Morgunblaðið - 27.08.2008, Blaðsíða 17
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fasteign Rekstrarfélag mun eiga og reka húsnæðið við Krókháls 11 og leigja það Öskju og Kia á Íslandi.
til að geta ráðið einhverja þeirra til
fyrirtækisins. „Fyrir voru starfs-
menn Öskju um fjörutíu talsins og
stefnt er að nokkurri fjölgun starfs-
manna.“
Segir Leifur að flutningur Öskju
og Kia muni fara fram í þrepum og
að honum muni ljúka á næstu vikum.
„Við byrjum á því að setja upp í
verkstæðinu og svo mun önnur starf-
semi fylgja í kjölfarið. Húsnæðið er
mjög gott og satt að segja höfðum
við sprengt utan af okkur núverandi
aðstöðu fólksbíladeildarinnar á
Laugavegi.“ Auk fólksbíladeildar
hefur Askja rekið atvinnubíladeild í
Hafnarfirði, en deildirnar munu fara
undir sama þak í Krókhálsi.
Ræsir hefur átt í rekstrarvanda
undanfarin ár og má að hluta rekja
hann til missis Mercedes-Benz um-
boðsins og byggingar hússins við
Krókháls, sem mun hafa verið dýr.
Askja flytur í hús
Ræsis sem hættir
Einhverjir af starfsmönnum Ræsis munu starfa hjá Öskju
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
LÍTIÐ er nú eftir af bílaumboðinu
Ræsi, en bílaumboðin Askja og Kia á
Íslandi munu á næstu dögum og vik-
um flytja inn í húsnæði, sem hingað
til hefur verið í eigu Ræsis, að Krók-
hálsi 11. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins mun Ræsir hætta
starfsemi á næstu dögum eða vikum.
Askja tók árið 2005 við Mercedes-
Benz umboðinu af Ræsi, sem hafði
haft það um árabil. Þá keypti Askja
nýlega lager Ræsis og var húsnæðið
að Krókhálsi selt rekstrarfélagi, sem
mun leigja það Öskju og Kia.
Hinn 31. júlí síðastliðinn var sagt
frá því í Morgunblaðinu að 57 starfs-
mönnum Ræsis hefði verið sagt upp,
þar af 8 sumarstarfsmönnum. Leifur
Örn Leifsson, framkvæmdastjóri
Öskju, segir fyrirtækið í viðræðum
við starfsmenn Ræsis og vonist það
Í HNOTSKURN
» Ræsir var stofnaður árið1942 og var um áratuga-
skeið með umboð Mercedes-
Benz á Íslandi.
» Askja hóf starfsemi hinn1. mars 2005 þegar félagið
tók við umboðinu af Ræsi.
» Askja er systurfélag ogKia dótturfélag Heklu hf.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALAN lækkaði um
0,69% í Kauphöll Íslands í gær og
stóð hún í 4.227,58 stigum við lok-
un markaða. Eik banki lækkaði um
12,45%, Atorka um 5% og Exista um
3,73%. Össur hækkaði hins vegar
um 0,55% og Icelandair um 0,51%.
Gengi krónunnar styrktist um
0,06% í gær. Gengi bandaríkjadals
er 82,93 krónur. bjarni@mbl.is
Lækkun í kauphöllinni
● TAP VBS fjár-
festingarbanka
nam tæplega
871 milljón króna
á fyrstu sex mán-
uðum ársins. Á
sama tímabili í
fyrra nam hagn-
aður bankans
1.114 milljónum
króna. Eigið fé,
samkvæmt árs-
hlutareikningi, er um 7,1 milljarður
og CAD eiginfjárhlutfall 16,9%.
Bankinn færði varúðarfærslu sem
nam 765 milljónum króna vegna
mögulegrar virðisrýrnunar útlána.
Einnig voru óskráðar eignir færðar
niður um tæplega 400 milljónir
króna, að því er kom fram í tilkynn-
ingu frá bankanum. bjarni@mbl.is
Tap VBS nam
871 milljón króna
Jón Þórisson, fram-
kvæmdastjóri VBS.
● HAGNAÐUR námarisans Rio Tinto
nam 5,7 milljörðum Bandaríkjadala
(andvirði um 470 milljarða króna) á
fyrri helmingi ársins og er það aukn-
ing upp á 55% frá sama tímabili í
fyrra. Það er helst mikil verðhækkun
á hrávörum á tímabilinu sem hjálpað
hefur fyrirtækinu, þá hefur eftirspurn
eftir framleiðsluvörum fyrirtækisins
aukist mjög í ríkjum eins og Kína og
Indlandi. Hagnaður á hlut nam 5,4
dölum og jókst um 114% frá sama
tíma í fyrra.
