Morgunblaðið - 27.08.2008, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.08.2008, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRÉTTASKÝRING Eftir Andra Karl andri@mbl.is ENDURSKOÐUN á barnavernd- arlögum stendur yfir í félagsmála- ráðuneytinu, samkvæmt upplýs- ingum sem þaðan fengust. Jafnframt er unnið samkvæmt framkvæmdaáætlun í barnavernd- armálum sem samþykkt var á Al- þingi fyrr á árinu. Sú áætlun nær til ársins 2010, og samkvæmt henni verður m.a. ráðist í árangursmat meðferðarheimila Barnavernd- arstofu. „Á síðustu árum hefur orðið um- talsverð fjölgun á tilkynningum til barnaverndarnefnda sem bendir meðal annars til aukins álags á starfsfólk í barnavernd,“ sagði Jó- hanna Sigurðardóttir félagsmála- ráðherra þegar hún mælti fyrir þingsályktunartillögunni. Og af þeim sökum, sagði hún, er brýnt að gera athugun á eðli og umfangi til- kynninga og hlutfalli þeirra sem leiða til könnunar máls hjá barna- verndarnefndum. Um þetta er fjallað í fram- kvæmdaáætlunni og gert ráð fyrir að í byrjun næsta árs verði gerð áætlun um verkefnið, sem verði unnið í samstarfi við Háskóla Ís- lands eða Rannsóknasetur í barna- og fjölskylduvernd. Ráðgert er að verkefninu verði lokið fyrir árslok 2009. Endurmat á starfsmannaþörf Ekki náðist í Jóhönnu Sigurð- ardóttur í gær en Hrannar B. Arn- arsson, aðstoðarmaður hennar, sagði að endurskoðun á barna- verndarlögum væri yfirstandandi, og m.a. ætti að fara yfir starf barna- verndarnefnda. Sagði hann að von- ast væri til að eitthvað kæmi út úr þeirri endurskoðun á þessum vetri. Í fyrrnefndri ræðu sinni sagði Jó- hanna að meðal mikilvægra verk- efna félagsmálaráðuneytisins væri að efla og þróa samvinnu við sveit- arfélögin um barnaverndarstarf. „Þá skal ráðuneytið eiga frumkvæði að því að fram fari mat á álagi í barnaverndarstarfi og endurmat á starfsmannaþörf sveitarfélaganna í málaflokknum.“ Meðal annars sem félagsmálaráð- herra lagði fram til að efla barna- vernd er foreldrafærniþjálfun. Er það vel, enda afar mikilvægt að for- eldrar geti brugðist við merkjum um hegðunarerfiðleika barna sinna. Er horft til þróunarstarfs sem unnið hefur verið hjá Hafnarfjarð- arbæ og sýnt góðan árangur. Stefnt er að því að Barnaverndarstofa í samvinnu við fræðslusvið Hafn- arfjarðarbæjar muni gera áætlun um innleiðingu aðferðarinnar á landsvísu og árið 2010 standi for- eldrafærniþjálfun til boða. Reiknað er með að tekið verði upp samstarf við heilsugæslu- stöðvar og félagsþjónustu sveitarfé- laga til að hrinda verkefninu í fram- kvæmd. Áætlun um framkvæmdina og kostnaðaráætlun mun hins vegar ekki liggja fyrir fyrr en í árslok 2009. Mikið verk að vinna Ljóst er af framkvæmdaáætl- uninni og upplýsingum frá ráðu- neytinu að ýmislegt stendur til þeg- ar kemur að barnavernd. Mikið verk er að vinna og hlutverk sveit- arfélaganna er stórt og verkefnin viðamikil. Einna mikilvægast er að vinna endurmat á starfsmannaþörf barna- verndarnefnda enda vinna starfs- menn þeirra krefjandi starf og „brenna fljótt upp“ sökum álags. Unnið af miklum krafti Morgunblaðið/Frikki Félagsmálaráðherra Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, lagði fram metnaðarfulla fram- kvæmdaáætlun í barnaverndarmálum til ársins 2010 á Alþingi fyrr á árinu. Vinna samkvæmt henni er hafin.  