Morgunblaðið - 06.09.2008, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2008 31
MESSUR Á MORGUN
AKRANESKIRKJA | Æðruleysismessa kl.
20. Sálmar, hugleiðing og reynslusaga.
Þorvaldur Halldórsson leiðir söng. Kaffi.
AKUREYRARKIRKJA | Kvöldmessa kl.
20.30. Prestur sr. Svavar Alfreð Jónsson,
félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja, org-
anisti er Eyþór Ingi Jónsson.
ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
ustu kl. 11. Ice-step mun dansa og halda
köku- og kílómetrasölu eftir guðþjónustu.
Mýsla og músapési finna fjársjóð. Eftir
guðsþjónustuna verður haldinn fyrsti fund-
ur foreldra fermingarbarnanna. Kaffi, kex
og fylkisgulrætur verða í boði í safn-
aðarheimili kikjunnar. Nánari uppl. á
www.arbaejarkirkja.is
ÁSKIRKJA | Sunnudagaskóli og messa kl.
11. Börnin hefja messuna með fullorðna
fólkinu en fara síðan ásamt Hildi Björgu og
Elíasi niður í safnaðarheimili. Sókn-
arprestur prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt Margréti Svavarsdóttur djákna. Kór
Áskirkju syngur, organisti er Magnús Ragn-
arsson og Jóhanna Halldórsdóttir syngur
forna sálma. Kynningarfundur um ferming-
arstarf vetrarins verður haldinn strax að
messu lokinni. Fermingarbörn og foreldrar
þeirra hvött til að mæta.
ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl. 11. Um
tónlist sér Helga Þórdís Guðmundsdóttir og
prestur er sr. Bára Friðriksdóttir. Sunnu-
dagaskóli á sama tíma.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Prest-
ar sr. Bryndís Malla Elídóttir og sr. Gísli Jón-
asson. Kór Breiðholtskirkju syngur, org-
anisti er Julian E. Isaacs. Vænst er
þátttöku fermingarbarna og foreldra.
Barnastarf á sama tíma. Kaffisopi í safn-
aðarheimili eftir messu.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11.
Foreldrar eru hvattir til þátttöku með börn-
unum. Hljómsveit ungmenna leikur undir
stjórn Renötu Ivan. Guðsþjónusta kl. 14.
Kór Bústaðakirkju syngur, organisti Renata
Ivan. Heitt á könunni eftir messu. Prestur
sr. Pálmi Matthíasson.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
sr. Gunnar Sigurjónsson, organisti er Kjart-
an Sigurjónsson, kór Digraneskirkju leiðir
söng. Sunnudagaskólinn hefst í messunni
og börnin fara síðan í kapellu á neðri hæð
að njóta helgihalds sem er meira við þeirra
hæfi. Léttar veitingar í safnaðarsal eftir
messu. digraneskirkja.is
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Upphaf
barnastarfs, barnaefni sunnudagaskólans
kynnt. Sr. Þorvaldur Víðisson prédikar, sr.
Hjálmar Jónsson og sr. Anna Sigríður Páls-
dóttir þjóna fyrir altari. Dómkórinn syngur,
organisti er Marteinn Friðriksson.
FELLA- og Hólakirkja | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Skrúðganga, söngur og fjöl-
breytt dagskrá. Öll börn fá fjársjóðsbók að
gjöf frá kirkjunni. Þorvaldur Halldórsson
leiðir almennan söng, prestar sr. Þórhildur
Ólafsdóttir og sr. Svavar Stefánsson segja
nokkur orð. Æskulýðsfulltrúi kirkjunnar Sig-
ríður Rún Tryggvadóttir heldur utan um
stundina og meðhjálpari er Jóhanna F.
Björnsdóttir. Djús og kaffi eftir stundina.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli
kl. 11. Börnin fá afhent nýtt fræðsluefni.
Kvöldvaka kl. 20 sem helguð er minningu
Sigurbjarnar Einarssonar biskups og verða
sálmar eftir hann sungnir. Hljómsveit og
kór Fríkirkjunnar leiðir sönginn undir stjórn
Arnar Arnarsonar.
FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli kl.
