Morgunblaðið - 07.10.2008, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 15
ERLENT
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
FORSETAFRAMBOÐ demókrat-
ans Baracks Obama var ekki lengi að
bregðast við árás Söru Palin, vara-
forsetaefnis repúblikana, á fram-
bjóðandann um helgina vegna
tengsla hans við Bill Ayers, fyrrver-
andi meðlim hryðjuverkasamtak-
anna Weather Underground.
Svarið var myndband þar sem rifj-
uð eru upp tengsl Johns McCains,
forsetaframbjóðanda repúblikana,
við svonefnt Keating Five-fjármála-
hneyksli á 9. áratugnum, mál sem
varðaði Charles Keating, vin hans og
fjárhagslegan bakhjarl.
anaforseti á síðari tímum, hafi laðað
til sín stóra kjósendahópa, þar með
talið ungt fólk sem hafi upp frá því
hneigst til hægri.
Þessi sveifla gæti vegið þungt í
ljósi mikil áhuga ungs fólks á kosn-
ingunum. Þá þykir þessi staða vega
upp á móti minna fylgi Obama á
meðal eldri kjósendahópa, þar með
talið ófaglærðra verkamanna.
Þetta hefur aftur þýtt að hann hef-
ur átt erfiðara uppdráttar í ríkjum á
borð við Ohio og Pennsylvaníu en
margir fyrri forsetaframbjóðendur
demókrata, á sama tíma og stuðn-
ingur ungs fólk hefur aukið sigurlík-
ur hans í öðrum ríkjum, svo sem
Colorado og Nýju Mexíkó, að því er
fram kemur í fréttaskýringu dag-
blaðsins USA Today.
McCains eftir valið á Palin sem vara-
forsetaefni virðist hafa runnið út í
sandinn eftir fall bankarisanna og
útlit fyrir að honum hafi ekki tekist
að höggva skarð í fylgi Obama á
meðal ungra kjósenda.
Skýra vísbendingu um þetta er að
finna í nýrri könnun dagblaðsins
USA Today, tónlistarstöðvarinnar
MTV og fyrirtækisins Gallup á með-
al skráðra kjósenda á aldrinum 18 til
29 ára, þar sem sem 61% kjósenda
sögðust myndu greiða Obama at-
kvæði sitt, 32% styðja McCain.
Dan Bartlett, sem var um tíma
ráðgjafi George W. Bush Banda-
ríkjaforseta, segir niðurstöðurnar
mikið áhyggjuefni fyrir repúblikana,
enda rifji þær upp hvernig Ronald
Reagan, einn vinsælasti repúblik-
McCain átti þá sæti í öldungadeild
Bandaríkjaþings og komst siðanefnd
deildarinnar að þeirri niðurstöðu,
eftir að hafa farið yfir tengsl Keat-
ings við fimm þingmenn, að þrátt
fyrir að hafa ekki gerst sekur um
lögbrot í málinu hafi McCain sýnt í
því „slæma dómgreind“.
Hrunið á fjármálamörkuðum er
langstærsta kosningamálið að þessu
sinni og því engin tilviljun að fram-
boð Obama skuli rifja upp tengsl
McCains við fjármálahneykslið, sem
varðaði gjaldþrot bankastofnana.
Helmingi fleiri vilja Obama
Eins og komið hefur fram í
Morgunblaðinu er vissrar örvænt-
ingar farið að gæta í liði McCains og
ekki að ástæðulausu. Gagnsókn
Harka færist í leikinn
Framboð Obama rifjar upp tengsl McCains við gamalt fjármálahneyksli
Ungir kjósendur flykkjast að Obama Sveiflunni líkt við vinsældir Reagans
HUNDAR bíða eftir blessun prests fyrir utan
San Francisco-kirkjuna í Lima. Hundruð Perú-
manna fóru þangað með gæludýr sín til að þau
gætu fengið blessun við sérstaka athöfn. Kirkjan
er helguð Frans af Assisi, verndardýrlingi dýra
og stofnanda Fransiskana-reglunnar.
Dýr fá blessun prests í kirkju Frans af Assisi
AP
AP
GEIMFAR bandarísku geimrann-
sóknastofnunarinnar NASA flaug
framhjá Merkúr í gær í annað skipti
af þremur til að taka myndir af reiki-
stjörnunni.
Myndavélar geimfarsins MESS-
ENGER áttu að taka yfir 1.200
myndir af yfirborði Merkúr, innstu
og minnstu reikistjörnu sólkerfisins.
