Morgunblaðið - 06.09.2008, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
TÓMAS Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri upplýs-
ingasviðs Seðlabankans, segir Seðlabanka Íslands
vinna eftir alþjóðlegum stöðlum Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins þegar viðskiptajöfnuður er reiknaður út.
Seðlabankinn var harðlega gagnrýndur í gær fyrir
skekkjulið í reikningunum upp á 184 milljarða króna.
Sá liður er hærri en sjálfur viðskiptahallinn upp á 128
milljarða króna.
Tómas sagði þennan skekkjulið vera til staðar í
hagtölum allra ríkja. Dæmið gengi hvergi upp eins og
gefið var í skyn að ætti að vera í gær.
Hann viðurkennir að skekkjan sé nokkuð stór núna
og hann hafi aldrei séð skekkjuliðinn jafn stóran.
„Það sem róar okkur er ef hann jafnast út yfir lengri
tíma. Vegna þess að þá bendir það til þess að upplýs-
ingar sem áttu að skila sér fyrr hafi skilað sér síðar,“
segir Tómas. Til dæmis vegi skekkjan nú upp nei-
kvæðan skekkju síðustu fjögurra ársfjórðungs-
uppgjöra.
Það er ekki einsdæmi að skekkjan í greiðslujöfnuði
landsins við útlönd sé svona mikil. Á fyrsta ársfjórð-
ungi 2006 var skekkjuliðurinn neikvæður um 167
milljarða en jákvæður um 140 milljarða króna á fyrsta
ársfjórðungi 2007. bjorgvin@mbl.is
Fylgja alþjóðlegum staðli
Morgunblaðið/Kristinn
Aðferðafræði Tómas Örn Kristinsson segir skekkjuna einnig hafa verið mikla á fyrsta ársfjórðungi 2006.
Skekkja í greiðslujöfnuði þekkist í flestum öðrum ríkjum
(
!
"
)#$
*%&
+,
!!"
"- % "'(
)'*
"+
, - )'*
++
./ , - )'*
!0
)'*
, 1
+ )'*
'* !+-
'2
3 4
5(
, - )'*
6
-73
+ )'*
8
1
+ 4
)'*
)'*
9:
;
<'*1* )'*
= )'*
. -
"
( "
"
( 9 9>
!+
+
?
+
@)< )'*
)'*
A / )'*
" *&
B " B*
,
)'*
-<
)'*
/0,
A+-
3
1 C +
3
6
-
##D*E$#*FDG
HE*HGD*D$F
G&*%GE*GHE
GFF*&#%*#DG
GE#*DG&*HHF
#$*DHE*$&&
%*GIF
G*H$$*&FE*HGG
EDF*D#D*EE$
FH*&HH*GIG
#&*EEI*FD&
GHH*&E&*%DG
$*%HF*EII
&
G*%%G*HF&
#*GF#*HHF
I*&&&*&%I
;
;
;
##$*DD$*&&&
;
;
HJ$F
%JE$
G$JG&
HJEG
#%JFH
#GJG$
G&JF&
HDHJ&&
GGJD&
IFJ$&
FJG#
IJH&
D%JG&
;
#$H$J&&
G#GJ&&
#$IJ$&
;
;
;
F%F$J&&
;
;
HJ$D
%JI&
G$J%&
HJE$
#%J%$
#GJ%F
G&J$&
HDEJ&&
GFJ&&
I%J$&
FJ$$
IJE&
D%J%&
;
#H$$J&&
GF%J&&
#H&J&&
G#JI&
;
IJ$&
F%I$J&&
#&J$&
$J&&
</ .+-
#I
G#
D
$H
GE
#G
#
#%E
$I
E
F
$F
F
;
$
%
#%
;
;
;
#G
;
;
33
.+*.
$*D*G&&I
$*D*G&&I
$*D*G&&I
$*D*G&&I
$*D*G&&I
$*D*G&&I
$*D*G&&I
$*D*G&&I
$*D*G&&I
$*D*G&&I
$*D*G&&I
$*D*G&&I
$*D*G&&I
G*D*G&&I
$*D*G&&I
$*D*G&&I
$*D*G&&I
#H*E*G&&I
G$*I*G&&I
F*H*G&&I
$*D*G&&I
#%*I*G&&I
E*F*G&&I
"
"
ÞETTA HELST ...
● Úrvalsvísitala Kauphallarinnar
lækkaði um 1,52% í gær, minnst
Norrænna kauphalla. Stendur hún
nú í 4.057,94 stigum. Eimskip lækk-
aði um 7,19%, Exista um 6,01% og
SPRON um 4,41%. Eina félagið á
Aðallista sem hækkaði í verði er Eik
Banki sem hækkaði um 3,77%.
Krónan veiktist í gær um 2,0% og
var lokagildi gengisvísitölunnar
164,9 stig. Gengi dollarans er nú
88,2 krónur. bjarni@mbl.is
Lækkun í Kauphöll
„VIÐ erum að breyta okkar við-
skiptamódeli og taka út óarðbæra
þjónustuþætti,“ segir Guðrún
Blöndal, framkvæmdastjóri Arion
verðbréfavörslu, sem hefur sagt
upp samningum um bakvinnslu
fyrir fjögur fjármálafyrirtæki.
