Morgunblaðið - 25.10.2008, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 25.10.2008, Blaðsíða 22
22 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2008 um 28,8 milljónir tunna á dag. Ali al-Naimi, olíumálaráðherra Sádi-Arabíu, sagði að loknum fundi OPEC í gær, að eftirspurn eftir olíu sé nú töluvert minni en fram- leiðslan, samkvæmt frétt Bloom- berg-fréttastofunnar. Verð á Brent-Norðursjávarolíu fór í gær í um 61 dollar fyrir tunn- una og hefur ekki verið lægra síðan í mars 2007. Í New York fór verðið í um 63 dollara en þar hefur það ekki verið lægra frá því í maí árið 2007. gretar@mbl.is HEIMSMARKAÐSVERÐ á hráolíu hélt áfram að lækka í gær. Þetta gerðist þrátt fyrir að samtök olíu- framleiðsluríkja, OPEC, hefðu ákveðið á fundi sínum í gær að draga úr olíuframleiðslu vegna gríðarlegs verðfalls, í fyrsta skipti í tæp tvö ár. Ástæðan fyrir verð- lækkuninni er rakin til fjármála- kreppunnar í heiminum. OPEC-ríkin ákváðu að skera ol- íuframleiðsluna niður um 1,5 millj- ónir tunna á dag frá og með nóv- embermánuði, en þau framleiða nú Verðlækkun þrátt fyrir niðurskurð ÞETTA HELST ... ● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís- lands lækkaði um 2,07% í dag. Eim- skipafélagið hækkaði um 2,44%, Marel um 1,0% og Össur um 0,23%. Bakkavör lækkaði hins vegar um 23,40%, Atorka um 10,45% og Ice- landair um 2,75%. Þá lækkaði Cent- ury Aluminum um 12,69%. Heildarvelta í Kauphöllinni nam 5,3 milljörðum, en velta á hluta- bréfamarkaði nam 13,7 milljónum króna. Mest var veltan með bréf Ice- landair, eða rúmar sex milljónir króna og þá var 2,4 milljóna króna velta með bréf Marels. bjarni@mbl.is Lækkanir í Kauphöll Íslands ● HÆKKUN verðlags í október mun verða 2%, gangi spá grein- ingardeildar Kaup- þings eftir, og þýðir það að tólf mánaða verðbólga verður 15,7%. Segir í verð- bólguspá greiningardeildarinnar að verðbólga muni hins vegar ekki ná há- marki fyrr en í fyrsta lagi á fyrsta fjórð- ungi 2009. Veikist gengi krónunnar ekki frekar megi búast við að verulega hægi á mánaðarhækkunum verð- bólgu á seinni hluta árs 2009. Þó séu litlar líkur á að tólf mánaða verðbólga verði nærri 2,5% markmiði Seðla- bankans fyrr en í upphafi árs 2010. bjarni@mbl.is Spá 15,7% verðbólgu í október ● HUNDRUÐ vogunarsjóða í Banda- ríkjunum ramba nú á barmi gjald- þrots og munu þeir því þurfa að selja umfangsmiklar hlutabréfaeignir sín- ar, að mati Nouriel Roubini, prófess- ors við New York University. Geti því farið svo að stjórnvöld í Bandaríkj- unum neyðist til að loka kauphöllum í viku eða jafnvel lengur. Kerfisáhættan aukist í sífellu og útlit sé fyrir stórfellda hlutabréfasölu vogunarsjóða á næstunni. Þá muni fjöldi slíkra sjóða fara á hausinn. bjarni@mbl.is Jafnvel þurfi að loka kauphöllum ● TAP Eikar banka nam 32 millj- ónum danskra króna (um 650 millj- ónum íslenskra króna) á þriðja árs- fjórðungi þessa árs, en á sama tímabili í fyrra nam hagnaður fær- eyska bankans 282 milljónum danskra króna. Hreinar vaxtatekjur námu 374 milljónum danskra króna á fjórð- ungnum, en voru 286 milljónir í fyrra. Eiginfjárhlutfall bankans er 10,1%. Eiga tölurnar við um sam- stæðureikning. bjarni@mbl.is Eik banki tapar 650 milljónum Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is