Morgunblaðið - 06.09.2008, Blaðsíða 36
Við stelpurnar erum
ekkert of hrifnar af
því, við viljum ekki líta
þreytulega út… 43
»
reykjavíkreykjavík
ALÞJÓÐLEG kvikmyndahátíð í
Reykjavík, sem hefst 25. september
og stendur til 5. október, mun
heimsfrumsýna heimildarmyndina,
The Frontier Gandhi: Badshah
Khan, A Torch for Peace, en leik-
stjóri myndarinnar Teri McLuhan
er gestur hátíðarinnar ásamt tón-
skáldinu og tónlistarmanninum Dav-
id Amram, sem samdi tónlistina við
myndina. David Amram mun einnig
standa fyrir sérstökum tónleikum á
eigin verkum í tengslum við frum-
sýningu myndarinnar.
The Frontier Gandhi er þriðja
kvikmynd leikstjórans og rithöfund-
arins Teri McLuhan í fullri lengd, en
myndin var 21 ár í framleiðslu. Fyrri
myndir McLuhan (The Shadow
Catcher og The Third Walker) hlutu
mikla alþjóðlega athygli þegar þær
komu út og góðar viðtökur víðsvegar
um heiminn. Bækur hennar hafa
ekki síður vakið hrifningu, en hún
hefur skrifað fimm metsölubækur.
Gleymdur friðarpostuli
David Amram hefur samið meira
en 100 tónverk fyrir sinfóníur og
kammersveitir, hann hefur samið
tónlist fyrir ótal söngleiki, leikverk
og kvikmyndir, þar á meðal fyrir
myndirnar Splendor in the Grass og
The Manchurian Candidate. Einnig
er David þekktur tónlistarmaður, en
hann hefur spilað á tónleikum með
mönnum á borð við Dizzy Gillespie,
Thelonious Monk og Tito Puente.
Nýlega samdi hann tónverk sem
flutt var með barnakór a landsþingi
demókrata i Denver í Colorado.
The Frontier Gandhi segir frá
hinum einstaka friðarsinna Badshah
Khan sem ólst upp í hinu herskáa
Pashtun samfélagi í Pakistan. Ma-
hatma Gandhi lýsti yfir að Badshah
væri kraftaverk í lifanda lífi, en sá
síðarnefndi afrekaði það að safna að
sér rúmlega 100.000 manna „her“
friðarsinna umkringdur ofbeldi og
stríðsátökum þar sem landamæri
Afghanistan og Pakistan eru í dag.
Badshah var tvisvar sinnum til-
nefndur til friðarverðlauna Nóbels,
en saga þessa manns hefur nú fallið í
gleymsku og dá víðast hvar.
hoskuldur @mbl.is
Heimsfrumsýning á RIFF
Friðarpostular Mahatma Gandhi og Badshah Khan. Kahn var tvívegis til-
nefndur til friðarverðlauna Nóbels en er nú flestum gleymdur og grafinn.
Leikstjórinn Teri McLuhan vann að kvikmyndinni í 21 ár
Það tók ekki
nema 20 mínútur
að seljast upp á
minningartón-
leika um Vilhjálm
Vilhjálmsson
þegar miðasala
hófst í gær. Um fjögur þúsund mið-
ar voru í boði og ruku þeir út eins
og um erlenda stórstjörnu væri að
ræða … eða bíddu nú við … illa hef-
ur gengið að selja miða á stór-
tónleika með erlendum rokk-
stjörnum. Dylan, Simon og Clapton
héldu tónleika hér á landi og eng-
um þeirra tókst að selja alla þá
miða sem í boði voru. Hvað skyldi
ráða þessu? Varla er það miðaverð-
ið því ódýrasti miðinn á minning-
artónleikana er á fimm þúsund
krónur og sá dýrasti á svokölluðu
A+-svæði er á 12 þúsund kall.
Getur verið að íslenskir tónleika-
haldarar sjái það nú loksins að Ís-
lendingar eru frekar reiðubúnir til
að hlýða á landa sína en erlendar
prímadonnur? Í það minnsta er bú-
ið að bæta við aukatónleikum laug-
ardaginn 11. október og hefst miða-
sala næsta föstudag.
Miðar á minningartón-
leika Villa Vill ruku út
Mikið Face-
book-æði ríður nú
yfir landann.
Einn af kostum
þessa nýja sam-
skiptakerfis er
hversu létt og
leikandi það er í vinnslu (ólíkt My-
space) og auk þess er það galopið.
