Morgunblaðið - 05.09.2008, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
DEATH RACE kl. 5:50D - 8D - 10:20D B.i. 16 ára DIGITAL
DEATH RACE kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára LÚXUS VIP
TROPIC THUNDER kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
SVEITABRÚÐKAUP kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 LEYFÐ
STAR WARS: CLONE WARS kl. 3:40D - 5:50D LEYFÐ DIGITAL
THE DARK KNIGHT kl. 5:40 - 8:30 - 10:20 B.i. 12 ára
KUNG FU PANDA kl. 3:40 LEYFÐ
THE MUMMY 3 kl. 8 B.i. 12 ára
WALL• E m/ísl. tali kl. 3:40D LEYFÐ DIGITAL
DEATH RACE kl. 8:10D - 10:30D B.i. 16 ára DIGITAL
DARK KNIGHT kl. 10:10 B.i. 12 ára
STAR WARS: CLONE WARS kl. 3:50D - 6D LEYFÐ DIGITAL
GET SMART kl. 3:40 - 5:50D - 8D - 10:10 LEYFÐ DIGITAL
WALL• E m/ísl. tali kl. 3:40D LEYFÐ DIGITAL
WALL• E m/ensku tali kl. 5:50 - 8 LEYFÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
STÆRSTA OPNUN Á ÍSLANDI FYRR OG SÍÐAR.
YFIR 67.000 MANNS
EIN BESTA MYND ÁRSINS!
"ÞETTA ER BESTA BATMAN-MYN-
DIN, BESTA MYNDASÖGUMYN-
DIN OG JAFNFRAMT EIN BEST
MYND ÁRSINS..."
-L.I.B.TOPP5.IS
"VÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ!
THE DARK KNIGHT ER STÓRKOSTLEG. THE
DARK KNIGHT ER SVO GÓÐ AÐ ERFITT ER AÐ
ÍMYNDA SÉR AÐ SÚ ÞRIÐJA GETI ORÐIÐ BETRI.
UNDIRRITAÐUR KIKNAÐI Í HNJÁLIÐUNUM...
Á NÝJUSTU BATMAN-MYNDINNI"
-T.S.K - 24 STUNDIR
THE DARK KNIGHT ER EIN BESTA KVIKMYND ALLRA TÍMA
SAMKVÆMT HINUM VIRTA VEF IMDB.COM
"EINFALDLEGA OF SVÖL,THE
DARK KNIGHT MUN SÓPA AÐ
SÉR ÓSKARSVERÐLAUNUM.
ÓTRÚLEGAR BARDAGASENUR
OG ÓVÆNTAR FLÉTTUR Í HAN-
DRITINU GERA MYNDINA
FRÁBÆRA."
-ÁSGEIR J. - DV
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNN
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
- L.I.B. topp5.is/Fréttablaðið
Saga George Lucas heldur áfram
SÝND Í KRINGLUNNI OG AKUREYRI
-TOMMI - KVIKMYNDIR.IS
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SPENNA, HASAR OG TÖFFARASKAPUR
EINS OG ÞAÐ GERIST BEST
ATH. STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA.
EKKI FYRIR BÍLVEIKA!
“ALVÖRU STRÁKAMYND SEM KREFST
ÞESS EINUNGIS AÐ ÞÚ SLÖKKVIR Á
HEILANUM OG TAKIR VEL Á MÓTI HÖRÐU
OFBELDI, FLOTTU KVENFÓLKI OG
HEILMIKLUM TÖFFARASKAP”
-TOMMI - KVIKMYNDIR.IS
Lýstu eigin útliti:
Breytist eftir skapi.
Hvaðan ertu?
Ég ólst upp í Reykjavík og á Seltjarn-
arnesi, er ættuð frá Húsavík en hef hins
vegar búið í New York og London síðustu
sjö árin.
Ertu búin að sjá Sveitabrúðkaup?
(Spyr aðalsmaður síðustu viku, Nína
Dögg Filippusdóttir leikkona)
Nei, en ég ætla að sjá hana áður en ég fer
aftur út!
Íslenskar konur í fimm orðum?