Stjórn Rio Tinto áréttaði jafnframt
höfnun sína á yfirtökutilboði BHP
Billiton og sagði Billiton meta Rio
Tinto of lágt.
Hagnaður Rio Tinto
eykst um 55%
SIÐANEFND norska blaðamanna-
félagsins gagnrýndi í gær norska
dagblaðið Dagens Næringsliv fyrir
vinnubrögð blaðsins við undirbúning
fréttar um Kaupþing, sem birtist 10.
maí síðastliðinn. Í fyrirsögn á forsíðu
stóð „Kúnnarnir flýja“ og taldi
Kaupþing að fyrirsögnin ætti ekkert
skylt við efni fréttarinnar, sem vísað
var til í blaðinu. Taldi Kaupþing um-
fjöllun blaðsins skaðlega bankanum,
auk þess sem hún hafi verið byggð á
ósönnum blaðafréttum og tölum sem
DN hafi verið ljóst að væru úreltar.
Tók nefndin undir sjónarmið
Kaupþings og gagnrýndi Dagens
Næringsliv fyrir vinnubrögð þess við
undirbúning fréttarinnar og að fyr-
irsögn á forsíðu hafi verið röng.
Nefndin ákvað einnig að Dagens
Næringsliv skyldi birta niðurstöð-
una í heild í blaðinu.
Þótti DN hafa brotið gegn 4.4
grein siðareglna norska blaða-
mannafélagsins, þar sem segir að
fyrirsagnir og tilvísanir megi ekki
ganga lengra en megintexti greinar
gefi tilefni til. bjarni@mbl.is
Kaupþing vann
fyrir siðanefnd
Vinnubrögð norsks fjölmiðils gagnrýnd
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
TAP Atorku Group á fyrri helmingi ársins nam 8,7
milljörðum króna, samanborið við 226 milljóna
króna tap á sama tímabili í fyrra, og má aukn-
inguna að miklu leyti rekja til veikingar krónunn-
ar á tímabilinu. Þá hafa skráðar eignir félagsins
lækkað í verði.
Tap móðurfélagsins nam á sama tíma 3,9 millj-
örðum króna, en á fyrri helmingi síðasta árs var
ríflega 6 milljarða króna hagnaður á rekstri móð-
urfélags Atorku.
Eigið fé móðurfélagsins var 17,2 milljarðar
króna í lok júní og eiginfjárhlutfall um 30,2%.
Í tilkynningu segir að lausafjárstaða félagsins
sé áfram góð og að handbært fé og óádregnar
lánalínur hafi numið rúmum átta milljörðum
króna í lok júní. Gengisvarnir, sem ætlað er að
verja fjárfestingar félagsins fyrir sveiflum á gjald-
eyrismarkaði koma fram í samstæðureikningnum
við veikingu krónunnar.
Plastframleiðsla Atorku, sem fer fram undir
merkjum Promens, var eina deild samstæðunnar
sem skilaði hagnaði á fyrri helmingi ársins og nam
hann 292 milljónum króna. Ríflega 11,1 milljarðs
króna tap varð á fjármálastarfsemi fyrirtækisins
og 59,2 milljóna króna tap varð á byggingarstarf-
semi þess.
Eignir Atorkusamstæðunnar voru 114,6 millj-
arðar króna í lok júní og höfðu aukist um 10,5% frá
áramótum. Sölutekjur jukust um tæpa 11 millj-
arða frá sama tímabili í fyrra og voru á fyrri helm-
ingi þessa árs 44,6 milljarðar króna.
Tap Atorku eykst
Samstæða Atorku Group rekin með 8,7 milljarða
króna tapi, en móðurfélagið tapar 3,9 milljörðum
Morgunblaðið/Kristinn
Atorka Tapið er sagt afleiðing veikingar krón-
unnar og lækkunar á skráðum eignum félagsins.
KOSTNAÐUR
banka og fjár-
málafyrirtækja
við fjármögnun
með útgáfu
skuldabréfa hef-
ur ekki verið
meiri síðan á tí-
unda áratug síð-
ustu aldar, að
því er segir í
Financial Times.
Segir í greininni að margt bendi
til þess nú að yfirstandandi
hremmingar á fjármálamörkuðum
fari versnandi. Fólk hafi áhyggjur
af fjárhagslegu heilbrigði banka-
stofnana, fjölgun vanskila á lánum
og versnandi ástandi í efnahags-
málum almennt.
Þetta allt geri það að verkum að
ávöxtunarkrafa á skuldabréf hefur
hækkað umtalsvert, sem þýðir að
fjármögnunarkostnaður hækkar
fyrir útgefendur bréfanna, banka
og fjármálafyrirtæki.
