Morgunblaðið - 06.09.2008, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2008 37
Þjóðleikhúsið Af öllum sviðum lífsins
551 1200 | midasala@leikhusid.is
Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl.12:30-18:00, aðra daga vikunnar frá kl. 12:30 til
20, og alltaf klukkustund fyrir sýningu ef um breyttan sýningartíma er að ræða.
Stóra sviðið
Skilaboðaskjóðan
Sun 7/9 kl. 14:00 Ö
Sun 14/9 kl. 14:00
Lau 20/9 kl. 14:00
Sun 28/9 kl. 14:00
Sun 5/10 kl. 13:00
ath. breyttan sýn.atíma
Sun 12/10 kl. 14:00
Sun 19/10 kl. 14:00
Ástin er diskó - lífið er pönk
Fös 5/9 kl. 20:00 Ö
Lau 6/9 kl. 20:00 Ö
Lau 13/9 kl. 20:00
Fös 19/9 kl. 20:00
Lau 20/9 kl. 20:00
Sun 28/9 kl. 20:00
Fös 3/10 kl. 20:00
Lau 4/10 kl. 20:00
Engisprettur
Fös 26/9 kl. 20:00
Lau 27/9 kl. 20:00
Lau 4/10 kl. 20:00
Fim 9/10 kl. 20:00
Fös 10/10 kl. 20:00
Leikhúsperlur - afmælishátíð Atla Heimis
Sun 21/9 kl. 16:00
Kassinn
Utan gátta
Þri 21/10 fors. kl. 20:00 Ö
Mið 22/10 kl. 20:00 Ö
Fim 23/10 kl. 20:00 Ö
Fös 24/10 frums. kl. 20:00 U
Lau 25/10 kl. 20:00
Fös 31/10 kl. 20:00
Lau 1/11 kl. 20:00
Ath. takmarkaðan sýningatíma
Kúlan
Klókur ertu - Einar Áskell
Sun 7/9 kl. 11:00 U
Sun 7/9 kl. 12:30 U
Lau 13/9 aukas. kl. 12:30
Sun 14/9 kl. 11:00 U
Sun 14/9 kl. 12:30 U
Sun 21/9 kl. 11:00 Ö
Sun 21/9 kl. 12:30
Sun 28/9 kl. 11:00
Sun 28/9 kl. 12:30
Brúðusýning fyrir börn
Borgarleikhúsið
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 10:00-18:00, miðvikudaga til föstudaga kl.
10:00-20:00, og laugardaga og sunnudaga kl. 12:00-20:00
Fló á skinni (Stóra sviðið)
Fös 5/9 frums kl. 20:00 U
Lau 6/9 kl. 19:00 U
2. kortas
Sun 7/9 kl. 20:00 U
3. kortas
Þri 9/9 aukas kl. 20:00 U
Mið 10/9 aukas kl. 20:00 U
Fös 12/9 kl. 19:00 U
4. kortas
Fös 12/9 kl. 22:00 Ö
ný aukas
Lau 13/9 kl. 19:00 U
5. kortas
Lau 13/9 ný aukas kl. 22:00
Sun 14/9 aukas kl. 20:00 U
Fim 18/9 aukas kl. 20:00 U
Fös 19/9 kl. 19:00 U
6. kortas
Lau 20/9 kl. 19:00 U
7. kortas
Lau 20/9 kl. 22:30 Ö
8. kortas
Fim 25/9 kl. 20:00 U
9. kortas
Fös 26/9 kl. 19:00 U
10. kortas
Fös 26/9 kl. 22:00 Ö
ný aukas
Lau 27/9 kl. 19:00 U
11. kortas
Lau 27/9 ný aukas kl. 22:00
Fim 2/10 kl. 20:00 U
12. kortas
Fös 3/10 kl. 19:00 U
13. kortas
Fös 3/10 aukas kl. 22:00 U
Lau 4/10 kl. 19:00 U
14. kortas
Lau 4/10 aukas kl. 22:00 U
Ath! Takmarkaður sýningarfjöldi. Tryggðu þér miða í áskriftarkortum.