Þannig er hægt að sjá skondin sam-
skipti á milli bókaútgefandans JPV
og rithöfundarins Guðmundar
Andra Thorssonar, þar sem JPV
skammar Guðmund fyrir að láta sig
ekki vita að hann væri nýbúinn að
gifta sig.
Guðmundur svarar því þá til að
hann hafi nú bara verið að fylla út
reitinn hvað hjúskaparstöðu varð-
ar. Fleiri viðlíka dæmi er að finna,
og ekki amalegt að geta fylgst með
fræga fólkinu í „einkasamtölum“.
Verst að fésbókin var ekki komin til
sögunnar á tímum Laxness og
Hemingway...
Galopin fésbók
SAMMI segist enn á leiðinni „niður“ eftir túr-
inn og er í því markmiði að vinna að eigin
hlutum en í gær spilaði sveit hans Funky
Stuff á Glaumbar.
„Við höfum verið að keyra þessi kvöld viku-
lega í sumar,“ segir hann. „Þetta er einslags
klúbbur. Ég er að reyna að halda utan um
þessa senu sem hefur verið að leggja sig eftir
hrynheitri tónlist á borð við fönk, soul, döbb
og hvaðeina sem henni tengist.“
Sammi lenti á landinu á mánudaginn eftir
þriggja mánaða volk um öll heimsins höf.
Hans hlutverk á túrunum var að stýra blást-
urssveitinni The Horny Brazzdards og segir
hann að allt hafi í raun gengið einsog smurð
vél.
„Það var mikil fagmennska í gangi og það
er her manna að vinna í kringum þetta. Þegar
ég er að ferðast með mínar sveitir er ég sjálf-
ur t.d. ökumaður, túrstjóri og rótari allt í
senn. Eina babbið sem kom í bátinn var þegar
Orri veiktist og einhverju sinni þurftum við
að bíða af okkur þrumuveður í Omaha. Það
var allt og sumt.“
Fereykið Sigur Rós
Sammi segir að stemningin hafi verið
einkar góð í hópnum.
„Það eru allir orðnir svo þroskaðir að það
var leikur einn að láta þetta ganga upp, en
það er sosum ekki hlaupið að því í svona stöð-
ugu návígi. Stemningin náði svo hámarki á 17.
júní í New York en þá fór þjóðarrembing-
urinn upp úr öllu valdi.“
Umboðsmaður Sigur Rósar, John Best, hef-
ur haldið skemmtilegar dagbækur yfir túrinn
og segir Sammi að hann hafi þrýst á sig um
að gera slíkt hið sama.
„Ég hélt reyndar dagbók, en bara fyrir mig
persónulega. Hlutir gleymast svo fljótt. Til-
finningarnar eru vissulega blendnar núna
þegar þessu er lokið og það er skrítið að
stíga úr svona loftbólu. Það var skemmtilegt
að takast á við þetta en ég er líka feginn að
geta einbeitt mér aftur að mínum hlutum.“
Sammi hefur nú lokið sínum þætti í túrnum
en Sigur Rós fer ein til Bandaríkjanna í
haust, án blásturs- og strengjasveitar.
„Þetta verður bara rokk og ról hjá þeim.
Mjög spennandi. Ég held að ég hafi síðast séð
þá fjóra á sviði á Gauknum fyrir tíu árum síð-
an,“ segir Samúel að lokum en hlær þó ekki
eins og venjan er í viðtölum af þessu tagi.
Stigið út úr loftbólu
Sammi í Jagúar er ný-
kominn úr túr með Sigur
Rós. „Það var skemmti-
legt að takast á við
þetta,“ segir hann blaða-
manni, „en það er líka
gott að fá lífið sitt aftur.“
Innblásnir Hornaflokkurinn The Horny Brazzdards í MoMA í New York. Sammi er lengst til hægri.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
„Ég var veskis- og vegabréfslaus þegar ég fór
frá Írlandi til Skotlands eftir gigg þar en komst
inn í landið þar sem ég var steinsofandi í rút-
unni. Ég hafði týnt þessu á tónleikunum. Afar
undarlegt, því að ég get ekki einu sinni kennt
svalli um, ég var mjög prúður þetta kvöldið.
Góðvinir okkar í Franz Ferdinand, sem höfðu
verið að spila með okkur í Írlandi, fundu þetta
svo og komu þessu til mín, en blessunarlega
voru þeir líka að spila með okkur í Skotlandi.
Aðrar sögur eru óbirtingarhæfar en verða allar
í ævisögunni sem kemur út eftir 30 ár!“
Franz fann veskið