Endurskoðun á barnaverndarlögum stendur yfir í félags- og tryggingamálaráðuneytinu  Einnig stendur til að gera úttekt á eðli og umfangi tilkynninga til barnaverndarnefnda Í HNOTSKURN »Framkvæmdaáætlun íbarnaverndarmálum til næstu sveitarstjórnarkosn- inga árið 2010 var samþykkt 29. maí sl. »Meginatriðin eru fimmtalsins; að efla barna- verndarstarf á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytis, efla barnaverndarstarf á veg- um Barnaverndarstofu, efla þjónustu Barnaverndarstofu, bæta hæfni, getu og þekkingu starfsfólks Barnaverndarstofu og hámarka nýtingu og virð- isauka fjármuna sem lagðir eru til stofnunarinnar. »Til að efla barnavernd-arstarf á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins skal unnið að því að tryggja nauðsynlegt fjármagn til málaflokksins. »Meðal rannsóknarverk-efna eru að athuga lík- amlegt ofbeldi á börnum á Ís- landi, athuga fjölda tilkynninga sem leiða til könn- unar hjá barnavernd- arnefndum og athugun á vímuefnaneyslu og grein- ingum barna hjá Stuðlum. »Efla skal þjónustu Barna-verndarstofu þannig að hún verði markvissari, að- gengilegri og skjótari. Í þann flokk falla ný meðferð- arúrræði, s.s. fjölþátta- meðferð (MST), fjölþátta- meðferðarfóstur og foreldrafærniþjálfun. »Sérfræðingur verður feng-inn til að meta árangur af meðferðarstarfi eins til tveggja meðferðarheimila. Leitað verður eftir ábend- ingum um breytingar á með- ferð og starfrækslu. Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is DAVID Square, höfundur nýlegrar bókar um íshokkílið Fálkanna í Winnipeg, hefur gert samning um gerð kvikmyndar um liðið, sem varð ólympíumeistari 1920, en allir leik- mennirnir að einum frátöldum voru af annarri kynslóð Íslendinga í borg- inni. „Þetta verður mjög spennandi verkefni,“ segir Snorri Þórisson, framleiðandi hjá kvikmyndagerð- arfyrirtækinu Pegasus, sem vinnur með kanadíska fyrirtækinu Eagle Vision að myndinni, sem á að vera tilbúin fyrir Vetrarólympíuleikana í Vancouver 2010. Íshokkí var fyrst ólympíugrein á leikunum í Antwerpen í Belgíu 1920. Fálkarnir tryggðu sér réttinn til að keppa fyrir hönd Kanada og hrein- lega rúlluðu andstæðingunum upp á Ólympíuleikunum. Íslendingar og Kanadamenn Eftir að gullverðlaunin voru í höfn sagði blaðið Heimskringla í Winni- peg að árangurinn ætti að fylla hjörtu allra Íslendinga með gleði og stolti, „vegna þess að það eru dreng- irnir þeirra, sem fræknastir hafa reynst og þannig svarið sig í kyn for- feðranna á söguöldinni. En hin Ca- nadiska þjóð í heild sinni má vera upp með sér af flokknum, sem hún sendi yfir hafið … Fálkar! Vér þökk- um yður í nafni tveggja þjóða hina hraustu framgöngu og heimsfrægð- ina.