Gosi (Stóra sviðið)
Sun 7/9 aukasýnkl. 14:00 Ö
Sun 14/9 aukasýnkl. 14:00 Ö
Sun 21/9 aukasýn kl. 14:00
Sun 28/9 aukasýn kl. 14:00
Síðustu aukasýningar.
Fýsn (Nýja sviðið)
Fim 11/9 fors. kl. 20:00 U
Fös 12/9 frums. kl. 20:00 U
Lau 13/9 kl. 20:00 Ö
2. kortas
Sun 14/9 kl. 20:00 Ö
3. kortas
Fös 19/9 4. kortas kl. 20:00
Lau 20/9 kl. 20:00 Ö
5. kortas
Sun 21/9 6. kortas kl. 20:00
Ekki við hæfi barna. Almenn forsala hafin. Tryggðu þér sæti í áskriftarkortum.
Fólkið í blokkinni (Stóra sviðið)
Þri 7/10 forsýn kl. 20:00 U
Mið 8/10 forsýn kl. 20:00 U
Fim 9/10 forsýn kl. 20:00 U
Fös 10/10 frumsýn kl.
20:00
U
Lau 11/10 kl. 19:00
Sun 12/10 2. kortas kl. 20:00
Forsala hefst 24. september, en þegar er hægt að tryggja sæti í áskriftarkorti.
Leikfélag Akureyrar
460 0200 | midasala@leikfelag.is
Óvitar (LA - Samkomuhúsið )
Fös 5/9 aukas kl. 20:00 Ö
Lau 6/9 aukas kl. 20:00 Ö
Sun 7/9 aukas kl. 15:00 Ö
Lau 13/9 kl. 20:00 Ö
ný aukas
Fjölskylduskemmtun
Fool for love (Samkomuhúsið)
Fim 11/9 frums. kl. 20:00 U
Fös 12/9 kl. 19:00 U
2. kortas
Fös 12/9 aukas kl. 21:00 U
Lau 13/9 kl. 19:00 U
3. kortas
Lau 13/9 kl. 21:00 U
4. kortas
Sun 14/9 kl. 20:00 Ö
5. kortas
Fim 18/9 kl. 20:00 Ö
6. kortas
Fös 19/9 kl. 19:00 Ö
7. kortas
Lau 20/9 kl. 19:00 Ö
8. kortas
Hafnarfjarðarleikhúsið
555 2222 | theater@vortex.is
Maddid (Hafnarfjarðarleikhúsið)
Fös 5/9 kl. 20:00 Lau 6/9 kl. 20:00
Mammamamma (Hafnarfjarðarleikhúsið)
Sun 7/9 kl. 20:00
Fim 11/9 kl. 20:00
Sun 14/9 kl. 20:00
síðustu sýningar
Íslenska óperan
511 4200 | midasala@opera.is
Cavalleria Rusticana og Pagliacci
Fös 19/9 frums. kl. 20:00 Ö
Sun 21/9 kl. 20:00
Fim 25/9 kl. 20:00
Lau 27/9 kl. 20:00
Lau 4/10 kl. 20:00
Sun 5/10 kl. 20:00
Fös 10/10 kl. 20:00
Sun 12/10 kl. 20:00
Forsala miða hafin á www.opera.is!
Janis 27
Fös 3/10 frums. kl. 20:00 Ö
Fim 9/10 kl. 20:00
Lau 11/10 kl. 20:00
Fös 17/10 kl. 20:00
Lau 18/10 kl. 20:00
Forsala miða hafin á www.opera.is!
