Morgunblaðið - 27.08.2008, Page 32
32 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er miðvikudagur
27. ágúst, 240. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Og hann sagði við þá:
Hvíldardagurinn varð til mannsins
vegna og eigi maðurinn vegna
hvíldardagsins. (Markús 2, 27.)
Merkingar og upplýsingaskiltivoru næsta sjaldséð á ferð-
um um landið fyrir ekki svo löngu.
Nú er öldin önnur. Víða eru skilti
þar sem rakinn er sögulegur fróð-
leikur eða jarðfræði, gróðri og
dýralífi lýst. Ekki er lengur gert
ráð fyrir því að þekking á landinu
gangi í erfðir, heldur geti komið
sér vel að miðla upplýsingum
þannig að ferðalangurinn átti sig
betur á því sem fyrir augu ber.
x x x
Þau upplýsingaskilti, sem orðiðhafa á vegi Víkverja, hafa
yfirleitt verið hnökralaus, en
stundum verður mönnum þó á í
messunni. „Eyðibyggðin í Fjörð-
um á sér þúsund ára samfellda
sögu,“ stendur á skilti norður í
landi. Ætlunin var áreiðanlega að
segja eitthvað annað, en þetta var
útkoman.
x x x
Víkverji fór með fjölskyldunniað sjá myndina Wall-E í bíó
um helgina og hreifst af. Myndin
fjallar um lítið sorphreinsunar-
vélmenni, sem er eitt eftir á jörð-
inni, sem er orðin óbyggileg vegna
sóðaskapar mannsins. Fyrstu tutt-
ugu mínútur myndarinnar eru
listaverk. Varla er sagt aukatekið
orð, en frumleg efnistök og hug-
myndaauðgi bera þennan kafla
uppi og lyfta og sýna sérstöðu
framleiðandans, Pixar, í kvik-
myndagerð. Eins og einhver gagn-
rýnandinn benti á hefðu hugmynd-
irnar, sem koma fram í þessum
stutta kafla, dugað flestum öðrum
framleiðendum í margar myndir.
x x x
Það gerist heldur ekki á hverj-um degi að gerðar eru fyrir
börn myndir, sem broddur er í.
Wall-E er hvöss ádeila á það
hvernig maðurinn umgengst plán-
etuna sem hann á líf sitt undir.
Jafnt börn sem fullorðnir koma
hugsi út af þessari vel gerðu
mynd. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Reykjavík Hildur Lilja fædd-
ist 19. júní kl. 18.47. Hún vó
3.395 g og var 50 cm löng.
Foreldrar hennar eru Sonja
Sigurðardóttir og Trausti
Árnason.
Reykjavík Matthías Smári
fæddist 6. júní kl. 10.44.
Hann vó 3.920g og var 53 cm
langur. Foreldrar hans eru
Katrín Sigþórsdóttir Faulkes
og Alister Paul Faulkes.
Selfoss Bryndísi Jónu
Sveinbjarnardóttur og Har-
aldi Einari Hannessyni
fæddist dóttir 19. júlí . Hún
vó 3.385 g og var 49 cm
löng.
Reykjavík Íris Eva fæddist
19. júní 2008. Hún vó 14
merkur og var 51 cm löng.
Foreldrar hennar eru Maren
Rún Gunnarsdóttir og Óskar
Marinó Sigurðsson.
Nýirborgarar
Krossgáta
Lárétt | 1 letingja, 8 dul-
ið, 9 hljóðfærið, 10 að-
gæti, 11 trjágróðurs,
13 synja, 15 karlfugl,
18 uppgerðarveiki,
21 skúm, 22 borga,
23 rándýr, 24 skaplyndi.
Lóðrétt | 2 blóðsugan,
3 gera ríkan, 4 ávext-
irnir, 5 fingur, 6 foxillir,
7 elska, 12 nægilegt,
14 tré, 15 hamingju-
samur, 16 voru í vafa
um, 17 sögn, 18 listar,
19 snúa heyi, 20 krota.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kústs, 4 fimur, 7 lotin, 8 öngul, 9 der, 11 seig,
13 bann, 14 ætlar, 15 hass, 17 úlpa, 20 hné, 22 mælir,
23 tolla, 24 assan, 25 rósin.