Í kringum 150 starfsmönnum Kaupþings á Íslandi verður ekki boðið starf í Nýja Kaupþingi samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Munu þá rúmlega 1.100 starfsmenn starfa hjá Nýja Kaupþingi. Einhverju af starfsfólki hafði áður verið sagt upp frá síðustu áramót- um. Þá störfuðu 1.262 starfsmenn hér á landi sam- kvæmt ársskýrslu félagsins en 3.400 hjá allri samstæð- unni. Finnur Sveinbjörnsson, forstjóri Nýja Kaupþings, vildi ekki staðfesta neina tölu í samtali við Morgunblað- ið í gær. Hann sagði að færri en 200 yrði sagt upp en fleiri en 100. Hver starfsmaðurinn á fætur öðrum var boðaður á fund yfirmanna í gær þar sem tilkynnt var að þeim byðist ekki vinna í Nýja Kaupþingi. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins var ekki öllum sagt upp í gær sem missa vinnuna. Þessi vinna mundi klárast um helgina. Tveir starfsmenn sem Morgunblaðið ræddi við í gær sögðu að fólk hefði verið niðurdregið. Annar þeirra missti vinnuna og sagði óvissuna framundan. Hinn sagði leiðinlegt að sjá á eftir mörgum vinnufélögum. Hvorugur vildi koma fram undir nafni vegna aðstæðna. Um 450 hafa misst vinnuna Um síðustu áramót störfuðu um 7.900 manns hjá við- skiptabönkunum þremur um allan heim. Á þessu ári hefur starfsfólki verið fækkað skipulega, sérstaklega hjá Glitni og Kaupþingi. Nú hefur erlenda starfsemin verið skorin frá og um 450 manns misstu vinnuna hér á Íslandi þegar nýju bankarnir voru stofnaðir. Um 150 missa vinnuna  Tæplega átta þúsund manns unnu í viðskiptabönkunum  Nú starfa um 3.050 hjá nýju ríkisbönkunum þremur % &!'  >,4 #5  #  @@A   #B?, < 3 : ( >,4 #5  #  @@A   #B?, 0  )*+, >,4 #5  #  @@A   #B?,  @= C #5  #9  @= A $ 9   8 #4#   @@  ",B?,  @= + 4  #@@  "  9   @@        FRÉTTASKÝRING Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is BÚIÐ er að gera laun tveggja þeirra þriggja einstaklinga sem settust nýverið í bankastjórastóla nýju bankanna opinber. Finnur Sveinbjörnsson, forstjóri Nýja Kaupþings, er með 1.950 þús- und á mánuði og í gær var tilkynnt að Birna Einarsdóttir hjá Nýja Glitni væri með 1.750 þúsund króna mánaðarlaun. Laun Elínar Sigfúsdóttur, banka- stjóra Nýja Landsbankans, eru hins vegar enn á huldu. Böðvar Jónsson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra og stjórnarmaður í Nýja Landsbank- anum, segir að þannig verði það áfram og að hann eigi ekki von á því að upplýst verði um þau. Stjórnirnar ákveða launin Laun Birnu eru 200 þúsund krón- um lægri á mánuði en laun Finns. Þóra Margrét Hjaltested, stjórn- arformaður Nýja Glitnis, segir það ákvörðun hverrar stjórnar fyrir sig hver launin séu. „Launakerfi bank- anna er ekki nákvæmlega það sama og það varð að samkomulagi í stjórninni hjá okkur að hafa þetta með þessum hætti.“ Finnur segir engar eiginlegar samningaviðræður hafa átt sér stað um launin hans. „Stjórnin bauð mér ákveðin laun og ég gat samþykkt þau eða hafnað starfinu. Og stjórn- in starfar í umboði hluthafans sem er ríkið.“ Allt á að vera uppi á borðum Aðspurður hvort þessi laun væru of há sagði Finnur að horfa yrði á þessa hluti í samhengi. Í stórum opinberum fyrirtækjum séu heildarlaun margra stjórnenda, þegar allar greiðslur eru taldar með, um tvær milljónir króna. „Hjá mér er þetta mjög einfalt. Þetta eru mín mánaðarlaun og ég fæ ekkert meira. Ef ég fæ stjórnarlaun ein- hvers staðar þá renna þau til bank- ans. Ef ákveðið er að ég fái bíl til umráða á kostnað bankans, sem ég hef ekki núna, þá lækka launin sem nemur þeim kostnaði.