Iðnó
562 9700 | idno@xnet.is
Mammút Tónleikar
Fös 5/9 kl. 20:00
Bergþór , Bragi og Þóra Fríða Tónleikar
Sun 21/9 kl. 16:00
Íslenski dansflokkurinn
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Duo (Litla svið)
Fim 16/10 1. sýn kl. 20:00
Fös 17/10 kl. 20:00
Fös 24/10 kl. 20:00
Lau 25/10 kl. 20:00
Sun 26/10 kl. 20:00
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Lau 6/9 kl. 15:00 Ö
Lau 6/9 kl. 20:00 Ö
Sun 7/9 kl. 16:00 Ö
Fös 3/10 kl. 20:00 U
Lau 4/10 kl. 15:00 U
Lau 4/10 kl. 20:00 Ö
Lau 11/10 kl. 15:00 Ö
Lau 11/10 kl. 20:00 U
Sun 12/10 kl. 16:00
Sun 2/11 kl. 16:00
Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið
Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson
(Söguloftið)
Lau 25/10 kl. 20:00 Fös 31/10 kl. 20:00
Tvær Grímur 2007 - Besti leikari - Besta handritið
EINS og greint var frá í gær hefur
einum allra helsta tónleikastað
Reykjavíkur, Organ, nú verið lok-
að. Þetta er óneitanlega mikið áfall
fyrir íslenska popp- og rokktónlist-
armenn, enda góðir tónleikastaðir
ekki á hverju strái í höfuðborginni.
Nokkrir eru þó eftir:
Nasa Ókrýndur konungur tónleika-
staða í Reykjavík. Gallinn er hins
vegar sá að hann er of stór fyrir
margar hljómsveitir, og sömuleiðis
of dýr.
Iðnó Einn fallegasti salur í Reykja-
vík, en þar hefur ekki þótt við hæfi
að halda alvöru rokktónleika, enda
húsnæðið viðkvæmt. Þá er salurinn
stór, og leiga há.
Grand rokk Þar hefur mikill fjöldi
rokktónleika verið haldinn með
góðum árangri, en einhverra hluta
vegna hefur lítið verið um tónleika
á staðnum að undanförnu.
Rúbín Einn nýjasti staðurinn í flór-
unni. Stærðin er hæfileg, en marg-
ar rokksveitir setja það þó fyrir sig
að Rúbín er í Öskjuhlíðinni. Þá þyk-
ir staðurinn fullfínn fyrir „sveittar“
rokksveitir.
Ellefan Þar hafa verið haldnir
kröftugir rokktónleikar með góð-
um árangri. Staðurinn er þó lítill.
Tunglið Ágætur staður sem er þó
fyrst og fremst ætlaður fyrir
elektróníska tónlist og hvers konar
klúbbakvöld.
Café Hljómalind Lítill staður við
Laugaveg sem hentar vel fyrir
minni sveitir og trúbadora.
Café Oliver Þar hafa verið haldnir
tónleikar með nokkuð góðum ár-
angri, þótt aðstaða fyrir áhorf-
endur sé ekki of góð. Þá er hann í
fínni kantinum.
Domo Er með aðstöðu til tónleika-
halds í kjallaranum, en þar hafa
fyrst og fremst verið haldnir djass-
tónleikar og aðrir tónleikar í ró-
legri kantinum, enda fínn staður.
Rósenberg Nýjasti staðurinn í tón-
leikastaðaflórunni. Staðurinn hefur
alla burði til að taka við hlutverki
Organ, enda af svipaðri stærð.
Café Amsterdam Fínn staður fyrir
villta rokktónleika, en sumum þyk-
ir staðurinn fullsubbulegur.
Þjóðleikhúskjallarinn Mjög góður
tónleikastaður af hæfilegri stærð.
Þar hafa þó ekki verið haldnir tón-
leikar í langan tíma.
Dillon Fyrst og fremst bar, en þar
hafa þó verið haldnir tónleikar.
Lítill.
Hressó Ágætur staður fyrir minni
tónleika.