Tryggingarálagið hækkar
Skuldatryggingarálag á skulda-
bréf bandarískra fjárfesting-
arbanka hefur hækkað umtalsvert
og hefur ekki verið hærra síðan á
tíunda áratugnum. Í Evrópu og As-
íu er sömu sögu að segja og hefur
álagið ekki verið hærra í tíu ár.
Einn þeirra þátta sem fjárfestar
hafa áhyggjur af er framtíð hálf-
opinberu íbúðalánasjóðanna
bandarísku, Fannie Mae og
Freddie Mac, og áhrif þeirra á
hagkerfið í heild sinni.
bjarni@mbl.is
Kostnaður
ekki meiri
í tíu ár
!
"#$%& '())
!
" #
$
%
&'()*
& + ,- ./-
0
12
'
'3.
.4
2
*5
/
62
62,,
7 ,
8 2 8
,/
!
"
7,
6
, 9
" & ;<=>?@AA
;A;B>C@=B
CC?D>>?A
;@=A=A@=B
>>>>>?@<D
;>C@>C>?
;AD<DA<>
;?B@<C;@?C
CB<?>D=?C
?;@;?<@
;<C;@@C<
=CDD=A<A
D>;>B@=
A
C=A@A>
<CBA@<B
CADD>=B
+
+
+
+
>B;@AAAA
+
+
BEBD
?E;A
CBE=A
@E@>
;?EC?
;>E;@
;DE@A
@A?EAA
C<E=A
=?E?A
<E??
DE<@
DAEBA
CA;EAA
;@CAEAA
CCDEAA
;?>EAA
+
+
+
+
<=;?EAA
;AEAA
+
BE@C
?E;?
CBED?
@E@=
;?E<?
;>E<A
;DE=?
@ABEAA
C<EDA
=BECA
<EBA
DE>A
D;E<A
CA>EAA
;@C=EAA
C<CEAA
;??EAA
C;EAA
CEAA
+
=E?A
<=@AEAA
;AE?A
>E?A
./
,
<
C>
@
>;
>=
<
@
BA
;D
>
@
;@
<
+
C
?
@
+
+
+
+
>
+
+
F
, ,
CB=CAA=
CB=CAA=
CB=CAA=
CB=CAA=
CB=CAA=
CB=CAA=
CB=CAA=
CB=CAA=
CB=CAA=
CB=CAA=
CB=CAA=
CB=CAA=
CB=CAA=
CA=CAA=
CB=CAA=
CB=CAA=
CB=CAA=
;B@CAA=
C?=CAA=
B;CCAA@
<BCAA=
CB=CAA=
;>=CAA=
@<CAA=
)%G )%G
H
H
)%G & G
H
H
F
1 I
*
H
H
.6&
F
H
H
)%G ';?
)%G >A
H
H
● HREIN raunávöxtun lífeyrissjóð-
anna, þ.e. ávöxtun umfram verð-
bólgu, lækkaði töluvert á milli ára og
var um 0,5% á árinu 2007 saman-
borið við um 10% árið 2006. Um
13% aukning var hins vegar á eign-
um lífeyrissjóðanna á milli ára og
námu heildareignir þeirra tæplega
1700 milljörðum króna samanborið
við um 1500 í árslok 2006. Sam-
svarar þetta um 7% raunaukningu
miðað við vísitölu neysluverðs. Þetta
kemur fram í skýrslu Fjármálaeftir-
litsins um ársreikninga lífeyrissjóða
fyrir árið 2007. bjarni@mbl.is
Raunávöxtun lífeyris-
sjóða dregst saman
MJÖG dregur úr hagvexti í Dan-
mörku á næstu misserum samkvæmt
hagspá, sem birtist í fjárlagafrum-
varpi dönsku ríkisstjórnarinnar fyrir
næsta ár. Er gert ráð fyrir því að
verg landsframleiðsla aukist um
1,1% í ár og 0,5% á því næsta.
Þetta er í annað skipti sem hag-
vaxtarspáin er lækkuð í Danmörku. Í
upphafi ársins var gert ráð fyrir
1,4% hagvexti í ár og 1% á næsta ári.
Í maí var spáin endurskoðuð í 1,2% í
ár og 0,7% á næsta ári. Hagkerfið
dróst saman um 0,6% á fyrsta fjórð-
ungi samanborið við síðasta ársfjórð-
ung ársins 2007. Atvinnuleysi í Dan-
mörku var 1,6% í júní, samkvæmt
opinberum mælingum, og hefur aldr-
ei verið minna. bjarni@mbl.is
Dregur úr
hagvexti