Morgunblaðið - 05.09.2008, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir,
annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Unu Sighvatsdóttur
unas@mbl.is
„AUÐVITAÐ voru þetta mikil von-
brigði,“ segir Guðlaug Einarsdóttir,
formaður Ljósmæðrafélags Íslands
(LMFÍ), þegar ljóst var að fyrsti
sáttafundur við samninganefnd rík-
isins eftir verkfall var árangurslaus.
Á fundinum lögðu ljósmæður m.a.
fram nýjar útfærslur á þeim hug-
myndum sem þær hafa áður boðið
fram en þær hlutu lítinn hljómgrunn
að sögn Guðlaugar. „Það gekk
hvorki né rak þannig að þetta er
ennþá stál í stál.“
Fæðingar á fyrsta verkfallsdegi
Fyrsta verkfall ljósmæðra skall á
eftir miðnætti á miðvikudag. Því lýk-
ur á miðnætti í dag en verður end-
urtekið í næstu viku, og svo hverri
viku út mánuðinn ef ekki semst. Á
Landspítalanum höfðu níu fæðingar
átt sér stað fyrir kvöldmat í gær og
gengu þær vel fyrir sig að sögn
læknis, þótt mikið álag hafi verið á
starfsfólki.
Þá megi allt eins búast við miklu
álagi um helgina ef vera skyldi að þá
komi upp minni háttar mál sem
verðandi foreldrar hafi slegið á frest
að leita lausna við í verkfallinu.
Guðlaug segir neyðarmönnun
nánast vera viðvarandi ástand á
sængurkvennadeildum og það
versni með hverju árinu. Með kjara-
baráttunni nú vilji þær afstýra því
að unnið verði undir neyðarmönnun
í framtíðinni sem ástandið í verkfall-
inu sé kannski aðeins forsmekkurinn
að. „Ég er ansi hrædd um það. Það
gilda engir undanþágulistar í fram-
tíðinni svo horfurnar eru ekki bjart-
ar ef við fáum ekki fleiri ljósmæður
til starfa.“
Verkfallinu fylgja óhjákvæmileg
óþægindi fyrir foreldra, ekki síst þar
sem sængurlegudeildin Hreiðrið er
lokuð. Ekki kom þó til þess í gær að
konur þyrftu að víkja óvenju-
snemma úr rúmi til að hleypa öðrum
að á sængurkvennagangi. Öll grunn-
þjónusta er áfram veitt þeim konum
sem fæða og hefur Ljósmæðra-
félagið einnig opnað stuðningslínu
(571-0000) þar sem verðandi mæður
geta leitað eftir stuðningi og upplýs-
ingum frá ljósmæðrum.
Stuðningurinn mikils virði
Guðlaug segir mikinn styrk í þeim
meðbyr sem ljósmæður finna fyrir
frá samfélaginu. „Okkur berst ótrú-
legur stuðningur úr öllum áttum og
við erum mjög þakklátar fyrir það,
ekki síst þeim skjólstæðingum okkar
sem komnar eru að fæðingu en
styðja okkur samt heilshugar. Þær
vita hvers virði þessi þjónusta er.“
Morgunblaðið/G.Rúnar
Samstaða Ljósmæður eru samtaka í baráttunni og fjölmenntu í Borgartúnið þar sem samningafundurinn stóð í gær frá kl.10 til um 15.30.
Verkfall stendur enn
Sú þjónustuskerðing sem fylgir verkfalli ljósmæðra í gær og í dag gæti verið for-
smekkur þess sem verður í framtíðinni ef engin endurnýjun verður í stéttinni
MAÐURINN sem lenti í reiðhjóla-
slysi á Akureyri á þriðjudagskvöld
liggur nú á gjörgæsludeild Land-
spítalans í Reykjavík en þangað var
hann fluttur til aðgerðar eftir slysið.
Líðan hans er stöðug, að sögn
læknis, en hann hlaut alvarlega
áverka á hálsi og mænu við fallið.