Hún segir að Arion muni eftir
sem áður bjóða uppá vörslu- og
uppgjörsþjónustu þó ekki verði
boðið uppá verðbréfabakvinnslu.
Það þýðir að þessi
fjármálafyrirtæki, sem eru m.a.
HF Verðbréf, Saga Capital og
Auður Capital, munu þurfa að
finna aðrar leiðir í umsýslu verð-
bréfa fyrir viðskiptavini. Mun
verða stofnað nýtt félag í tengsl-
um við það eða verkefnin unnin
innanhúss eftir því sem Morgun-
blaðið kemst næst. Í því felst
nokkur kostnaður, meðal annars
við starfsmannahald og reksturs
tölvukerfis.
Arion er sjálfstætt starfandi
fyrirtæki í eigu Kaupþings. Guð-
rún segir 80 manns starfa við bak-
vinnsluna. Innan Glitnis og Lands-
bankans starfar annar eins hópur
við þetta.
Viðmælendur Morgunblaðsins
voru á því að hægt væri að hag-
ræða í rekstri bankanna ef sjálf-
stætt félag gæti boðið uppá þessa
þjónustu fyrir fleiri en einn banka.
bjorgvin@mbl.is
Arion hættir bak-
vinnslu verðbréfa
● Forstjóri Ice-
land-verslana
Baugs í Bretlandi
hefur rætt við
stærsta hluthafa
Woolworths um
möguleg kaup á
verslunum félags-
ins. Áður hefur
eigandinn,
Ardeshir Naghshineh, sagst styðja
stjórn Woolworths að hafna tilboði
Malcolms Walkers, forstjóra Iceland
sem leiðir málið í Bretlandi.
Financial Times segir óvíst hvert
viðræðurnar leiða en þær kveiki aft-
ur von um að fyrirætlanir Baugs
gangi eftir. bjorgvin@mbl.is
Baugur einu skrefi
nær Woolworths
● Kaupþing hefur keypt 15,6% hlut
í alþjóðlega olíufyrirtækinu Circle
Oil.. Kaupþing bauð 10 milljónir
punda, andvirði 1,5 milljarða króna
á gengi gærdagsins, í hlutinn í
hlutafjárútboði sem lauk nýlega.
Fjárfestingasjóður í eigu stjórn-
valda í Líbýu keypti fyrir 19 millj-
ónir punda og á eftir útboðið
29,7% hlut samkvæmt frétt
Reuters.
Í tilkynningu frá Circle Oil kemur
fram að féð verði notað til þess að
fjármagna olíu- og gasleit í Mar-
okkó, Túnis og Egyptalandi.
bjorgvin@mbl.is
Kaupþing í olíuleit
með Líbýumönnum
Eftir Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@mbl.is
„EFNAHAGSÞRÓUNIN er sem
stendur fremur ógnvænleg. Mikill
viðskiptahalli kallar á frekari lækkun
krónunnar sem er þá nauðsynleg til
þess að viðskiptajöfnuður náist og
þjóðin geti byrjað að jafna stöðu sína
gagnvart útlöndum. Slík gengislækk-
un mun koma illa við skuldsett heimili
og fyrirtæki,“ segir Gylfi Zoëga pró-
fessor í hagfræði við Háskóla Íslands.
Hann gagnrýnir tölulegar upplýs-
ingar um viðskiptajöfnuð við útlönd á
öðrum ársfjórðungi sem Seðlabank-
inn gaf út í fyrradag. „Mikilvægt er að
allar tölulegar upplýsingar opinberra
aðila séu sem réttastar og viðhlítandi
skýringar gefnar á því sem þar kem-
ur fram. Gríðarstórir skekkjuliðir eru
ekki til þess fallnir að auka traust á
Seðlabankanum og skortur á útskýr-
ingum á þróun efnahagsmála er til
þess fallinn að auka óvissu og ótta al-
mennings.“
Umdeild skekkja
Í tölum Seðlabankans er óútskýrð-
ur skekkjuliður upp á tæpa 184 millj-
arða króna. Sjálfur viðskiptahallinn
mældist 128 milljarðar króna.
Stærsta skýringin felst í neikvæðum
þáttatekjum, sem er hluti af við-
skiptajöfnuði, upp á 117,7 milljarða
króna. Á einföldu máli eru þátta-
tekjur tekjur Íslendinga af eignum
erlendis. Ef þær eru neikvæðar er tap
á þessum eignum.
Í kjölfar birtingar talnanna veiktist
krónan um 2% í gær og úrvalsvísital-
an lækkaði um 1,5%. Það var í takt við
það sem gerðist í Evrópu og á Norð-
urlöndunum í gær þar sem hluta-
bréfaverð féll víðast hvar um meira
en 2%.
Ásgeir Jónsson, forstöðumaður
greiningardeildar Kaupþings gagn-
rýnir mikla óvissu í tölum Seðlabank-
ans vegna skekkjuliðsins. Það sama
gerir Sigurjón Árnason, bankastjóri
Landsbankans.