Tónleikastaðir
í Reykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„EÐLILEGA er þetta mjög slæmt
fyrir hljómsveitir, og það liggur við
að það sé ekki hægt fyrir litlar sveit-
ir að koma sér á framfæri. Það er
ekkert hægt að vera lítið band í
Breiðholti og panta Nasa,“ segir
Guðfinnur Sölvi Karlsson, Finni í
Dr. Spock, um þróun mála í tónleika-
staðamenningu í Reykjavík í kjölfar
þess að Organ hefur nú verið lokað.
„Það eru reyndar nokkrir staðir
sem eru ekki eiginlegir tónleika-
staðir, en hafa samt verið að halda
tónleika. Það eru til dæmis stundum
tónleikar á Dillon, Prikinu eða Kaffi-
barnum. Þetta eru ekki bestu stað-
irnir til að halda tónleika á, en þeir
geta samt verið drulluskemmti-
legir.“
Nasa gerir rétt
Finni segir undarlegt að hið op-
inbera styðji ekki betur við gras-
rótina í íslensku tónlistarlífi.
„Það er dálítið steikt að þetta list-
form, sem er í rauninni búið að skila
mestu í kassann í sambandi við land-
kynningu í gegnum Björk og Sigur
Rós, sé ekki bakkað betur upp af
hinu opinbera. Þeir eru borgandi
einhverjar trilljónir í Þjóðleikhúsið
og það, en geta ekki gert út einn tón-
leikastað. Um leið og einhver tónlist-
armaður slær í gegn erlendis er það
einhver besta landkynning sem
hægt er að fá.“
Þá segir Finni að þeir staðir sem
eftir eru í Reykjavík þurfi sumir
hverjir að breyta sínum starfs-
aðferðum. „Við höfum til dæmis ver-
ið að spila í New York, og þar borgar
maður fyrir staðinn. Þú selur inn, og
þeir taka bara ákveðið af miðunum.
En ef það er stútfullt hætta þeir því,
og svo öfugt – ef það er tómt, þá eru
þeir með tryggingu,“ segir Finni og
bætir því við að staður á borð við
Nasa geri þetta rétt. „Þeir geta valið
og hafnað hvað þeir fá í húsið. Þótt
þú sért ekki með nema 300 manna
stað verður bara að kosta inn. Og ef
hljómsveitin vill hafa frítt inn borgar
hún bara. Ef það gengur vel og það
kemur fullt af fólki má svo gera sér-
stakan samning.“
Menn redda sér
Finni hefur lengi verið viðloðandi
tónlistarlífið í Reykjavík, en áður en
hann stofnaði Dr. Spock ásamt fé-
lögum sínum var hann m.a. í hljóm-
sveitinni Quicksand Jesus sem
stofnuð var í kringum 1990. Að-
spurður segir Finni að meira úrval
hafi verið af tónleikastöðum þegar
hann var að byrja í þessum bransa.
„Maður spilaði til dæmis á Hressó,
Blúsbarnum, á́ gamla Gauknum, í
Rósenbergkjallaranum og auðvitað
á Tunglinu sem var svona eins og
Nasa er í dag. En ég held að með
peningunum hjá þjóðinni hafi bara
komið dýrir og fínir staðir, sem eru
bara ekki nógu subbulegir.
Það vantar subbulegan rokkstað,
sem samt er rekinn af manni með
heilabú. Það vantar svona stað fyrir
bönd til að byrja á. En rokkið finnur
reyndar alltaf sínar leiðir, menn
redda sér alltaf,“ segir Finni að lok-
um.
„Það vantar subbulegan rokkstað“
Finni í Dr. Spock
segir að tónleika-
staðir þurfi að
breyta starfsað-
ferðum sínum
Morgunblaðið/Kristinn
Sveitt Finni í miklum ham með Dr. Spock. „… rokkið finnur reyndar alltaf sínar leiðir, menn redda sér alltaf.“