“ Í blaðinu Lögbergi í Winnipeg kom fram að menn hefðu verið sann- færðir um að „þessir Íslendingar hefðu til að bera hreysti, listfengi, Gullsaga ólympíumeistara Fálkanna Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Sýning Brian Johannesson, sonur varnarmannsins Konnie, á sýningu um Fálkana í Winnipeg, en þeir eru líka í Ólympíufrægðarsetrinu í Toronto. hugrekki, staðfestu og óbilandi vilja- þrek til þess að sigra í kappleiknum, landi sínu, þjóð sinni og sjálfum sér til sóma.“ Ótrúleg saga Saga Fálkanna er ótrúleg og þeir þurftu að búa við mikið mótlæti. Þeim var ekki hleypt inn í Winnipeg- deildina og stofnuðu þá aðra deild. Sigurvegarar deildanna léku um Manitoba-meistaratitilinn og Fálk- arnir höfðu betur. Þeir unnu lið frá Thunder Bay í undanúrslitum um kanadíska meistaratitilinn. Unnu loks lið frá Toronto í úrslitum og fengu farseðilinn á Ólympíuleikana. Eftir leikana var gulldrengjunum fagnað sem þjóðhöfðingjum við komuna til Montreal og Toronto. 22. maí komu þeir til Winnipeg og þá var gefið frí svo heimamenn gætu hópast saman og hyllt hetjurnar þegar þær óku sigurhring. Frank Fredrikson fyrirliði fór hins vegar beint til Íslands vegna flugmála. Gerð verður kvikmynd um liðið sem skip- að var Íslendingum af annarri kynslóð ERINDI Götusmiðjunnar um neyð- arathvarf fyrir ungmenni 20 ára og yngri hefur ekki verið afgreitt hjá þeim sveitarfélögum sem það var sent til fyrr á þessu ári. Við leit í fundargerðum sveitarfélaga og Samtaka sveitarfélaga á höf- uðborgarsvæðinu kemur í ljós að málið var einungis tekið fyrir hjá Hafnarfjarðarbæ. Hjá velferð- arráði Reykjavíkurborgar fengust þær upplýsingar að ekki hefði ver- ið tekin afstaða til málsins en það yrði skoðað með jákvæðum huga. Í Morgunblaðinu í gær var fjallað um hugmynd Guðmundar Týs Þórarinssonar, sem kenndur er við Götusmiðjuna, þess efnis að setja á fót neyðarskýli fyrir ungt fólk í miðborg Reykjavíkur. Var erindi þess efnis sent til sveitarfé- laga í og við höfuðborgarsvæðið, ásamt kostnaðaráætlun. Forvarnarnefnd Hafnarfjarð- arbæjar tók að vísu málið fyrir en komst að þeirri niðurstöðu að ekki fylgdu „nægjanlega góð gögn til að meta þörf fyrir slík verkefni sem Götusmiðjan stefnir að“. Fjölskylduráð Hafnarfjarð- arbæjar ákvað þó að senda málið til Samtaka sveitarfélaga til sam- eiginlegrar umfjöllunar. Þar var erindið lagt fram á stjórnarfundi 5. maí sl., en frestað. Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri Seltjarn- arness, sem stjórnaði fundinum, sagði í samtali við blaðamann að ljóst væri að málið yrði tekið fyrir að nýju. Óljóst er þó hvenær það verður gert. Geir Jón Þórisson, yfirlög- regluþjónn hjá lögreglu höf- uðborgarsvæðisins, segir hugmynd um neyðarathvarf sem opið yrði allan sólarhringinn mikið fagn- aðarefni. „Þetta er vandamál sem er ekki mjög sjáanlegt almenningi en við verðum vel varir við þetta í okkar starfi. Við vitum að ungt fólk liggur í alls kyns bælum. Það fer úr foreldrahúsum og leggst í alls kyns fíkniefnabæli. Við erum oft að leita að mjög ungu fólki sem foreldrar hafa ekki heyrt af í nokkra daga.“ Neyðarskýli fyrir ungt fólk hef- ur ekki verið rekið í rúm fjögur ár, eða frá því að starfsemi Rauða- krosshússins var hætt. Erindi um athvarf lagt fram en frestað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.