11. Kennsla, söngur, sögur o.fl. Almenn
samkoma kl. 14, ath. breyttan tíma. Hreim-
ur H. Garðarsson prédikar og tónlist-
arhópur kirkjunnar leiðir lofgjörð. Barna-
starf kirkjunnar, fræðsla, söngur, frjáls tími
og snarl. Í lok samkomu verður boðið til fyr-
irbæna fyrir þá sem vilja. Að samkomu lok-
inni verður kaffi og samvera.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 14. Sunnudagaskóli, í vetur
verður fylgjast með leit systkinanna Músa-
pésa og Mýslu að fjársjóði. Sungnir verða
gamlir og nýir barnasálmar, sagðar helgi-
sögur og brúðuleikir, föndrað og leikið. Tón-
listastjórarnir Anna Sigga og Carl Möller
leiða tónlistina. Nanda og Anna Hulda
ásamt Hirti Magna sjá um dagskránna.
GARÐAKIRKJA | Messa kl. 14. Sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir predikar og þjónar fyrir
altari ásamt Nönnu Guðrúnu Zoëga djákna.
Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jó-
hanns Baldvinssonar organista. Boðið upp
á akstur frá Vídalínskirkju kl. 13.30, Jóns-
húsi kl. 13.35 og Hleinum kl. 13.40. Sjá
www.gardasokn.is
GRAFARHOLTSSÓKN | Messa í Þórð-
arsveig 3 kl. 11. Upphaf fermingarstarfa.
Kynningarfundur fyrir börn í Sæmund-
arskóla strax eftir messu. Prestur sr. Sigríð-
ur Guðmarsdóttir, organisti Hrönn Helga-
dóttir, kór Grafarholtssóknar syngur.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Vigfús Þór Árnason prédikar og þjón-
ar fyrir altari ásamt sr. Bjarna Þór Bjarna-
syni. Fundur með foreldrum og ferming-
arbörnum úr Foldaskóla, Hamraskóla og
Húsaskóla. Dregið verður um ferming-
ardagana. Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón
hafa Hjörtur og Rúna og undirleikari erStef-
án Birkisson.
Borgarholtsskóli. Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Sunnudagaskóli á sama tíma.
Sunnudagaskólinn og messur vetrarins
kynntar. Sr. Guðrún Karlsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari. Umsjón Gunnar og Díana,
undirleikari er Guðlaugur Viktorsson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10,
bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11, í
umsjá Lellu og unglinga úr kirkjustarfinu.
Messa kl. 11. Altarisganga, samskot til
ABC-barnahjálpar. Messuhópur þjónar,
kirkjukór Grensáskirkju leiðir söng, org-
anisti er Árni Arinbjarnarson, prestur er sr.
Ólafur Jóhannsson. Molasopi eftir messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Þórhallur Heimisson, org-
anisti Guðmundur Sigurðsson. Barbörukór-
inn leiðir söng. Barn borið til skírnar.
Sunnudagaskólinn hefst í guðsþjónust-
unni. Kaffi í safnaðarheimilinu í lok guðs-
þjónustu og sunnudagaskóla. Á mið-
vikudagsmorgun kl. 8 er gregorsk messa.
Prestur er sr. Þórhallur Heimisson, for-
söngvari Guðmundur Sigurðsson ásamt fé-
lögum úr sönghópnum Lux aeterna. Morg-
unverður í safnaðarheimilinu eftir stundina.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni Dalbú Hró-
bjartssyni og hópi messuþjóna. Félagar úr
Mótettukór Hallgrímskirkju syngja, org-
anisti er Björn Steinar Sólbergsson.
HÁTEIGSKIRKJA | Barnaguðsþjónusta og
messa kl. 11. Veitingar eftir messu. Erla
Guðrún og Páll Ásgeir. Organisti Douglas A.
Brotchie, prestur er Tómas Sveinsson.
HJALLAKIRKJA | Tónlistarmessa kl. 11. Sr,
Íris Kristjánsdóttir þjónar, félagar úr kór
kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng.
Erla Björg Káradóttir syngur einsöng, org-
anisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Barnaguðs-
þjónusta kl. 13. Bæna- og kyrrðarstund er
á þriðjudag kl. 18 og opið hús á fimmtudag
kl. 12. Nánar á hjallakirkja.is.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam-
koma kl. 20. Umsjón hefur Miriam Ósk-
arsdóttir, Brigader Ingibjörg Jónsdóttir tal-
ar. Biblíunámskeiðið „Að taka stöðu sína“
miðvikudag kl. 19, í umsjá Anne Marie
Reinholdtsen. Bæn og lofgjörð fimmtudag
kl. 20. Umsjón hefur Elsabet Daníelsdóttir
og Miriam Óskarsdóttir. Opið hús kl. 16-
17.30 þriðjudag til fimmtudags.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Brauðs-
brotning kl. 11. Ræðumaður er Jón Þór Eyj-
ólfsson. International church service in the
fellowship hall at 13PM. Almenn samkoma
kl. 16.30. Ræðumaður Helgi Guðnason,
Gospelkór Fíladelfíu leiðir lofgjörð. Barna-
kirkja fyrir börn á aldrinum 1-13 ára.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Fjölskyldu-
samkoma kl. 11, þar sem lítil stúlka verður
borin til skírnar. Samkoma kl. 20 með lof-
gjörð og fyrirbænum. Friðrik Schram predik-
ar. Einnig verður Heilög kvöldmáltíð.
