Morgunblaðið - 07.10.2008, Side 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
VETRARDAGSKRÁ Tónlistar-
félags Akureyrar samanstendur af
fjölbreyttum tónleikum undir heit-
inu Föstudagsfreistingar.
Stjórn Tónlistarfélags Akureyrar
hefur í þessari tónleikaröð fyrst og
fremst fengið atvinnutónlistarmenn
á Norðurlandi til að leika og syngja
og lagt þannig sitt litla lóð á vog-
arskálarnar til að gera þetta svæði
eftirsóttara fyrir góða tónlistarmenn
til búsetu. Þetta sjónarmið er um-
deilanlegt og getur einhverjum
fundist að það geti lækkað gæða-
kröfur og fækkað tækifærum tón-
listarunnenda til þess að fá að njóta
bestu tónlistarkrafta sem landanum
bjóðast hverju sinni. Þetta sjón-
armið á allavega ekki við um flutn-
ing Aladárs á bráðskemmtilegum pí-
anósvítum eftir Ríkharð Örn,
Í kynningarorðum lýsti Aladár því
hvað honum hafi þótt gaman að æfa
svíturnar og sú ánægja var svo sann-
arlega yfirfærð til okkar áheyrenda
á tónleikunum. Ríkharður Örn reyn-
ist snjall í að fara troðnar slóðir í
formbyggingu í þessum verkum, en
að gæða þau um leið á vegferðinni
ýmsu óvæntu bæði í glettni og al-
vöru ljúfra tónmynda. Tónmál djass-
ins er nærri og bæði skemmtilegar
fléttur í kontrapunkti og hljóm-
klasar á söngvagreinum báru góðum
smekk og góðri kunnáttu vitni. Mér
fannst fyrsta svítan grípa mig í mikl-
um andstæðum sínum og þéttleika
og vera heildstæðari en sú nr. 2. Ég
trúi ekki öðru en píanóaðdáendum
þyki fengur að þessum svítum í safni
íslenskra píanóverka.
Glaðbeitt
byrjun
TÓNLIST
Föstudagsfreistingar
í Ketilhúsinu á Akureyri
Á efnisskrá: Svíta nr. 1 (samin 1993) og
Svíta nr. 2 (samin 1998) eftir Ríkharð
Örn Pálsson. Píanóleikur: Aladár Rácz.
Föstudaginn 3. sept. 2000.
Píanótónleikar Tónlistarfélags Akureyrar
bbbbn
Jón Hlöðver Áskelsson
EVRÓPA er miðja bókmennta-
heimsins og bandarískir rithöf-
undar eru orðnir útkjálkamenn,
lét Horace Engdahl, ritari Nób-
els-dómnefndarinnar hafa eftir
sér í síðustu viku og kom þar
með af stað mikilli hneykslunar-
öldu meðal bandarísks bók-
menntafólks. „Það eru kjarnmikl-
ar bókmenntir til á öllum stærstu
menningarsvæðunum, en Evrópa
er nafli bókmenntaheimsins, ekki
Bandaríkin. Þau eru of einangruð
og afmörkuð, þar ekki þýtt nógu
mikið af bókmenntum og þar af
leiðandi taka þau ekki þátt í al-
þjóðlegri umræðu. Þessi fáfræði
er þeim fjötur um fót,“ sagði
Engdahl í samtali við AP-
fréttastofuna.
Charles McGrath, pistlahöf-
undur New York Times, telur
þetta jafngilda yfirlýsingu um
það að bandarískur rithöfundur
hreppi ekki verðlaunin þegar þau
verða veitt á fimmtudag.
Útkjálki
bókmennta-
heimsins
Engdahl Móðgaði bandaríska rit-
höfunda og bókmenntafólk.
NÝ safnbók á ljóðum Sigurðar
Pálssonar, Ljóðnámusafn, er
tilefni fagnaðar sem haldinn
verður á Kaffi Rósenberg í
kvöld.
Fjölmörg önnur skáld ætla
að lesa ljóð eftir Sigurð að eig-
in vali að þessu tilefni, þeirra á
meðal Þorsteinn frá Hamri,
Thor Vilhjálmsson, Guðrún
Eva Mínervudóttir, Vilborg
Dagbjartsdóttir, Sigtryggur
Magnason, Kristín Svava Tómasdóttir, Pétur
Gunnarsson og Linda Vilhjálmsdóttir.
Henrik Björnsson, söngvari hljómsveitarinnar
Singapore Sling, verður með tónlistaratriði í dag-
skrárlok, en lesturinn hefst kl. 21.
Bókmenntir
Ljóðnámusafni
fagnað af skáldum
Sigurður
Pálsson
KVIKMYNDASAFNIÐ sýnir í
kvöld kvikmynd er lýsir síðustu
ævidögum hins fræga spænska
málara, Francisco Goya (1746 –
1828), þar sem hann dvelst í
sjálfskipaðri útlegð í borginni
Bordeaux í Suður-Frakklandi
og lítur yfir farinn veg. Myndin
er í leikstjórn Carlosar Saura.
„Í Goya voru notuð 20 mis-
munandi málverk, sem sonur
minn skannaði og lét prenta út á sérstakt efni til að
skapa 250 feta langan og 30 feta háan bakgrunn,
sem þannig gerði okkur kleift að búa til atriði sem
gerðust inni í myndheimi Goya,“ er haft eftir töku-
manninum Vittorio Storaro. Sýningin verður í Bæj-
arbíói og hefst kl. 20.