Lóðrétt: 1 kólfs, 2 sótti, 3 sund, 4 fjör, 5 mugga, 6 rólan,
10 eklan, 12 gæs, 13 brú, 15 himna, 16 sulls, 18 lulls,
19 afann, 20 hrun, 21 étur.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
www.sudoku.com
© Puzzles by Pappocom
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. f4 exf4 3. Rf3 g5 4. h4 g4
5. Re5 Rf6 6. Bc4 d5 7. exd5 Bd6 8.
d4 Rh5 9. Rc3 De7 10. Be2 Rg3 11.
Hh2 Bxe5 12. dxe5 Dxe5 13. Dd3
Kd8 14. Dc4 Rh5 15. Bd2 f3 16. gxf3
Dxh2 17. O–O–O g3 18. d6 c6 19.
Bg5+ Ke8
Staðan kom upp í stórmeistara-
flokki Olomouc-skákhátíðarinnar í
Tékklandi sem lauk fyrir skömmu.
Alþjóðlegi meistarinn Martin Petr
(2451) frá Tékklandi hafði hvítt gegn
Svíanum Alex Smith (2427). 20.
d7+! Bxd7 21. De4+ Kf8 svartur
hefði orðið mát eftir 21… Be6 22.
Hd8#. 22. Bc4! Kg7 23. De5+ f6 24.
De7+ Kg6 25. Bf7+ Kf5 26. De4
mát.
Allir aðdáendur kóngsbragðs ættu
að fara vel yfir þessa skemmtilegu
og lærdómsríku skák.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Spilað til baka.
Norður
♠G92
♥ÁG
♦KD8
♣ÁKG105
Vestur Austur
♠K5 ♠63
♥105432 ♥K986
♦G1093 ♦Á742
♣62 ♣D94
Suður
♠ÁD10874
♥D7
♦65
♣873
Suður spilar 4♠.
Upp úr 1960 fóru flestir keppnis-
spilarar að nota þá reglu að spila út
þriðja eða fimmta hæsta gegn tromp-
samningum. Fljótlega kom í ljós að
skynsamlegt er að fylgja sömu reglu
inni í miðju spili, hvort sem verið er
að svara makker upp í sama lit eða
skipta yfir í annan.
Vestur spilar út ♦G og austur
drepur kónginn í borði og spilar tígul-
tvisti til baka, þriðja hæsta frá
ríkjandi lengd (því sem hann á eftir í
litnum). Sagnhafi drepur og svínar
fyrir ♠K. Vestur lendir inni og verður
nú að skipta yfir í hjarta strax og
sækja þar slag áður en sagnhafi fríar
laufið. En því skyldi vestur ekki
reyna að taka slag á tígul? Svarið
liggur í tígultvistinum. Sé það lægsta
spilið frá þrílit á suður ekki fleiri tígla
til.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þér þykir vænt um vini þína og
veitir þeim þá athygli sem þeir þarfnast.
Vertu næmur fyrir skapi fólks. Smá-blíða
frá þér gæti gert gæfumuninn.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú bíður ekki eftir að sjá hvað hinir
ætla að gera. Þú ert foringi. Verkefni
koma upp og sambönd verða til vegna
þinnar framtakssemi.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Breytingar eiga sér stað í
vinnunni. Sumum finnst það frábært,
öðrum hræðilegt. Þú sérð strax gott
tækifæri fyrir þig í nýju aðstæðunum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Loksins finnurðu þig í vissum að-
stæðum. Línan er samt fín og það er mik-
ilvægt að slaka ekki á um of. Vertu agað-
ur, skipulagður, sannur fagmaður.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú ert með hlutina algerlega á
hreinu. Þú manst nöfn, hjálpar fólki og
segir brandara. Þetta er vitnisburður um
frábæran persónuleika þinn.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Stundum er eins og hinn raunveru-
legi þú sért barn sem aldrei fullorðnaðist.
Þú ert ennþá varnarlaus og saklaus.
Vertu þar sem þú finnur fyrir öryggi.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Lífið þitt er líkast ævintýri þessa
dagana. Mundu að allir eiga sína útgáfu
af hamingju, sama endinum. Vertu opinn
og allt mun enda frábærlega.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú ert tilbúinn til að finnast
þú æðislegur. Komdu á stefnumótum.
