Morgunblaðið - 27.08.2008, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 27
MINNINGAR
✝ Sigrún Guð-mundsdóttir
fæddist í Lauga-
landi í Stafholt-
stungum í Mýra-
sýslu 23. jan. 1915.
Hún lést 18. ágúst
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Guðmundur Krist-
jánsson frá Grísa-
tungu í Borgarfirði
og Guðrún Jóns-
dóttir frá Hraun-
holti á Snæfells-
nesi. Systkini
Sigrúnar eru Kristinn, f. 11.
ágúst 1903, d. 1. des 1986, Guð-
laugur Sigurbjörn, f. 25. júní
1907, d. 22. júlí 1986, Guðrún
Margrét, f. 20. júní 1909, d. 7.
júlí 2000, Sigurbjörg, f. 9. ágúst
fædd, og d) Már, f. 19. ágúst
1939, kvæntist Jóhönnu Krist-
jánsdóttur, f. 5. sept. 1940, d. 14.
okt. 2007, þau eignuðust fjögur
börn.
Sigrún giftist Þórði Ólafssyni,
f. 24. maí 1906, d. 18. maí 1975 í
Grindavík og eignaðist með hon-
um fjögur börn, þau eru a) Gylfi,
f. 4. okt. 1943, kvæntist Hrönn
Kristjánsdóttur, þau eignuðust
tvö börn, þau skildu, kvæntist
Ásrúnu Ásgeirsdóttur, þau eign-
uðust þrjú börn, b) Dagný, f. 10.
mars 1945, d. 12. mars 1982, gift-
ist Reyni Ríkarðssyni, þau eign-
uðust þrjú börn, c) drengur
fæddur andvana, og d) Rúnar
Þór, f. 17. des. 1951, kvæntist
Björk Birkisdóttur, þau eign-
uðust tvö börn, þau skildu,
kvæntist Margréti Guðfinns-
dóttur, þau eignuðust tvö börn.
Síðustu æviárin bjó Sigrún með
Jóni Bjarnasyni póstburðar-
manni.
Útför Sigrúnar fer fram frá
Grindavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
1910, d. 1911, Krist-
ján, f. 2. desember
1911, d. 16. apríl
1979, og Lilja, f. 21.
maí 1920, d. 14.
febrúar 2004.
Sigrún giftist Guð-
mundi Guðmunds-
syni, f. 18. maí 1905,
d. 14. sept. 1981 í
Vestmannaeyjum og
eignaðist með hon-
um fjögur börn, þau
eru a) Fanney, f. 22.
maí 1934, giftist
Jóni Hólmgeirssyni,
þau eignuðust fimm börn, b)
Hrefna, f. 11. sept. 1936, giftist
Guðbrandi Eiríkssyni, c) Unnur,
f. 10. júlí 1938, d. 25. apríl 1997,
giftist Ólafi Ágústssyni, þau eign-
uðust fimm börn, tvö andvana
Fyrsta minning mín um þig er
þegar ég var að klifra upp stigann
í Bræðratungu til þín með pelann
hennar Margrétar systur og þegar
upp var komið vildi ég fá hunda-
kex með pelanum.
Þær voru ófár stundirnar sem
ég átti með ykkur Þórði afa uppi á
lofti, en fleiri urðu minningarnar
þegar þú fluttir til Reykjavíkur.
Ég kom reglulega við hjá þér þeg-
ar ég var að læra hárgreiðslu í
borginni, var það venjulega til að
fá eitthvað að borða því ekki voru
nemalaunin há. Þú gafst mér mikið
af sjálfri þér og alla tíð var ég
meira en velkomin og þú sýndir
mér alltaf mikla ást, aldrei heyrði
ég þig segja styggðaryrði um aðra
heldur gerðir gott úr öllu. Þegar
ég fór svo að búa og eignast börn
þá varð samband okkar dýpra,
sérstaklega þegar Sólrún Alda
dóttir mín fæddist því hún er fyr-
irburi og við fæðingu hennar leið
þér mjög illa og á fjórða degi
fékkstu leyfi til að koma á vöku-
deildina og sjá hana. Eftir þá
skoðun sagðir þú mér að hafa eng-
ar áhyggjur, það amaði ekkert að
þessu barni, hún væri hreystin
uppmáluð og það kom á daginn.
Þegar ég svo gifti mig þá færðir
þú mér sálma sem þú hafðir samið
fyrir mig á þessum degi og geymi
ég þá eins og gull. Þú hafðir þá
náðargáfu að geta sett saman fal-
leg ljóð, þetta vissu ekki margir og
því miður skrifaðirðu ekki ljóðin
þín niður. Þú kynntir mig fyrir
ljóðalestri og met ég það mikils í
dag, því ljóð veita mér ró og frið
og stundum reyni ég að setja sam-
an ljóð eða örsögur, sem ég geymi
vel. Þegar ég skildi leitaði ég mik-
ið til þín með tvö ung börn mín. Þú
varst eins og vin í eyðimörkinni,
þú hvattir mig áfram en skamm-
aðir mig einnig ef þér leist ekki á
það sem ég var að gera.
Mikið var ég heppin að fá að
hafa þig, elsku amma, í mínu lífi
og barna minna, en núna ertu far-
in og því fylgir bæði sorg og gleði.
Sorg vegna þess að ég fæ ekki að
búa til fleiri minningar með þér og
gleði yfir öllum þeim stundum sem
við áttum saman.
