Morgunblaðið - 07.10.2008, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 11
FRÉTTIR
ÁRLEG haustráðstefna OA-sam-
takanna á Íslandi verður haldin á
föstudag og laugardag nk., í Von,
húsnæði SÁÁ, Efstaleiti 7 í
Reykjavík. Í ár mun reyndur OA-
félagi frá Bandaríkjunum deila
reynslu sinni.
OA-samtökin (Overeaters Ano-
nymous) eru samtök fólks sem á
við matarfíkn að stríða og er eina
skilyrðið fyrir þátttöku í samtök-
unum löngun til að hætta hömlu-
lausu áti.
Á föstudag verður opinn fundur
kl. 20-22 þar sem gestir og nýliðar
verða boðnir velkomnir, og er að-
gangur ókeypis. Á laugardaginn
kl. 9-12 og kl. 13-18 verður svo
fundur undir yfirskriftinni „Frá-
hald í forgang – lifað í lausninni“,
og er aðgangseyrir 2.500 kr.
Ráðstefna og nám-
skeið OA-samtaka
um næstu helgi
„VIÐ þær óvenjulegu aðstæður sem
nú ríkja í fjármálum alþjóðasam-
félagsins hljótum við að svipast um
eftir bandamönnum við lausn þess
vanda sem þjóðarbúið nú glímir við.
Hinn hlutfallslega smái gjaldmiðill
okkar er nú orðinn undirrót alvar-
legs þjóðarvanda.“ Þetta segir í
ályktun Evrópusamtakanna. Sam-
tökin skora á almannasamtök,
stjórnvöld og löggjafarvald að sam-
einast um þá stefnu að undirbúin
verði á markvissan hátt umsókn ís-
lenska lýðveldisins um inngöngu í
ESB.
Samtökin hafa á undanförnum ár-
um lagt áherslu á nánari samvinnu
við samstarfsþjóðir í Evrópusam-
bandinu. „Þar eiga Íslendingar sam-
herja í lausn þeirra alvarlegu vanda-
mála, sem nú kalla á átak og sam-
vinnu allra jarðarbúa svo sem
loftslagsbreytingar af manna völd-
um, misskiptingu lífsgæða og fyrir-
sjáanlegar breytingar á nýtingu
ýmissa auðlinda náttúrunnar,“ segir
í ályktuninni.
Þar segir ennfremur að aðild að
ESB sé ekki skammtímalausn, en
slíkri aðild myndi fylgja fyrirheit um
þátttöku í öflugu myntbandalagi.
„Ef íslensku bankarnir hefðu þróast
í umhverfi hinnar sameiginlegu
myntar Evrópusambandsins væru
starfsskilyrði þeirra önnur og betri
en í dag. Og þjóðin stæði ekki and-
spænis jafn alvarlegu fjárhagslegu
áfalli eins og nú er raunin á.“
Reuters
Evra til bjargar Hinn hlutfallslega smái gjaldmiðill okkar er nú orðinn
undirrót alvarlegs þjóðarvanda, segir í ályktun Evrópusamtakanna.
Umsókn um inngöngu
í ESB verði undirbúin
GISTINÆTUR á hótelum í ágúst sl.
voru 189.300 en voru 186.100 í
sama mánuði árið 2007. Gistinótt-
um fjölgaði því um 2% milli ára.
Fjölgunin átti sér stað í öllum
landshlutum nema höfuðborgar-
svæðinu og Norðurlandi en þar
voru gistinætur svipaðar á milli
ára.
Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum
mest á samanlögðu svæði Suður-
nesja, Vesturlands og Vestfjarða
um tæp 12%, þar fóru gistinætur úr
17.000 í 19.000. Á Austurlandi fjölg-
aði gistinóttum úr 10.700 í 11.400, á
Suðurlandi fjölgaði gistinóttum úr
27.300 í 27.800 eða um 2%, á höfuð-
borgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum
úr 110.700 í 110.900 og á Norður-
landi fjölgaði gistinóttum úr 20.300
í 20.400.
Gistinætur á fyrstu átta mánuð-
um ársins voru 975.500 en voru
951.700 á sama tíma í fyrra. Fjölg-
un varð á Suðurlandi um tæp 10%
og á höfuðborgarsvæðinu um rúm
1% milli ára. Gistinætur stóðu í stað
eða fjölgaði á öðrunm svæðum.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Fjöglun Gistinóttum hefur haldið
áfram að fjölga.
Gistinóttum
fjölgaði
AÐALFUNDUR Öryrkjabandalags Íslands sem
haldin var á laugardag sl. ályktaði að slæmt efna-
hagsástand þjóðarinnar hefði haft alvarlegar afleið-
ingar fyrir öryrkja, sjúklinga og ellilífeyrisþega. „Sú
staðreynd að einstaklingar hafi 130.000 kr. á mánuði
eftir skatta og hjónafólk 116.000 kr. hvort eftir
skatta til framfærslu er engan veginn ásættanlegt.“
Þá segir í ályktuninni að nýtt fyrirhugað örorku-
mat sé óraunhæft og eru stjórnvöld hvött til þess að
endurskoða þessa ákvörðun sína.
