Morgunblaðið - 27.08.2008, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Þú tekur spjótið, Biden minn, en ég dúfuræksnið.
VEÐUR
Hvers vegna valda tvær flugferðirIcelandair Cargo með riffla til
Georgíu svona miklu uppnámi?
Eru þetta ekki ósköp venjulegirflutningar, sem farmflugfélög
taka iðulega að sér? Farmurinn var
ekki hættulegur frekar en óhlaðnir
rifflar eru alla jafna.
Flutningarnir tilGeorgíu voru
bara viðskipti og
komu sem slíkir
íslenzkum stjórn-
völdum ekkert
við.
Öðru máli gegn-ir hins vegar um talsvert um-
fangsmikla flutninga á her- og hjálp-
argögnum fyrir Atlantshafs-
bandalagið, sem Ísland skuldbatt sig
til að taka þátt í á leiðtogafundi
NATO í Prag árið 2002.
ÍMorgunblaðinu í dag kemur framað á fjárlögum eru 200 milljónir
króna ætlaðar til að standa straum
af slíkum flutningum ef nauðsyn er
á.
Þetta er mikilvægur hluti af fram-lagi Íslands til NATO.
Í því ljósi er dálítið merkilegt aðIngibjörg Sólrún Gísladóttir utan-
ríkisráðherra skyldi segja í Kastljósi
í fyrrakvöld, aðspurð um flutninga
Icelandair: „Almennt held ég að ég
geti nú bara sagt það eins og venju-
legur íslenzkur almenningur, að þá
finnst mér það svona heldur ógeð-
felld hugsun að við séum að flytja
hergögn.“
Finnst utanríkisráðherranum áð-urnefnt framlag Íslands til
NATO ógeðfellt?
Og ef svo er, ætlar hún þá að geraeitthvað í því?
STAKSTEINAR
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Ógeðfelldir flutningar?
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!" #
#
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
$!%"&
!" #
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
*$BC
!
"
#
!
$%
&
"
*!
$$B *!
'(
)
"
(
"
& %"* %
<2
<! <2
<! <2
'&") + #,-! %.
CDB
E
/
'
& (
"(
")
*"
<7
'
*
$+
,
"#
,"
<
'
*
"#
*
#
$
/0 %11 %" 2
% !%+ #
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
FRÉTTIR
TRYGGUR, nýr
þjónustuvefur
Tryggingastofn-
unar ríkisins
(TR), var í gær
opnaður með við-
höfn. Jóhanna
Sigurðardóttir
félagsmálaráð-
herra ávarpaði
gesti sem og
Ragnar Gunnar Þórhallsson, for-
stjóri TR, en hann opnaði vefinn.
Á vefnum er hægt að vinna tekju-
áætlanir og gera bráðabirgðaút-
reikninga auk þess sem nálgast má
greiðsluseðla. Er Tryggur sagður
munu bæta aðgengi og þjónustu
jafnframt því að efla samvinnu
starfsfólks og viðskiptavina.
Verkefnisstjóri rafrænnar stjórn-
sýslu, Bragi L. Hauksson, segir
þjónustuvefinn vera mikla búbót fyr-
ir viðskiptavini TR. Segir hann að
því stefnt að bjóða alla þjónustu
stofnunarinnar á rafrænan hátt sam-
hliða hinu hefðbundna formi. Áætlað
er að það taki nokkur ár og verða
tekin lítil skref í átt til rafvæðingar.
„Hugsum stórt, byrjum smátt og
þróum hratt,“ segir Bragi vera kjör-
orð ferlisins. skulias@mbl.is
Nýr þjón-
ustuvefur
TR opnaður
Stefnt að því að bjóða
alla þjónustu rafrænt
Bragi L. Hauksson
Eftir Unu Sighvatsdóttur
unas@mbl.is
„ÞAÐ eru of margir starfsmenn á Landspítala
sem ekki tala nægilega íslensku svo við erum að
reyna núna að gera átak í því og eftirspurnin er
mikil,“ segir Hildur Magnúsdóttir, verkefnastjóri
á skrifstofu mannauðsmála Landspítalans.