Þótt Merkúr sé tiltölulega nálægt
jörðinni er reikistjarnan meðal dul-
arfyllstu hnatta himingeimsins þar
sem mjög hættulegt er að senda
geimfar að henni vegna mikils að-
dráttarafls sólar og mikillar geisl-
unar.
MESSENGER flaug fyrst
framhjá Merkúr í janúar en í fram-
hjáfluginu í gær gafst tækifæri til að
taka myndir af gagnstæðri hlið reiki-
stjörnunnar. Geimfarið á að fljúga í
þriðja og síðasta skipti framhjá
Merkúr í september á næsta ári.
bogi@mbl.is
Geimfar
kannar
Merkúr
%&
'
()*
+,)-
./00/12/3
1404
-
.)&* '
(*
,5
*
'
(
( -
6
-
3
0 ,)
0
,
0-& ',&
& .437.89
2/8.:/394381143
; &
--)
0*5
*6- /
*6
7
7
,*
'
(
< * 3
,
)
=-,
*(& '
(--
0-,* /-
>,* ?@-
* ,5 2/8.:/3981
$ *
#
)
$
# *
" 5
!
$ # A !
AÐ MINNSTA kosti fjórðungur
allra spendýrategunda í heiminum
er í útrýmingarhættu, samkvæmt
nýjum lista náttúruverndarsamtak-
anna IUCN yfir dýrategundir í út-
rýmingarhættu.
Í skýrslu sam-
takanna segir að
rúmum helmingi
spendýrategunda
hafi hnignað á
síðustu tíu árum
og fremdardýr
eða prímatar í
Asíu eru taldir í
mestri hættu.
„Nær 80% fremd-
ardýra í Asíu eru
í útrýmingarhættu, að langmestu
leyti vegna veiða og kjörlendismiss-
is,“ sagði Michael Hoffman, einn
spendýrasérfræðinga samtakanna.
Í skýrslunni kemur fram að um
1.140 spendýrategundir af 5.487 geti
orðið útdauðar ef svo fer fram sem
horfir. Talan kann þó að vera of lág
vegna þess að ekki var hægt að meta
stöðu 836 tegunda vegna skorts á
upplýsingum. „Í raun gæti tala spen-
dýrategunda í útrýmingarhættu ver-
ið allt að 36%,“ sagði Jan Schipper,
einn vísindamanna IUCN og aðal-
höfundur skýrslunnar.
Í skýrslunni eru þó góðar fréttir
fyrir Afríkufílinn sem hefur sótt í sig
veðrið á síðustu árum og var tekinn
af listanum yfir spendýr í útrýming-
arhættu. bogi@mbl.is
Um 25%
spendýra
í hættu
Margar apateg-
undir eru í hættu.
Um helmingi tegund-
anna hefur hnignað
NÝ plága herjar nú í Þýskalandi,
villisvínum fjölgar ört og eyðileggja
þau jarðargróður, drepa gæludýr og
ráðast jafnvel á fólk. Fjölgunin var
að sögn vísindamanna Villidýrarann-
sóknastofnunarinnar í Hannover
320% í fyrra vegna betri aðgangs að
fæðu og mikillar viðkomu.
Dýrin grafa m.a. upp lík í kirkju-
görðum og éta þau. Ekki er vitað
hvað veldur þessari miklu fjölgun í
Þýskalandi en talin er hætta á að
svínapest breiðist út. „Gylturnar
þýsku eignast að jafnaði 6-8 grísi en í
öðrum löndum eignast gylturnar 4-5
grísi,“ segir í nýrri skýrslu.
kjon@mbl.is
Villisvínum
fjölgar ört
ÁKVEÐIÐ hefur
verið að efna til
þjóðaratkvæða-
greiðslu í Dan-
mörku um hvort
breyta eigi lögum
um erfðaröð
dönsku krúnunn-
ar þannig að
fyrsta barn kon-
ungs eða drottn-
ingar verði ríkis-
arfi, óháð kyni.
Anders Fogh Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur, skýrði
frá þessu í gær og sagði að atkvæða-
greiðslan ætti að fara fram 7. júní á
næsta ári. Stjórnarskráin kveður á
um að þótt prinsessa sé elst barna
konungs eða drottningar eigi yngri
bróðir hennar að taka við krúnunni.
„Við viljum jafnrétti kynjanna, líka
þegar kemur að erfðaröðinni,“ sagði
Fogh Rasmussen.
Efna þurfti til þjóðaratkvæða-
greiðslu árið 1953 til að Margrét
Danadrottning gæti tekið við af föð-
ur sínum, Friðrik IX, sem átti þrjár
dætur. bogi@mbl.is
Vill jafnrétti
í erfðaröð
Anders Fogh
Rasmussen