www.kristur.is
KAÞÓLSKA KIRKJAN: | Péturskirkja, Ak-
ureyri | Messa kl. 11 og laugard. kl. 18. Ka-
púsínaklaustrið á Kollaleiru Reyðarf. |
Messa kl. 11. Jósefskirkja, Hafnarfirði |
Messa kl. 10.30 og virka daga kl. 18.30.
Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl.
8.30 og virka daga kl. 8. Barbörukapella,
Keflavík | Messa kl. 14. Kristskirkja,
Landakoti | Messa kl. 10.30 og á ensku kl.
18. Virka daga messa kl. 18. Mánu, mið-
viku- og föstudaga er messa á latínu kl.
8.10. Laugard. er barnamessa kl. 14 að
trúfræðslu lokinni.
Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka
daga kl. 18.30. Ísafjörður | Messa kl. 11.
Flateyri | Messa 2. og 3. sunnudag í mán-
uði kl. 16. Suðureyri | Messa 1. og 4.
sunnudag í mánuði kl. 16. Maríukirkja við
Raufarsel, Rvk. | Messa kl. 11 og virka
daga kl. 18.30. Laugardaga messa á
ensku kl. 18.30.
Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16, miðvikud.kl.
20.
KÁLFATJARNARKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Frank Herlufsen, kór Kálfa-
tjarnarkirkju, prestur er sr. Bára Friðriks-
dóttir. Fermingarbörn og foreldrar þeirra
hvött til að mæta. Fundur með foreldrum
fermingarbarna á eftir messukaffi.
KÓPAVOGSKIRKJA | Barnastarf og fjöl-
skyldumessa kl. 11. Kór barna úr Kárs-
nesskóla syngur undir stjórn Þórunnar
Björnsdóttur kórstjóra. Sigríður Stef-
ánsdóttir leiðir barnastarfið og undirleik
annast Lenka Mátéová.
LANGHOLTSKIRKJA | Guðsþjónusta og
barnastarf kl. 11. Upphaf fermingarstarfs-
ins, fermingarbörnum verður afhent bók og
í lokin verður stuttur fundur með foreldrum
um starfið í vetur. Barnastarfið hefst í kirkj-
unni en síðan fara börnin í safnaðarheim-
ilið með Rut, Steinunni og Aroni. Unglinga-
kór frá Adolf Fredriks skólanum í
Stokkhólmi syngur. Kaffi og kleinur eftir
stundina. Samvera með fermingarbörnum
þriðjud. 9. sept. kl. 19-21. Nánar á lang-
holtskirkja.is.
LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Kór Laugarnes-
kirkju syngur við stjórn Gunnars Gunn-
arssonar organista, sóknarprestur prédikar
og þjónar fyrir altari ásamt meðhjálpara og
fulltrúum lesararhóps. Margrét Rós æsku-
lýðsfulltrúi stýrir sunnudagaskólanum.
Batamessa 12 spora fólks er kl. 17 í Vídal-
ínskirkju í Garðabæ, sameiginleg með
Laugarnessöfnuði, Fríkirkjunni í Hafnarfirði
og Hjallakirkju.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Kór Lágafellskirkju syngur, organisti Jónas
Þórir, prestur sr. Ragnheiður Jónsdóttir.
Fermingarbörn, foreldrar og forráðamenn
barnanna hvött til að koma í kirkju. Sunnu-
dagaskólinn í Lágafellskirkju kl. 13.
LINDASÓKN í Kópavogi | Fjölskylduguðs-
þjónusta í Salaskóla kl. 11. Sunnudaga-
skólinn kynntur, brúðuleikhús. Nýr prestur
boðinn velkominn og beðið fyrir þeim sem
leggja hönd á plóg í safnaðarstarfinu í vet-
ur. Félagar úr Kór Lindakirkju leiða safn-
aðarsönginn undir stjórn Keith Reed en auk
þess syngja og leika þau Matti Sax og Ás-
laug Helga Hálfdánardóttir. Prestar er Guð-
mundur Karl Brynjarsson og Guðni Már
Harðarson. Kirkjukaffi að athöfn lokinni.
MÖÐRUVALLAKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Söngur fyrir alla fjölskyld-
una. Börnin taka þátt í guðsþjónustunni.
NESKIRKJA | Messa og barnstarf kl. 11.
Börnin byrja í kirkjunni og fara síðan í safn-
aðarheimilið. Söngur, brúður, sögur, sjó-
ræningjar o.fl. Umsjón með barnastarfinu
hafa Sigurvin, Sunna Dóra, Andrea, Alex-
andra og Ari. Félagar úr Kór Neskirkju leiða
safnaðarsöng, organisti Steingrímur Þór-
hallsson. Sr. Kristján Valur Ingólfsson pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og spjall á
Torginu eftir messu.
SALT kristið samfélag | Vakningasamkoma
kl. 17, „Af hverju lýsir lampinn ekki í myrkr-
inu?“ Ræðumaður er Hermann Bjarnason,
lofgjörð, fyrirbæn og barnastarfið byrjar.
Túlkað á ensku.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Axel
Árnason þjónar fyrir altari og predikar, kór
kirkjunnar leiðir sönginn undir stjórn Jörg
Sondermann organista. Léttur hádeg-
isverður að lokinni messu. Sunnudagaskóli
kl. 11, fjársjóðsleit framundan í vetur. Her-
dís Styrkársdóttir og Eygló Gunnarsdóttir
leiða barnastarfið.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Söngur og saga. Almenn guðsþjónusta kl.
14. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar, kirkju-
kórinn leiðir sönginn og organisti er Jón
Bjarnason.
SELTJARNARNESKIRKJA | Sunnudaga-
skóli kl. 11. Börnin fá nýja sunnudaga-
skólabók, límmiða og poka. Það verður
mikið um að vera í vetur, söngur, sögur o.fl.
Umsjón með stundinni er í höndum leið-
toga sunnudagaskólans.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11.
Sóknarprestur.
SÓLHEIMAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Birgir Thomsen þjónar fyrir altari og pré-
dikar, organisti Ester Ólafsdóttir, meðhjálp-
ari er Erla Thomsen. Almennur safn-
aðarsöngur.
STAFHOLTSKIRKJA | Hátíðarmessa kl. 14.
Sr. Þorbjörn Hlynur Árnason prófastur setur
sr. Elínborgu Sturludóttur í embætti sókn-
arprests í Stafholtsprestakalli. Messukaffi
í boði sóknarnefnda í Þinghamri á eftir.
STÓRA Núpskirkja | Messa kl. 14.
VÍDALÍNSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Ármann Hákon Gunnarsson djákni
og fræðarar sunnudagaskólans leiða
stundina. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar
fyrir altari. Félagar í kór Vídalínskirkju leiða
söng undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar.
Nýtt sunnudagaskólaefni verður kynnt.
Hressing í safnaðarheimili eftir guðsþjón-
ustu. Batamessa kl. 17. Anna Sigga Helga-
dóttir söngkona og Jóhann Baldvinsson
organisti leiða safnaðarsönginn. 12 spora
vitnisburður. Sr. Jóna Hrönn þjónar að
helgihaldinu. www.gardasokn.is
Morgunblaðið/Einar Falur
Hofskirkja í Öræfum.
Orð dagsins:
Sonur ekkjunnar í Nain.
Lúk. 7.
ferðast og hafði mikinn áhuga á fram-
andi löndum og menningu. Hún átti
landabréfabók sem hún skoðaði oft,
ekki síst vegna þess hversu víða af-
komendur hennar fóru. Hún vildi vita
um alla staði sem við heimsóttum og
merkti við í bókinni. Hún spurði mig
jafnan þegar hún hringdi: „Ertu að
fara til útlanda?“ Þegar ég kom til
baka vildi hún vita allt um mínar ferð-
ir og sjá myndir.
Við amma brölluðum margt saman
eftir að ég varð fullorðinn. Eftirminni-
legt er ferðalag um suðurhluta Þýska-
lands þar sem ég ók og amma las á
kortið. Fljótfærni hennar gerði það að
verkum að oftar en ekki ókum við
framhjá stöðum sem við ætluðum að
heimsækja en lentum fyrir vikið á
stöðum sem við annars hefðum aldrei
fundið. Amma var hófmanneskja á
mat og drykk og alltaf að hugsa um
línurnar, en á ferðalagi í París fengum
við okkur rauðvín á hverju kvöldi
vegna þess að hún hafði heyrt að svo-
leiðis gerði maður í Frakklandi. Þann-
ig var amma, alltaf fús að kynnast og
njóta framandi menningar.
