavandinn sem þjakar frí- stundaheimili borgarinnar á að mestu rætur sínar að rekja til skorts á mannafla. Samt sem áður er ástandið nokkuð betra en á sama tíma í fyrra enda búið að ráða um helmingi fleiri starfsmenn á frí- stundaheimilin nú en þá. Enn vant- ar þó töluvert af fólki. Umsóknum um vistun á frístundaheimilum hef- ur einnig fjölgað lítillega milli ára og þær voru í ár um 2.800. Katrín og aðrir foreldrar reyna að bregðast við vandanum með samstarfi. „Ég og maðurinn minn skiptumst á að vera með stelpuna okkar og svo hjálpumst við líka að með öðrum foreldrum eins og við getum. Þetta getur stundum verið ansi erfitt.“ „Börnin geta einangrast í slíkri aðstöðu“ Biðlistavandinn þjakar foreldra enn Foreldri Katrín Georgsdóttir er ein margra með barn á biðlista. Í HNOTSKURN »Margir foreldrar eru ívandræðum vegna þess að börn þeirra fá ekki vistun á frístundaheimili. Skólarnir eru nú hafnir að nýju og bið- listarnir eru enn langir. »Biðlistarnir eiga að mesturætur sínar að rekja til skorts á mannafla. Þó gengur betur nú að ráða fólk í störfin en á sama tíma í fyrra. Frí- stundaheimilin eru fyrir börn á aldrinum 6–9 ára. »Foreldrarnir reyna nú aðbregðast við vandanum með samstarfi og skiptast meðal annars á að passa börn- in. Varnaræfingin mun að þessu sinni að mestu leyti fara fram yfir hafsvæðinu kringum Ísland og að sögn Urðar Gunnarsdóttur, fjölmiðlafulltrúa utanríkisráðu- neytisins, verður reynt að tak- marka flugumferð sem mest yfir landinu. Almenningur muni ekki verða mikið var við æfinguna. „Ekki verður hjá því komist að almenningur verði var við þegar þessar vélar koma og fara, en það verður reynt að stilla því í hóf eins og kostur er. Lögð hef- ur verið áhersla á að flugflotinn sé ekki að fara of snemma af stað eða að lenda að næturlagi,“ segir Urður en sömu línur voru lagðar þegar franski flugflotinn var hér við eftirlit fyrr á þessu ári. Kveðið var á um það í við- auka við varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna að Atlants- hafsbandalagsríkin myndu reglu- lega sinna loftrýmiseftirliti við Ísland. Flugumferðinni stillt í hóf

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.