“ Honum finnst að allt eigi að vera uppi á borðum þegar kemur að launamálum stjórnenda í ríkisfyr- irtækjum. Um það hafi hann og stjórn Kaupþings verið sammála. Enda greindi hann fúslega frá laun- um sínum þegar að því var spurt. Stjórnarmenn þiggja ekki laun Þeir sem sitja í stjórnum nýju bankanna þiggja hins vegar ekki laun fyrir vinnu sína. Þóra segir almennu regluna vera þá að laun stjórnarmanna verði ákveðin á hluthafafundi. Eini slíki fundurinn sem haldinn hafi verið var þegar bankinn var stofnaður og þar hafi ekki verið tekin ákvörðun um launin. Hún segir ekki liggja fyrir hvenær næsti hluthafafundur Í Nýja Glitni verði haldinn. Eini hluthafinn í nýju bönkunum er ís- lenska ríkið. Aðspurður staðfestir Böðvar að engir stjórnarmenn hinna nýju bankanna fái greidd laun. Áður hefur verið tilkynnt að þeir sem sitja í skilanefndum bankanna fái um 265 þúsund krónur á mánuði fyrir nefndarstörf sín. Skilanefnd- irnar heyra undir fjármálaráðu- neytið (FME) og nefndarmenn eru tímabundnir starfsmenn stofnunar- innar á meðan þeir starfa í skila- nefndunum. Auk launanna eru gerðir verk- samningar við vinnuveitendur nefndarmannanna vegna annarrar vinnu eða álags. Ekki sömu laun í bönkunum Morgunblaðið/Árni Sæberg Neita að upplýsa Nýi Landsbankinn er eini bankinn sem hefur ekki gert laun bankastjórans opinber.  Mismunandi launakerfi hjá bönk- unum  Stjórnir þeirra þiggja ekki laun Í HNOTSKURN »Laun tveggja af þremurbankastjórum nýju bank- anna hafa verið gerð opinber. » Ekki stendur til að upp-lýsa um laun þess þriðja, Elínar Sigfúsdóttur hjá Nýja Landsbankanum. » Launin eru ekki sam-ræmd, heldur ákveðin af stjórnum hvers banka fyrir sig. #.    - ./   0 1 &- ./2&3(4&'  5 ,   01,!2!3  2  1 D " 1 : 0 @" ' :: 94 0 @" +E " .+#:@ F A  7D   0 @" @=' :" $  " G)HB  # I' >, 3" 6 " 4! 1!5!#   1 D1 J - 1 DG  #GK> +:' : >L - ' : B?" ," ! 4 " 0 ! .!5!'  M -1 ##M .'0 " . #@ , "  &*/  ! . 8 8. 9.  : 9.88 9.8 . 8  .88 888.88  9.  .88 .88 .  .88 : :                               ! :@   / 3 5 : N  @   I   I   I I I I I  I I  I I I O I  I I I O I I I I I  O I I O I I I I O I O  I I I   O  O I I  O  I >,4  9 :@ I  I   I  I I  I I I I I  I I ;  9 :9   I    1/ 1/ 1/ 1/  1/ 1/ H$P6 H$P$  7. 7 . Q Q H$P 7'P   7.9 7. Q Q ;J& B  R 9  7. 7. Q Q >/+ ;1P    7 .8 7 .8 Q Q H$P8 H$P   7. 7. Q Q ● ÚTLIT er fyrir að evrópski seðla- bankinn muni lækka stýrivexti sína enn frekar innan tíðar, að því er segir á fréttavef FT. Hagvaxtarspár fyrir evrusvæðið eru svartsýnar og verð- bólga á hraðri niðurleið. Við slíkar aðstæður sé létt að lækka vexti. José González-Páramo, stjórn- armaður í seðlabankanum, sagði í viðtali við írskt dagblað í gær að hag- vöxtur færi minnkandi og verðbólgu- þrýstingur sömuleiðis. Þessir þættir kæmu nýir inn í útreikninga seðla- bankans. Gæti seðlabanki Evrópu því lækkað vexti án þess að auka verðbólguþrýsting. bjarni@mbl.is Frekari vaxtalækkana að vænta í Evrópu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.