Maðurinn, sem er á fimmtugsaldri,
var á ferð um stíg í Kjarnaskógi
ásamt hópi hjólreiðamanna sem
stunda reglulegar hjólreiðaferðir
saman þegar hann stakkst fram fyr-
ir sig af hjólinu og fékk harða byltu.
Með í hópnum voru læknir og
hjúkrunarfræðingur og var því
brugðist skjótt við slysinu. Ekki
fengust nánari upplýsingar um
hversu alvarlega maðurinn er slas-
aður. unas@mbl.is
Hjólreiða-
maður á
gjörgæslu
Á ÖÐRUM degi
verkfalls ljós-
mæðra er nú
hvatt til
samstöðufundar
á Austurvelli í
dag. Í frétta-
tilkynningu seg-
ir að nú verði
þjóðin að láta í
sér heyra, en
ljósmæðrum
hefur þegar
borist stuðningur frá fjölmörgum
stéttarfélögum og samtökum. Að
samstöðunni standa m.a. Fem-
ínistafélag Íslands, Kvenréttinda-
félag Íslands, Læknafélag Íslands,
BHM, Kennarasamband Íslands,
LMFÍ og Félag íslenskra hjúkr-
unarfræðinga. Samstaðan hefst
kl. 12.15.
„Þjóðin styður
ljósmæður“
Nýfætt Ljósmæður
eru ómetanlegar.
Hver eru laun ljósmæðra í dag?
Meðalgrunnlaun ljósmæðra eru
306.000 krónur á mánuði, og þar
með 73.511 kr. lægri en meðalgrunn-
laun sex efstu félaga í Bandalagi há-
skólamanna (BHM)
Hvers krefjast þær?
Ljósmæður vilja fá laun leiðrétt í
samræmi við menntun og ábyrgð.
Krafan er að launin verði sambærileg
við laun annarra stétta með sam-
bærilegan bakgrunn, en til þess þarf
24-25% hækkun grunnlauna.
Sambærilegan bakgrunn?
Já, ljósmæður eiga að baki langt
nám, eitt það lengsta innan BHM, og
vilja fá það metið að verðleikum eins
og aðrar stéttir. Forkrafa inn í ljós-
móðurnám er 4 ára hjúkrunarnám á
BS-stigi. Að því loknu tekur við 2 ára
nám á meistarstigi til embættis-
prófs, alls 6 ára háskólanám.
Hvað er í verkahring ljósmæðra?
Ljósmæður annast fæðingarþjón-
ustu, mæðravernd og sængurlegu.
Hvert er næsta skref?
Fjögur tveggja daga verkföll verða
háð í september að óbreyttu og um
mánaðamót verður allsherjarverkfall
ef ekki hefur samist. Þá hafa fjöl-
margar ljósmæður sagt upp og taka
uppsagnirnar flestar gildi 1. október
S&S
MARGIR hafa ritað nafn sitt í minn-
ingarbók um herra Sigurbjörn Ein-
arsson biskup í Kirkjuhúsinu. Sig-
urbjörn verður jarðsunginn á
morgun. Ríkissjónvarpið sýnir frá
útförinni og hefst útsending kl.
13.45. Á sunnudagskvöld verður
sýndur þátturinn Herra Sigurbjörn
Einarsson biskup – Minning.
Morgunblaðið/Golli
Ritað í minningarbók um herra Sigurbjörn
ÖKUMAÐUR dráttarbíls slasaðist
þegar flutningabíll, sem reyndi
framúrakstur, rakst á hann við
Gufuá, norðan við Borgarnes, um
kl. sex í gærkvöld. Báðir bílar end-
uðu utan vegar og skemmdust tals-
vert að sögn lögreglu. Maðurinn
var fluttur á heilsugæslu Borg-
arness en er ekki alvarlega slas-
aður.
Slys varð í
framúrakstri