Þeir sem Morgunblaðið ræddi við í
gær segja jafnvel betra að sleppa
birtingu þessara talna en að birta svo
ófullkomin gögn sem síðan verða
túlkuð á versta veg erlendis. Var
mörgum mjög heitt í hamsi vegna
þessa og sökuðu Seðlabankann um
óvönduð vinnubrögð. Aðrir segja
þetta benda til þess að stoðir hagkerf-
isins séu veikar og boði frekari þreng-
ingar í efnahagslífinu.
Slæm áhrif á eigið fé
„Efnahagsþróunin hefur síðustu
árin einkennst af gríðarlegum lántök-
um sem notaðar hafa verið til þess að
kaupa eignir innan lands og utan.
Eignaverð hafa verið mjög hátt er-
lendis og sérstaklega innan lands
vegna mikils framboðs af ódýru
lánsfé í heiminum. Fjármálakreppan
hefur síðan haft þau áhrif að
þessi verð hafa lækkað innan lands
og utan. Þetta hefur haft slæm áhrif á
eigið fé banka og fyrirtækja og er
ekki séð fyrir endann á þeirri þróun,“
bendir Gylfi á.
Hann segir tölur Seðlabankans
sýna þróun sem ekki komi á óvart en
tölfræðin líti hins vegar undarlega út.
„Tap af erlendri fjárfestingu verður
nú til þess að þáttatekjurnar verða
gríðarlega óhagstæðar þannig að þótt
vöruskiptahallinn hafi farið minnk-
andi undanfarið þá sjáum við ekki
fram á jöfnuð í viðskiptum við útlönd.
Tölfræðin er hins vegar undarleg
vegna þess að við höfum samtímis
halla á viðskiptajöfnuði og halla á
fjármagnsjöfnuði,“ segir Gylfi.
Þessir liðir eigi venjulega að stefna
hvor í sína áttina. „Það er að segja,
þegar maður lifir um efni fram þá
þarf að taka lán. En þetta kemur ekki
fram í gögnunum. Þess í stað er gríð-
arlega stór skekkjuliður upp á 184
milljarða sem er stærri en allur inn-
flutningur á vöru og þjónustu. Þetta
krefst nákvæmari skýringa til þess að
róa markaðina á næstunni.“
Ógnvænleg efnahagsþróun
Krónan veiktist um 2% í gær Frekari lækkun mun koma illa við skuldsett
heimili og fyrirtæki Skekkja í hagtölum Seðlabanka Íslands harðlega gagnrýnd
RABOBANK gaf
í gær út krónu-
bréf að andvirði
13 milljarða
króna. Líftími
bréfanna er 1 ár
og vextir 10,25%.
Þetta hafði þau
áhrif að krónan
veiktist minna en
ella í dagsbyrjun.
Umsjónaraðili
útgáfunnar er TD-Securities, sem
miðlar krónubréfunum til fjárfesta í
Evrópu. Greining Glitnis telur útgáf-
una vera til að mæta öðrum bréfum á
gjalddaga. bjorgvin@mbl.is
Beat Siegenthaler
hjá TDC.
Krónubréf
til eins árs
Vann gegn veikingu
krónunnar í gær
JÓHANN Ólafsson og Co., umboðs-
aðili OSRAM á Íslandi, undirritaði í
fyrradag samning við Ríkiskaup
um sölu á ljósaperum til liðlega 650
fyrirtækja og stofnana á vegum rík-
is og sveitarfélaga, sem í dag eiga
aðild að rammasamningakerfi Rík-
iskaupa, samkvæmt tilkynningu.
Samningurinn er til tveggja ára.
bjorgvin@mbl.is
Selja ríkinu
ljósaperur
„ÞAÐ er vel-
þekkt þumal-
puttaregla að
gjaldeyrisvara-
forðinn eigi að
duga fyrir inn-
flutningi 3 mán-
aða. Slíkur inn-
flutningur hefur
numið um 100
milljörðum
króna,“ bendir
Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, á í bloggpistli.
Hann segir athyglisvert að gjald-
eyrisviðbúnaður Seðlabankans dugi
núna fyrir 15 mánaða innflutningi.
bjorgvin@mbl.is
Athyglisverður
viðbúnaður
Ágúst Ólafur
Ágústsson
● Atvinnuleysi mælist nú 6,1% í
Bandaríkjunum og er þetta mesta at-
vinnuleysi þar í landi í fimm ár. Störf-
um fækkaði um 84 þúsund í ágúst
og þykir þetta merki um að efnahags-
líf landsins sé í miklum vanda.
Í júlí mældist atvinnuleysið 5,7%
og fækkaði störfum um 60 þúsund. Í
júní fækkaði störfum um 100 þús-
und.
Síðustu þrjá mánuði hefur því
störfum í Bandaríkjunum fækkað um
244 þúsund. Það hefur haft áhrif á
væntingar og hlutabréfaverð hefur
fallið síðustu daga. bjorgvin@mbl.is
Störfum fækkar um
244 þúsund frá júní