Verðu gjafmildur við sjálfan þig. Þér líð-
ur kannski skringilega fyrst en svo
venstu dekrinu.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú ert ekkert of æstur að
bjóða fram hjálp því þú skilur ábyrgðina
sem felst í loforði. Það er rétt hjá þér að
vera óframhleypinn af öryggisástæðum.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Viðskiptavinir, yfirmenn, fjöl-
skyldumeðlimir, allir virðast þarfnast
þín. Það er vegna þess að þú ert ofurhetja
með skilningarvit skörp sem hnífur.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Stundum er í lagi að vera
sveigjanlegur (í gær) og stundum vill
maður ráða (í dag). Þessu kemurðu auð-
vitað á framfæri blíðlega með bros á
vörum.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú ert að leita að hjálp; þegar hún
berst fer það í taugarnar á þér. Þetta er
þitt tækifæri til að segja heiminum og
þér sjálfum: „Ég get séð um þetta sjálf-
ur“.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
27. ágúst 1729
Hraun rann í kringum kirkj-
una í Reykjahlíð í Mývatns-
sveit og síðan út í Mývatn. Þá
gaus í Leirhnjúksgígum en
Mývatnseldar hófust árið 1724
og stóðu með hléum fram í
september 1729.
27. ágúst 1914
Togarinn Skúli fógeti rakst á
tundurdufl á Norðursjó og
sökk, en mánuður var þá lið-
inn frá upphafi fyrri heims-
styrjaldarinnar. Fjórir úr
áhöfn togarans fórust en
þrettán björguðust.
27. ágúst 1946
Fyrsti bíllinn komst yfir Siglu-
fjarðarskarð. Þar með var ein-
angrun Siglufjarðar rofin, en
vinna við veginn hafði staðið í
ellefu ár. Vegurinn um
Strákagöng leysti Skarðsveg-
inn af hólmi rúmum tveimur
áratugum síðar.
27. ágúst 1951
Sýningarsalir Listasafns Ís-
lands í húsi Þjóðminjasafnsins
voru formlega teknir í notkun.
Listasafnið var stofnað árið
1884 og hús safnsins við Frí-
kirkjuveg vígt árið 1988.
27. ágúst 1952
Menntamálaráðherra lagði
bann við því að auglýsingar
um dansleiki yrðu birtar í
Ríkisútvarpinu. Tilgangurinn
var að hindra að leynivínsalar
vissu um fyrirhugaðar sam-
komur. Bannið „náði aldrei til-
gangi sínum og var til aðhlát-
urs eins“, sagði í bókinni
Útvarp Reykjavík.
27. ágúst 1970
Rauðu örvarnar sýndu listir
sínar við Reykjavíkurflugvöll.
„Nákvæmni og hæfni flug-
sveitarinnar þurrjós lýsing-
arorðaforða áhorfendanna, og
vakti óskipta aðdáun,“ sagði í
Morgunblaðinu.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist þá …
Í DAG fagnar Jón Högni Stefánsson fertugsafmæli
sínu. Þegar blaðamaður hefur samband við hann
er enn óráðið hvernig hann hyggst eyða deginum,
en Jón Högni telur til greina koma að fara á hrein-
dýraveiðar fyrir austan með félögum sínum. Að
öðrum kosti ætlar hann að hafa það rólegt á
heimili sínu í Vestmannaeyjum.
Jón Högni hefur frá unga aldri stundað sjó-
mennsku og hefur hann þannig verið á skipinu
Drangavík VE síðastliðin 15 ár. „Ef gömlu regl-
urnar hefðu haldið væri maður að komast á ald-
ur,“ bætir Jón Högni við og hlær. Engar sérstakar
afmælishefðir hafa myndast hjá Jóni, en honum er minnisstæður 18
ára afmælisdagurinn. „Þá var ég staddur úti á sjó, kokkurinn á skip-
inu trúði ekki að ég ætti afmæli og gaf mér saltfisk“, útskýrir Jón, en
honum var reyndar bætt það upp seinna um kvöldið með góðgæti.
Afmælisbarnið hefur áhuga á ljósmyndun og veiðum, en hann
veiðir aðallega gæsir og hreindýr. Ljósmyndun „fiktaði hann við“ sem
unglingur, eins og hann orðar það, en tvö til þrjú ár eru síðan hann
tók vélina upp að nýju. Sjá má afrakstur erfiðisins á vefsíðu Jóns
Högna, www.fotki.com/jonhogni.
Sjómaðurinn hefur ferðast víða innanlands í sumar og þá fer hann
einu sinni til tvisvar á ári til útlanda með sambýliskonu sinni, Stefaníu
Ársælsdóttur, og eru börnin oft líka tekin með. andresth@mbl.is
Jón Högni Stefánsson sjómaður fertugur
Afmælisdagurinn óráðinn
;)
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum um fæðingarstað
og stund, þyngd, lengd,
og nafn foreldra,
á netfangið barn@mbl.is