Morgunblaðið - 25.10.2008, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 25.10.2008, Qupperneq 25
Daglegt líf 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2008 og sinnti ákveðnum deildum. Á fyrstu vakt minni var nýfæddur drengur mjög hætt kominn. Hann er rómversk-kaþólskur en þar sem ekki náðist í rómversk-kaþólskan prest í tíma var ég, lútherski presturinn, beðinn um að skíra drenginn. Þegar kom að því að fara með Faðirvorið uppgötvaði ég að ég kunni það ekki alveg utan að á ensku. Ég spurði for- eldrana hvort ég mætti ekki fara með það á móðurmáli mínu. Það var sjálf- sagt. Ég fór með það á íslensku hátt og skýrt og foreldrarnir og hjúkr- unarfólkið á ensku. Þessi drengur lif- ir í dag. Þarna sannaðist eins og oft áður að maður verður að nota það sem maður hefur og manni er gefið. Og þó það hafi í þessu tilviki vantað upp á eitthvað í enskunni þá bless- aðist þetta allt saman. Maður er bara yfirleitt ágætur eins og maður er, það þarf ekkert að sýnast heldur bara að vera maður sjálfur. Ég vann líka á stórri sjúkradeild fyrir eldra fólk. Þar voru hundrað og tuttugu manns og einungis einn sjúklingur hafði fótaferð. Þvílíkir gimsteinar sem þessar manneskjur voru. Ég sakna þeirra. Maður þurfti bara að gefa sér og þeim tíma, setj- ast niður með þeim og vera náung- anum náungi. Þetta fólk var allt að horfast í augu við dauðann. Það er aðeins einn hlutur sem allar mann- eskjur vita og það er að þær munu deyja. Ég þakka Guði fyrir að hafa trú. Fólk bregst mjög misjafnlega við dauðanum. Það hljómar kannski einkennilega en ég hef fylgt fólki sem tekst svo yfirvegað á við dauð- ann að ég hef gengið af fundi þess fullur af krafti, þreki og þori. Ég hugsa núna til Sigurbjarnar Ein- arssonar biskups sem átti langa og merkilega ævi og oft tók á hjá hon- um eins og okkur öllum. Alltaf gaf hann í framkomu sinni trú, von og kærleika fram til hins síðasta. Dauðinn kemur á mismunandi hátt. Þeir sem greinast með illkynja sjúkdóma gera sitt besta. Ég hef kynnst fólki sem sýnir mikið æðru- leysi og stillingu í návist dauðans. Fólki sem þekkir lífið og tekur á móti dauðanum. Það er svo óend- anlega margt sem maður lærir af fólki. Við höfum svo margt að gefa og þiggja hvert af öðru. Stundum er deyjandi fólk í afneit- un og aðstandendur sömuleiðis. Oft er fólk líka að hlífa sínum nánustu. Svo kemur dauðinn allt í einu. Ég hef verið í þeim sporum að jarð- syngja fermingarbörn, unga sam- starfsmenn mína, unga foreldra eða lítil börn. Því fylgir ósegjanlega mikil sorg að kveðja og það er sama hver á í hlut. Sorg er alltaf sorg. Það er heldur ekki hægt að lýsa því hvernig manni líður þegar mað- ur stendur á húsdyratröppum í Grafarvoginum í hádeginu og hring- ir bjöllunni hjá manneskju sem hef- ur misst ævifélaga og foreldri barna sinna. Viðkomandi opnar, á von á vinum sínum í hádegismat og sér mann með prestakragann um háls- inn. Viðkomandi heldur að maður sé að spauga. Maður er kominn til að segja viðkomandi að makinn sé lát- inn. Það er líka erfitt að lýsa því hvernig manni líður þegar maður þarf að hringja út á sjó og segja sautján ára gömlum unglingi að hann hafi misst móður sína. En sorgin er ekki mín heldur er sorgin þeirra sem hafa svo mikið misst. En fólk treystir mér til að vera með því í sorginni. Þvílík gjöf að vera treyst og treysta!“ Guð hefur húmor Hvernig er að tala við fólk sem hann. Ég veit ekki hvort samtalið við mig hjálpaði honum en það hjálpaði mér heilmikið að tala við hann.“ Kemstu hjá því að taka hluti inn á þig? „Auðvitað tek ég hluti inn á mig. En maður lærir ákveðnar aðferðir. Í ástandi eins og ríkir núna er mik- ilvægt að muna eftir grunnregl- unum í álagi, það er að biðja, borða, sofa og hreyfa sig. Líkaminn og and- inn verða að hafa jafnvægi. Hver um sig verður að átta sig á því hvað hjálpar honum. Sumir lesa góða bók. Aðrir hlusta á tónlist. Mín aðferð er að hlaupa um götur Lundúna með iPhoninn og tæma hugann og tala við Guð. Eina sögu þreytist ég aldrei á að segja og ég held að boðskapur henn- ar sé mikilvægur á tímum eins og þessum. Þú ert farþegi í flugvél ásamt barni þínu. Flugstjórinn seg- ir: „Við þurfum að fara úr 30.000 fet- um í 10.000 fet á örskömmum tíma.“ Hvernig bregstu við? Seturðu súr- efnisgrímuna fyrst á þig eða barnið sem situr við hlið þér? Þú setur hana á þig til að geta hjálpað barninu. Skilaboðin í þessari sögu eru þau að þú verður að hlúa að eðlilegum þörf- um þínum til að geta sinnt öðrum. Svo megum við ekki gleyma að það er svo margt skemmtilegt og undur fallegt í lífinu. Og Guð hlýtur að hafa húmor fyrst hann skapaði okkur.“ Morgunblaðið/Kolla » „Fólk er kvíðið og mörgum líður illa þótt þaðhafi ekki verið búsett á Íslandi lengi. Ég er fyrst og fremst að sýna nærveru og kærleika eins og mér ber. Það að vera prestur er ekki starf, það er lífsmáti.“ veit að það er að deyja en trúir ekki á Guð? „Ég man alltaf eftir eðl- isfræðiprófessor í Ameríku sem var þekktur fyrir rannsóknir sínar og skoðanir. Hann var sjúklingur á spítalanum þar sem ég var í starfs- námi. Hann átti stutt eftir og starfs- fólki fannst hann orðinn meyr. Ég var spurður hvort ég gæti bankað upp á hjá honum af því hann væri greinilega einmana og liði illa. Um leið var mér sagt að hann tryði ekki á Guð. Ég fór inn til hans og var frekar stressaður og fékk frá honum ógleymanlegt kankvíst bros. Það sést svo mikið í andliti fólks og aug- um hvort það leyfir manni að koma inn fyrir skel þess. Mér fannst ég finna að hann væri tilbúinn til þess að hleypa mér að sér. Ég sagði við hann að hjúkrunarfólkið hefði áhyggjur af því að honum liði illa og spurði hann hvort það væri rétt. Hann leit á mig og sagði: „Ég þakka þér fyrir hreinskilnina. Ég er mjög einmana og mér líður ekki vel.“ „Ertu hræddur við dauðann?“ spurði ég. „Já, ég er hræddur við dauðann,“ svaraði hann. „Ég skil,“ sagði ég. Við töluðum saman eins og tvær manneskjur sem ná sambandi hvor við aðra og sýna kærleik og skilning. Í lokin spurði ég hvort ég mætti biðja upphátt. „Það mun sennilega ekki skaða,“ sagði hann og brosti sönnu brosi. Daginn eftir dó

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.