Á Landakoti var unnið frumkvöðlastarf í
kennslu í starfstengdri íslensku veturinn 2000-
2001 en nú stendur til að stórauka framboðið af
námskeiðum fyrir starfsfólk spítalans í samstarfi
við Mími – símenntun. Kenndar verða þrjár annir
og boðið samtals upp á 27 námskeið. Kennslan fer
fram á spítalanum og að mestu innan vinnutíma.
Um 350 starfsmenn Landspítalans eru með er-
lent ríkisfang, þar af eru um 60% í almennum
störfum sem ekki krefjast starfsmenntunar, 13%
eru hjúkrunarfræðingar en auk þess eru erlendir
sjúkraliðar, læknar, lífeindafræðingar o.fl. við
störf. Boðið var upp á stöðupróf í íslensku fyrir
stuttu og verður öllum þeim sem þurfa á því að
halda boðið á námskeið innan spítalans. „Það eru
ekki margir sem bjóða upp á íslenskunám fyrir ut-
an Mími og það er þá helst á byrjunarstigunum, en
það er ekki nóg fyrir okkar starfsfólk, við höfum
áhuga á meiri samfellu,“ segir Hildur.
Kennt verður á fjórum stigum, fyrir byrjendur
og lengra komna, samtals 240 kennslustundir. Þá
verða fyrstu tvö stigin tvískipt svo þeir sem eru
háskólamenntaðir eða tala annað Norðurlandamál
fá sérkennslu þar sem farið verður hraðar og
dýpra í efnið. Námskeiðin eru byggð á nýútgefinni
námskrá ráðuneytisins um íslenskukennslu fyrir
útlendinga, en hún byggir á ramma Evrópuráðs-
ins um tungumálakennslu.
Meiri og betri íslenska starfsfólks
Fjöldi erlendra starfsmanna á Landspítalanum kallar á öflugri íslenskukennslu
REYKJAVÍKURBORG ætlar nú að
fara í átak gegn stöðubrotum bíla á
gangstéttum, en Morgunblaðið birti í
gær mynd af stúlku sem gert var erf-
itt fyrir að ganga í skólann vegna bíla
sem lagt var ólöglega.
Færst hefur í aukana að bílstjórar
hunsi þannig með öllu hag gangandi
vegfarenda og leggi gangstéttarnar
undir bílana sína svo skólabörn þurfi
að hörfa út á götu og leggi sig þar
með í óþarflega hættu í umferðinni.
Þá er ekki síður erfitt fyrir eldra
fólk með innkaupakerrur eða for-
eldra með barnavagna að komast
leiðar sinnar þar sem gangstéttarnar
eru notaðar eins og bílastæði. Næstu
daga munu stöðuverðir Reykjavíkur
fylgjast sérstaklega vel með götum
þar sem stöðubrot af þessu tagi eru
algengust og skrifaðir verða stöðu-
brotsmiðar.
Bílstjórar eru hvattir til að bæta
ráð sitt, en sérstaklega vel verður
fylgst með Bárugötu, Ránargötu og
Garðastræti í gamla Vesturbænum
auk nokkurra gatna í Þingholtunum
eins og Óðinsgötu og Þórsgötu, að því
er fram kemur á vef umhverfis- og
samgöngusviðs.
Þá eru íbúar hvattir til að notfæra
sér miða sem Bílastæðasjóður gaf út í
sumar með ábendingum til bílstjóra.
Á þeim segir m.a.: „Ég er barn og
komst ekki“ og „Þetta gengur ekki!
Þetta er gangstétt!“ unas@mbl.is
Ljósmynd/Oddur Björnsson
Stöðubrot Leiðin var ekki greiðfær á fyrsta skóladegi þessarar stúlku.
Borgin bregst við fjölg-
un bíla á gangstéttum