Ég held ég megi segja frá þessu
núna, en þegar hún heimsótti mig til
Mósambík týndum við henni um
stund í þjóðgarði þar sem flóðhestar,
hýenur og önnur villidýr reikuðu um í
rökkrinu. Hún hafði brugðið sér á bak
við tré til að gera það sem gera þarf og
sá enga ástæðu til að láta okkur vita.
Okkur var brugðið en hún var óhrædd
og fannst lítið til um uppistandið. Hún
var óhrædd og ákveðin í því sem hún
tók sér fyrir hendur og við urðum
hissa þegar hún sagði löngu síðar frá
ferð þeirrar Ólafar systur hennar til
Portúgals í tilefni af áttræðisafmæl-
inu. Þær systur létu fjölskyldurnar
halda að þær væru að fara í ferð með
eldri borgurum, en fóru á eigin veg-
um, tvær áttræðar og mállausar á er-
lendar tungur. Amma skildi ekki hvað
við höfðum út á ferðatilhögunina að
setja. Hún sá ekki vandamál heldur
spennandi verkefni.
Amma var einstaklega vel gift. Afi
er nútímamaður á tíræðisaldri, fróður
og framsýnn. Missir hans er mikill eft-
ir 66 ára hjónaband. Amma var trúuð
kona og kenndi mér bænir, sálma og
mátulegan guðsótta. Hún hélt mikið
upp á séra Sigurbjörn Einarsson bisk-
up, sem lést sama dag og hún. Ég veit
að hún gat ekki fundið sér betri sam-
fylgdarmann yfir móðuna miklu en
sjálfan biskupinn. Hún kenndi mér
marga sálma en einn fer ég með á
hverju kvöldi. Með þeim orðum kveð
ég ömmu.
Hreint skapa hjarta,
Herra Guð, í mér,
lát ljós þitt bjarta
lýsa’ oss jafnan hér
heims á hálum brautum,
heims að flýjum synd.
Unaði’ í og þrautum
oss þín prýði mynd.
Verði á oss vilji þinn,
vertu hjá oss, faðir minn,
burtu frá oss sérhvert sinn
synd og voða hrind.
(Páll Jónsson)
Páll Jónsson.
Í dag verður amma mín í Tungu
jarðsungin. Þetta var óvænt brottför
úr þessum heimi og hennar verður
sárt saknað hér á bæ.
Frá því að ég man eftir mér hef ég
alltaf reglulega heimsótt ömmu og afa
í Tungu. Mér fannst alltaf gott að
koma í Tungu og það er margt sem
amma hefur kennt mér í gegnum árin.
Og þótt afi og amma hafi flutt á Hvols-
völl fyrir þó nokkrum árum, þá eru
þau alltaf amma og afi í Tungu fyrir
mér.
Það var amma mín sem kenndi mér
faðirvorið endur fyrir löngu þegar ég
var í heimsókn í Tungu, enda leist
henni ekkert á það þegar hún komst
að því að ég kynni bara þýskar bænir.
Amma kenndi mér líka að steikja
kleinur og þegar ég var 14 ára fékk ég
að æfa mig að keyra á bílnum hennar.
Hún fór margoft með mig að Skógum
og inn í Fljótshlíð að minningarreit
um Þorstein Erlingsson, sem varð til
þess að hann er eitt af fáum skáldum
sem ég veit deili á, og þekki ljóð eftir.
En það sem mestu máli skiptir er
að amma hefur alltaf hvatt okkur
barnabörnin til náms og til að skoða
heiminn. Henni var mjög annt um að
við menntuðum okkur þannig að það
yrði nú eitthvað úr okkur. Að sama
skapi hefur hún sýnt menntun
barnanna minna mikinn áhuga þótt
þeir séu ennþá í grunnskóla. Hún
spurði alltaf út í námið þegar við kom-
um og fékk þá til að spila á hljóðfæri ef
tækifæri gafst. Áhugann má sjálfsagt
rekja til þess að hún vildi að við fengj-
um tækifæri sem voru ekki í boði þeg-
ar hún var ung.