Ákveðnar, kaldhæðnar, gáfaðar, sjálf-
stæðar, meðvitaðar.
Íslenskir karlmenn í sex orðum?
Skilningsríkir, „kúl“, rólegir, þolinmóðir,
nýjungagjarnir, stemmarar.
Kynþokkafyllsti karlmaðurinn fyrir utan
maka?
Ég hef „secret crush“ á Steve Buscemi og
Jim Carrey …
Hvað uppgötvaðir þú síðast um sjálfa þig?
Að ég er ekkert sérstaklega góð í að ræða
formlega um hlutina, vil frekar fara á flug
og ræða hlutina með höndunum.
Uppáhaldsbíómynd?
Er hægt að eiga eina uppáhaldsbíómynd?
Það tekur mig viku að finna svarið við
þessari.
Á Maddid eitthvað skylt við Maddit
hennar Astrid Lindgren?
Já, okkar Maddid myndi líka stökkva nið-
ur af húsþaki með regnhlíf, þær eru báðar
„experimental“.
Hver er Maddid?
Stelpa sem verður til með tímanum. Hún
er búin til með „devised“ leikhúsaðferð og
greyið hefur því ekki verið fullsamin fyrir
leikrit þar sem hún hefur bakgrunn og
sögu, heldur er henni púslað saman af fjöl-
þjóða sviðslistahópi.
Hvað ætlaðirðu að verða þegar þú yrðir
stór?
Einhvern tímann ætlaði ég að verða rithöf-
undur, vinir mínir trúðu á mig því ég get
sett tunguna upp á nef og það á víst að
vera gott efni í skáld.
Hvaða plötu hlustarðu mest á þessa dag-
ana?
Ég hlusta rosalega mikið á Mugiboogie
með Mugison, ég ætti eiginlega bara að
þakka honum fyrir innblástur á æfingum!
En ég hlusta mikið á hann þegar ég er að
æfa Maddid-hreyfingar.
Hvaða bók lastu síðast?
Ég var að klára A Thousand Splendid
Suns, ég las fyrri helminginn á íslensku en
svo þurfti ég að skila bókinni til eigandans
á Íslandi og þurfti því að redda mér bók-
inni í London, hún breyttist aðeins við það.
London eða Reykjavík?
London á haustin og vorin, Reykjavík á
sumrin og um jólin!
Helstu áhugamál?
Ég var að kvarta um daginn yfir að hafa
ekki áhugamál sem er ekkert skylt verk-
efnum sem ég vinn, en ég var búin að
ákveða að tennis yrði mitt áhugamál. Ég
og kærasti minn vorum búin að finna tenn-
ispar í London, þau búin að kaupa spaðana
en ekki við. Það er hálft ár síðan við
ákváðum þetta.
Hvert er draumahlutverkið?
Þegar ég horfði á Jókerinn í Batman þá
var ég á iði marga daga á eftir. Mér finnst
mest spennandi að taka á skrítnum per-
sónum sem hafa áhugaverðar hreyfingar
og persónuleika, ég á erfiðara með „the
girl next door“-týpuna.
Hver yrði titillinn á kvikmynd um ævi
þína?
Líf í tösku eða Stelpan sem kunni ekki að
eiga gsm-síma.
Hver færi með aðalhlutverkið?
Hilda frænka.
Hvernig slettir þú úr klaufunum? Mér
finnst best að sitja í góðra vina hópi með
góðan mat og vín og hlæja þangað til ég fæ
illt í andlitið! En svo er líka gott að dansa!
Helst svolítið kjánalega í stórri veislu.
Hvers viltu spyrja næsta viðmælanda?
Gætirðu sleppt því að eiga gsm-síma?
VALA ÓMARSDÓTTIR
AÐALSKONA ÞESSARAR VIKU LEIKUR EINA HLUTVERKIÐ
Í EINLEIKNUM MADDID SEM SÝNDUR VERÐUR Í HAFNARFJARÐARLEIK-
HÚSINU Í KVÖLD OG ANNAÐ KVÖLD. HÚN BÝR ANNARS Í LONDON.
Maddid Vala segir hana stelpu sem verði til með tímanum.
Morgunblaðið/G.Rúnar