Morgunblaðið - 27.08.2008, Blaðsíða 21
matur
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 21
Eftir Heiðu Björgu Hilmisdóttur
ÞAÐ þarf alls ekki að vera flókið að
gera smávegis sultu.
Mér finnst þægilegt að þvo
krukkur undir sultuna í upp-
þvottavél og taka þær þaðan meðan
þær eru enn heitar, þá eru þær
tandurhreinar.
Önnur leið er að hita vatn í hrað-
suðukatli og hella í krukkurnar og
yfir lokin í skál. Hella svo úr skálinni
á sigti og hella úr öllum krukkunum
áður en sultan eða hlaupið er sett í
þær. Sumir hita líka krukkur í ofni,
það gildir bara að finna sína leið.
Rifsberjahlaupið
hennar mömmu
Þetta er klassísk uppskrift að rifs-
berjahlaupi sem er ótrúlega fljótleg.
Hún heppnast alltaf ef passað er að
sjóða alls ekki lengur en 3 mínútur.
Ef einhver er óöruggur má auðvitað
nota sultusykur sem fæst frá Dan-
sukker en í honum er pektín sem
tryggir að sultan hleypur.
1 kg rifsber
1 kg sykur
Sett í pott og tími tekinn frá því
að berin fara að sjóða. Þegar 3 mín-
útur eru liðnar er sett sigti yfir
tandurhreina skál og berin síuð frá
hlaupinu. Þrýstið létt ofan á berin til
að fá sem mest af hlaupi úr þessu.
Hellið „sósunni“ í hreinar krukkur
og lokið strax.
Sólberjasulta
2 kg sólber
800 g hrásykur
1 blátt bréf sultuhleypir
Hreinsið ber frá stilkunum og
skolið á sigti og setjið í pott ásamt
sykri og sjóðið saman í um það bil 10
mínútur. Blandið sultuhleypinum
saman við smá auka sykur og
dreifið yfir pottinn og hrærið sam-
an við. Látið sjóða í eina mínútu og
setjið þá í hreinar krukkur og lok-
ið strax.
Rabarbara-chutney
8 dl rabarbari í bitum
2 dl plómur í bitum
2 laukar
6 dl hrásykur
1 tsk. kryddpipar
3 stjörnuanís bitar/stjörnur
3 msk. eplaedik
¾ dl vatn
Skerið rabarbara, plómur og
lauk í bita og setjið í pott ásamt
sykri, kryddi og ediki. Látið sjóða
án loks við vægan hita í um það bil
40 mínútur. Setjið í hreinar krukk-
ur og kælið.
Passar frábærlega með lamba-
læri, eða hrísgrjónarétti ásamt
sýrðum rjóma.
Sólberja- og
döðlusulta
1 kg sólber
2 rauð chili
200 g döðlur
400 g sultusykur
Hreinsið ber frá stilkunum og
skolið á sigti og setjið í pott. Sker-
ið chili í tvennt og hreinsið kjarn-
ana út og saxið smátt og setjið
saman við berin. Skerið döðlurnar
smátt og setjið einnig saman við
ásamt sykrinum. Sjóðið allt í 10
mínútur og ausið á hreinar krukk-
ur. Gott ofan á brauð og með villi-
bráð.
Morgunblaðið/Sverrir
Morgunblaðið/Kristinn
Það er gaman að sulta
Nokkrar hugmyndir að ávaxtamauki
til að gleðja bragðlaukana í vetur
Raðið krukkunum á bakka
og ausið í þær með ausu, þá er
lítil hætta á að brenna sig.
Kælið brunann strax hins
vegar ef einhver fær sultu á
fingurinn.
Lokið krukkunum strax og
búið er að ausa, þá eyðist allt
súrefni í krukkunni og inni-
haldið geymist lengi.
Takið smávegis frá á lítinn
disk eða í litla skál, kælið
strax og smakkið, það er svo
gaman.
Allt sem er sultað er best
nýtt en hins vegar geymist
sulta þess vegna í mörg ár. Því
meira sem sykurinnihaldið er
því lengur geymist sultan.
Það þarf ekki að nota nein
rotvarnarefni í sultur en það
má nota slíkt ef maður vill. Þá
fæst efni sem heitir bensóat og
á að vera skaðlaust.
Sultuhleypir er pektín sem
finnst náttúrulega í ávöxtum
og berjum, stundum þarf þó að
bæta við meira pektíni en er í
berjunum til að fá til dæmis
hlaup til að hlaupa. Meira er
af pektíni í minna þroskuðum
berjum og því er gamalt og
gott ráð að tína græn ber með
í bland til að fá þykkari sultu/
hlaup.
Sulturáð
NÚ GETA útivinnandi foreldrar
lagt samviskubitið á hilluna. Ný
rannsókn sýnir að krílin okkar eiga
frekar á hættu að verða of feit ef
þau dvelja lungann úr deginum
heima hjá mömmu í stað þess að
vera á leikskóla.
Danskur vísindamaður, Jane
Greve, hefur komist að því að minni
hætta sé á að börn fitni séu þau á
leikskóla í stað þess að vera heima
hjá mömmu. Politiken.dk greinir frá
doktorsrannsókn hennar þar sem
gögn frá 6.000 mæðrum barna
fæddum 1995 voru skoðuð. Að teknu
tilliti til þátta á borð við félagslega
stöðu, menntun og fæðingarþyngd
kom greinilegur munur í ljós eftir
því hvort móðirin var útivinnandi
eða ekki. Atvinnuþátttaka feðra
virðist hins vegar ekkert hafa að
segja fyrir vaxtarlag barnanna.
Þegar barnið kemst á skólaaldur
eru meiri líkur á að það hafi þegar
fengið á sig nokkur aukakíló vinni
mamma þess hlutastarf. Greining
Greve sýnir raunar að það séu 3%
minni líkur á því að barn glími við
offitu þegar það er sjö ára vinni
móðir þess fulla vinnu utan heimilis,
þ.e. 37 tíma á viku eða meira.
Bent er á að börn mæðra sem
vinna hlutastarf séu meira heimavið
en jafnaldrar þeirra og þar gildi
aðrar reglur en á leikskólanum.
„Margir skólar hafa ákveðna matar-
stefnu, sem felur í sér að neysla á
sætum og fitandi vörum á borð við
kökur, sælgæti og gos er takmörk-
uð. Þar fyrir utan eru börnin tals-
vert úti að leika sér á leikskólanum.
Sennilega er það þetta tvennt sem
hefur jákvæð áhrif á þyngd þeirra,“
segir Greve. „Heima getur verið erf-
iðara að setja börnunum mörk. Þá
er hættara við því að þau séu stöð-
ugt nartandi auk þess sem þau hafa
aðgang að kyrrsetuafþreyingu á
borð við sjónvarp og tölvur.“
Grennri
börn í leik-
skóla
Reuters
Aukakíló Leikskóladvölinni fylgir
oft meiri hreyfing en heima fyrir.
Only 18 lots left to build your new dream
Orlando Vacation Home!
Choose a 4 ,5 or 6 bedroom home, low down payment and
financing available!
Hurry and call your Orlando home experts today...
LAST CHANCE
Windsor Hills Resort
Thorhallur Gudjonsson at
Gardatorg - 896 8232
Meredith Mahn in Orlando at
(321) 438 5566
www.LIVINFL.com