Amma var haldin ólæknandi ferða-
bakteríu og það má segja að þessi
baktería hafi smitast í okkur allflest.
Hún hvatti okkur til að gerast skipti-
nemar og skoða heiminn. Hún fylgdist
af áhuga með ferðum okkar og það var
alveg bannað að gleyma að senda
póstkort frá framandi stöðum. Hún
var sjálf dugleg við að ferðast víða um
heim og hún lét það ekki stoppa sig
þótt tungumálakunnáttan væri ekki
upp á marga fiska. Ég man vel eftir
henni í heimsókn hjá okkur í Þýska-
landi með Tótu frænku þegar ég var
bara krakki. Hún notaði flest tækifæri
sem gáfust til að skoða heiminn og
þótti hendi ferðin sem hún fór til Afr-
íku mjög merkileg og sagði mér mikið
frá henni.
Amma var ljósmóðir af lífi og sál og
tók á móti fjöldanum öllum af börnum.
Þegar ég man eftir var hún farin að
vinna á sjúkrahúsinu á Selfossi og þau
voru ófá börnin sem ég fékk að skoða
gegnum glerið. Það mátti stundum
halda að hún ætti þau öll, svo stolt og
ánægð var hún með öll krílin. Mér
þótti þetta merkilegt starf og ætlaði á
tímabili líka að verða ljósmóðir þótt ég
léti ekki verða af því.
Fyrr var oft í koti kátt,
krakkar léku saman,
þar var löngum hlegið hátt,
hent að mörgu gaman.
Úti um stéttar urðu þar
einatt skrítnar sögur,
þegar saman safnast var
sumarkvöldin fögur.
(Þorsteinn Erlingsson)
Hulda Ólafsdóttir.
Nú hefur hún Finna frænka kvatt
þennan heim. Hún var ljósmóðir eins
og ég og það var fyrir hennar tilstilli
að ég valdi mér þetta starf. Ég fann að
eitthvað dulúðugt og spennandi væri
tengt þessu starfi og heillaðist ég af
því þegar ég var stuttan tíma sjúk-
lingur á Sjúkrahúsi Selfoss 18 ára
gömul. Finna frænka var á vaktinni,
hún var á vappi inn og út af fæðing-
arstofunni og leit til mín af og til – hún
sagði ekki neitt um hvað hún var að
fást við fyrr en barnið var fætt, þá sá
ég á henni að þetta var eitthvað stór-
kostlegt. Siðan hef ég oft upplifað slík
kraftaverk sjálf. Guðfinna útskrifaðist
úr Ljósmæðraskóla Íslands árið 1958,
þá orðin 36 ára, sem þótti þá nokkuð
hár aldur til að hefja ljósmóðurstörf.
En það stóðu henni fáir á sporði í út-
haldi og eljusemi þegar kom að því að
vinna því hún hætti ekki störfum fyrr
en hún var komin á áttræðisaldurinn.
Alltaf til í að bæta á sig vinnu ef vandi
skapaðist og taldi ekki eftir sér að
vaka næturlangt. Finna frænka var
kvik á fæti og létt í lund, hafði gaman
af samskiptum við fólk og það var ein-
staklega skemmtilegt að umgangast
hana. Okkar leiðir lágu þétt saman
þar sem við störfuðum saman á
Sjúkrahúsi Suðurlands eins og það
hét þá. Við áttum gott samstarf þótt
bil væri á milli okkar í aldri sem og
starfsaldri en margt gott lærði ég af
Finnu sem gagnast hefur mér vel í
starfi síðan.
Finna frænka var móðursystir mín
og ein af systkinunum 15 frá Syðra-
Velli í Flóa og var Finna sú áttunda í
röðinni, næst á eftir Ólöfu (Ólu
frænku) sem lést fyrir rúmu ári. Það
að ég nefni Ólu sérstaklega er ekki út í
loftið því þótt eitt ár væri á milli þeirra
systra voru þær oft sem tvíburar, ein-
staklega samrýndar og afar líkar í út-
liti auk þess sem þær áttu sama af-
mælisdag. Það er kannski ekkert
skrítið að stutt væri á milli þeirra.
Minningar lifa áfram og ég á góðar
minningar um kæra frænku og sam-
starfskonu sem ég met mikils.
Innilegar samúðarkveðjur til Odd-
geirs, Guðlaugar, Ólafs og annarra
ættingja Finnu frænku.
Ólafía M. Guðmundsdóttir.
Fleiri minningargreinar um Guð-
finnu Ólafsdóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.