Þá fagnar ÖBÍ nýjum hugmyndum um greiðslu-
þátttöku almennings í heilbrigðiskerfinu sem gengur út á að landsmenn
borgi aldrei meira en ákveðna upphæð á ári fyrir lyf og heilbrigðisþjón-
ustu. „ÖBÍ leggur þó mikla áherslu á að þeir öryrkjar og ellilífeyrisþegar
sem minnsta framfærslu hafa borgi lægra gjald en aðrir. Koma þarf sér-
staklega til móts við þennan hóp í almannatryggingakerfinu.“
Nýtt örorkumat óraunhæft
NÆSTA hitt Femínistafélags Ís-
lands verður haldið í dag, þriðju-
dag, kl. 20 á annarri hæð á Sólon og
eru allir velkomnir.
Að þessu sinni verður fjallað um
hvort að kynjamisrétti og mann-
réttindabrot þrífist í skjóli helgi og
hefða trúarbragða.
Framsögur flytja Hildur Björg
Hörpudóttir guðfræðinemi, sem
flytur erindi undir heitinu „Eru
áhrif trúarbragða á líf og aðstæður
kvenna vanmetin“ og Guðrún D.
Guðmundsdóttir, framkvæmda-
stjóri Mannréttindaskrifstofu Ís-
lands, sem flytur erindi undir heit-
inu „Trú, konur og mannréttindi“.
Kvenfólk í heimi
trúarbragða
Eftir Birnu G. Konráðsdóttur
Borgarnes | Um þessar mundir eru
100 ár liðin síðan skólastarf hófst í
Borgarnesi. Mikið var um dýrðir í
grunnskólanum um helgina í tilefni
tímamótanna. Skólinn var opinn
gestum og gangandi með glæsilegri
sýningu þar sem tímabilið var
spannað. Á veggjum héngu myndir
af ýmsum toga. Þar mátti sjá þróun
bæjarins, tískunnar í fatnaði og
fleira að ekki sé talað um breyting-
arnar á nemendunum sjálfum og
námsbókunum.
Margir brottskráðir nemendur
létu sitt ekki eftir liggja og komu í
heimsókn. Handavinna nemenda,
bæði gömul og ný, var til sýnis,
gamlar skólabækur og margt annað
sem tengdist skólahaldinu. Að góð-
um íslenskum sið var boðið upp á
veitingar og fljótlega eftir hádegi á
föstudegi höfðu um fimmhundruð
manns þegið heitt kakó og með því.
Fyrsti kennarinn ráðinn 1908
Árið 1908 var fyrsti kennarinn
ráðinn og kennt var á tveimur stöð-
um í Borgarnesi og á Ölvaldsstöðum.
Skólahús var tekið í notkun árið
1913 þar sem núverandi félagsmið-
stöð nemenda er til húsa. Nýtt
skólahús var vígt árið 1949 þar sem
skólamannvirkin standa í dag. Síðan
hefur oft verið byggt við í samræmi
við fjölgun nemenda. Í dag eru 302
nemendur við skólann.
Fleira var gert í tilefni þessa
merka áfanga. Árshátíð Grunnskól-
ans í Borgarnesi hefur í langan tíma
verið haldin í mars. Í þetta sinn var
sett á auka-árshátíð í Menningarsal
Borgarbyggðar í Menntaskóla
Borgarfjarðar. Venjan hefur verið
sú að eldri deildir hafa séð um metn-
aðarfulla árshátíð ár hvert, en í þetta
sinn var ákveðið að gefa yngri nem-
endum tækifæri til að koma fram og
í leiðinni að lífga upp á bæjarlífið.
Hver bekkur tók fyrir ákveðið ára-
bil. Sem dæmi sungu nemendur í 1.
bekk lög frá árunum 1998 til 2008,
nemendur í þriðja bekk lög frá ár-
unum 1978 til ársins 1987. Lög eins
og „Gaggó Vest“ og „Fallinn“ hljóm-
uðu í Menntaskóla Borgarfjarðar
þar sem fullt var út úr dyrum.
Skólahaldi í Borgarnesi
í heila öld fagnað
Fjölmargir
heimsóttu gamla
skólann sinn
Morgunblaðið/Birna
Minningar Kolbrún Rafnsdóttir, t.v., og Jón G. Ragnarson, t.h., rifjuðu upp
gamla skóladaga með Hilmari Má Arasyni aðstoðarskólastjóra.
STUTT
Hótel Saga (Ársalur)
Miðvikud. 8. okt. kl. 8. Fundarstjóri: Bendedikt Jóhannesson
Boðið verður upp á morgunverð