Alltaf átti ég skjól hjá þér og
alltaf gat ég leitað til þín með ráð
um lífið, tilveruna og ástina, ekki
var ég þó alltaf sammála þér en á
endanum reyndust ráð þín góð og
gild. Eins og þegar ég hitti Pétur
og var að segja þér og Jóni sam-
býlismanni þínum frá honum, þá
sagðir þú að ég skyldi koma með
hann og þið skylduð segja mér
hvort hann væri rétti maðurinn
fyrir mig. Og viti menn, eftir smá-
stund hallaðir þú þér að mér
amma og sagðir mér að halda í
þennan, hann væri sá rétti. En við
hann sagðirðu „ætli þú verðir ekki
búinn að skila henni fyrir jólin“ og
svo brostir þú eins og þú vissir
eitthvað meira en ég. Við trúlof-
uðum okkur síðan heima hjá þér á
Skúlagötunni 20. nóv. 2005 og þú
varst svo glöð. Þegar við fórum
var það þitt fyrsta verk að hringja
í pabba og láta hann vita hvað við
höfðum verið að gera heima hjá
ykkur Jóni. Í mínum huga kom
ekkert annað til greina en að trú-
lofa mig heima hjá þér því ég vissi
að ekki myndir þú ná að koma í
brúðkaupið mitt. En nú ertu farin
á braut og ég sit hér með allar
þessar frábæru minningar um
hlátur þinn svo léttan og skemmti-
legan og þinn sérstæða húmor.
Eins og þú sagðir við okkur í febr-
úar þegar við komum til þín:
„Húmorinn er það eina sem ég á
eftir að allt annað er farið og þeg-
ar hann er farinn þá fer ég.“ Ég á
eftir að halda minningu þinni á
lofti með börnum mínum og manni
og núna kveð ég þig amma mín og
mundu það að ég elska þig.
Þórunn Alda.
Lít ég yfir liðin ár og ljúfa daga
fögur er þín friðarsaga
friðar njóttu um ævidaga.
Þú hefur fagra ræktað rós í ríki þínu
berðu í hlýju brjósti þínu
bestu þökk frá hjarta mínu.
Með þessum ljóðlínum sem faðir
okkar orti til Sigrúnar, í tilefni 90
ára afmælis hennar, viljum við
systkinin kveðja þessa kæru konu.
Hún kom inn í líf okkar fyrir rúm-
um 30 árum er hún hóf sambúð
með föður okkar Jóni Bjarnasyni.
Við systkinin þökkum góða sam-
veru liðinna ára. Hvíl í friði,
Bjarni, Guðbjörg og
Gunnhildur Gróa Jónsbörn.
Sigrún
Guðmundsdóttir
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari upp-
lýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er ekki
unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu ekki
lengri en 3.000 slög (stafir með bilum
- mælt í Tools/Word Count). Ekki er
unnt að senda lengri grein. Hægt er
að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim
sem kvaddur er virðingu sína án þess
að það sé gert með langri grein. Ekki
er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir
formáli, sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá, sem
fjallað er um, fæddist, hvar og hve-
nær hann lést, um foreldra hans,
systkini, maka og börn og loks hvað-
an útförin fer fram og klukkan hvað
athöfnin hefst.
Minningargreinar
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Jón G. Bjarnason
✝
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN ANDREA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Sólvallagötu 84,
Reykjavík,
lést á heimili sínu aðfaranótt 17. ágúst.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur
samúð og hluttekningu.
Umhyggja ykkar hefur gefið okkur styrk.
Kristinn Sv. Helgason, Eva Mjöll Ingólfsdóttir,
Guðmundur H. Helgason, Hallfríður Sveinsdóttir,
Helgi K. Helgason,
Andrea Kristinsdóttir,
Katrín Helga Guðmundsdóttir,
Kolbrún Dögg Sigurðardóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi og langafi,
HEIÐAR GEORGSSON,
Heiðarvegi 18,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn
24. ágúst.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn
2. september kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er vinsamlegast bent á Krabba-
meinsfélag Íslands.
Guðfinna Jóhannesdóttir,
Heiða Björk Heiðarsdóttir,
Nanna Heiðarsdóttir,
Karen Guðfinna Guðmundsdóttir, Bjarki Þórir Kjartansson,
Brynja Dögg Brynjarsdóttir, Eggert Þór Ólason,
Heiðar Aron Bjarkason,
Jenný Björk Bjarkadóttir,
Kjartan Þórir Bjarkason,
Sigurður Freyr Eggertsson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR,
Dvalarheimilinu Hlíð,
áður til heimilis að Smárahlíð 10,
Akureyri,
lést sunnudaginn 24. ágúst.
Jarðarförin auglýst síðar.
Laufey Sigurbjörnsdóttir,
Guðmundur Sigurbjörnsson, Ásdís Loftsdóttir,
Þorsteinn Sigurbjörnsson,
Gunnar Sigurbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR GUNNARSSON
frá Reykjum, Fnjóskadal,
Núpasíðu 2d,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnu-
daginn 24. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Glerárkirkju mánudaginn
1. september kl. 13.30.
Pálína Magnúsdóttir,
Gunnar M. Guðmundsson, Erna Gunnarsdóttir,
Þóra K. Guðmundsdóttir, Magnús Sævarsson,
Guðmundur Hafsteinsson, Karítas Jóhannesdóttir,
Sólrún Hafsteinsdóttir, Sigurður Jónsson,
Lára Hafsteinsdóttir, Fjölnir Sigurjónsson,
afabörnin og langafabörnin.
✝
Okkar kæra
GUÐBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR
andaðist fimmtudaginn 21. ágúst á dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð.
Útför hennar fer fram frá Eskifjarðarkirkju
föstudaginn 29. ágúst kl. 14.00.
Guðmundur, Eiður, Guðbjörn, Járnbrá
og aðrir aðstandendur.