Kvikmyndir
Síðustu ævidagar
Francisco Goya
Francisco Goya
KYNJADAGAR Listaháskóla
Íslands standa frá 6. til 10.
október. Dagskrá þeirra er
helguð kynjunum og kynja-
ímyndum. Nemendur Listahá-
skólans og listamenn kynna
verk tengd kynjafræðum og
verða með innlegg.
Í dag klukkan 12 verða flutt
tvö erindi í húsnæði hönn-
unar- og arkitektúrdeildar í
Skipholti 1.
Eva María Árnadóttir mun halda fyrirlest-
urinn „Tískuþrælar og frjálsir menn“, en Arna
Sigrún Haraldsdóttir innleggið „Áhrif fatnaðar á
jafnréttisbaráttu kynjanna.“ Báðar velta fyrir
sér áhrifum útlits og fatavals í nútímanum.
Hönnun
Kynjaímyndir á
Kynjadögum LHÍ
Eva María
Árnadóttir
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
EKVADOR að fornu og nýju nefnist
yfirlitssýning á listmunum og mál-
verkum sem nú stendur yfir í Gerð-
arsafni í Kópavogi.
Á henni eru munir frá 4000 f. Kr.
til okkar daga; úrval fornra leirmuna,
skínandi Inkagull, merkir og sér-
stæðir kirkjumunir frá nýlendu-
tímabilinu og mögnuð málverk eins
þekktasta myndlistarmanns Suður-
Ameríku, Oswaldo Guayasamín
(1919–1999).
„Þetta er merkileg sýning og frá-
bært að fá tækifæri til að sýna menn-
ingu Ekvadors í þessum heimshluta,“
segir Verenice Guayasamín, dóttir
listmálarans mikla, sem stýrir sýn-
ingunni ásamt Pablo bróður sínum.
„Faðir okkar er einn frægasti lista-
maður Suður-Ameríku og sá lang-
þekktasti utan Ekvador. Hann var
mjög mannlegur listamaður og boð-
aði frið í verkum sínum.“
Verenice segir sýninguna hafa
ferðast um heiminn þveran og endi-
langan og t.d. farið til allra landa Am-
eríku.
„Þetta er mjög fjölbreytt sýning
sem gefur góða sýn á list frá heima-
landi mínu. Ég hvet alla til að fara á
hana og nýta þetta einstaka tækifæri
til að fá sýn inn í þennan ólíka menn-
ingarheim því það er ólíklegt að slík
sýning komi aftur til lands svo fjarri
Ekvador,“ segir Verenice sem er í
sinni fyrstu heimsókn til Íslands. Að-
spurð sagði hún veðrið í gær ekki
fæla sig frá landinu, það væri aðeins
heillandi.
Sýningin í Gerðarsafni er tvíþætt
en auk yfirlitssýningarinnar eru sýnd
þar ofin veggteppi og málverk frum-
byggja frá Amazón-svæðinu og úr
Andesfjöllum, máluð á skinn, og
skartgripir.
Sýningin stendur til 16. nóvember
og er hluti af ekvadorskri menning-
arhátíð í Kópavogi.
6000 ára gamlir listmunir og málverk frá Ekvador í Gerðarsafni
Skínandi Inkagull í Kópavogi
Morgunblaðið/Eggert
Dóttir „Þetta er merkileg sýning og frábært að fá tækifæri til að sýna
menningu Ekvadors í þessum heimshluta,“ segir Verenice Guayasamín.
María mey með
barnið, 18. öld.
Portrett af höfð-
ingja, Tolitamenn-
ingin (500 f.
Kr.-500e. Kr.).
Verk eftir Oswaldo
Guayasamín. Móðir
og barn í bláu, 1989.
Munir frá
Ekvador
Okkarína í konu-
líki, Bahíamenn-
ingin (500 f.
Kr.-500 e. Kr.).
Veltiker, Inka-
tímabilið (1450-
1535).
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
FUNDUR stjórnar Alþjóða Suzukisambandsins fer nú fram á Ís-
landi í fyrsta sinn. Hann hófst á sunnudaginn og lýkur í dag. „Það er
mikið útgáfustarf á vegum samtakanna, meðal annars byggir Su-
zuki-kennsla mikið á upptökum og verið er að skipuleggja hvernig
staðið skuli að þeim,“ segir Haukur F. Hannesson stofnandi Suzuki-
tónlistarskólans í Reykjavík og formaður Alþjóða Suzukisambands-
ins. Þá er verið að ræða hvaða lönd eigi að koma ný inn í Suzuki-
kerfið og hvernig eigi að standa að því. „Þarna er verið að leggja lín-
urnar í aðferðinni og þróun hennar.“
Haukur segir að ákveðið hafi verið að halda ráðstefnuna hér á
landi vegna þess að starf íslenskra Suzuki-kennara hafi vakið at-
hygli. „Suzuki-starf er mjög mikið á Íslandi, hér eru 35 menntaðir
Suzuki-kennarar sem er heimsmet miðað við hina frægu höfðatölu,“
segir Haukur og hlær. „Síðan er árangurinn í kennslunni mjög góð-
ur hér og þetta hefur vakið forvitni stjórnarmanna. Þau fóru því
fram á að fundurinn yrði haldinn hér á landi svo þau gætu kynnt sér
starfið hér.“
Línur í Suzuki-kennslu lagðar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leiðtogar Stjórn Alþjóða Suzukisambandsins leggur nú línurnar í starfinu.