Morgunblaðið - 25.10.2008, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 25.10.2008, Blaðsíða 48
„ÉG var bara að fara út með ruslið og það var hálka á pallinum þannig að ég flaug á hausinn. Þumalputtinn skaddaðist og ég er í gifsi, og vonandi þarf ekki að skera í mig,“ segir tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens sem slasaðist við heimili sitt við Meðalfellsvatn í gær- morgun. Um er að ræða þumalfingur hægri handar og því ljóst að Bubbi spilar ekki mikið á gítar á næstunni. Hann þurfti því að aflýsa tónleikum sem hann ætlaði að halda í Reykjanesbæ í gær, og sömuleiðis tónleikum sem áttu að fara fram í Hafn- arfirði í kvöld. „Þetta hefði sloppið ef þetta hefði verið litli putti, hvorum megin sem er,“ segir Bubbi og hlær. „En ég er voðalega feginn að hafa ekki handleggsbrotnað, eða að fingurinn hafi bara ekki rifnað af. Ég ætlaði nefnilega að stoppa mig en þá fór höndin inn í grindverk þannig að það flettist upp á puttann.“ Aðspurður segist Bubbi þó ekki hafa farið beint á slysavarðstofuna. „En svo ágerðist verkurinn, og það 48 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2008 Fólk  Tónlistarmaðurinn Einar Ágúst, er skaust til frægðar með Skíta- móral á sínum tíma, finnur greini- lega fyrir kreppunni því hann hefur nú óskað eftir vinnu á Facebook- síðu sinni. Þar segist hann jafnvel vera reiðubúinn til þess að leggja það á sig að vakna fyrir hádegi. Fjöldi fólks tjáði sig í kjölfarið til að benda honum á hugsanlega at- vinnumöguleika. Einn félagi hans bendir honum á að skella sér í sjó- mennskuna og önnur vinkona seg- ist ætla að borga honum með knúsi fyrir að þrífa heima hjá sér. Enn annar félagi mælir með því að hann taki að sér vinnu í Landsbankanum til þess að taka til í starfseminni þar. Hvort Einar tekur eitthvað af þessum verkefnum verður að koma í ljós en það hlýtur að segja til um breytt ástand í þjóðfélaginu þegar stjörnur á borð við hann óska eftir vinnu á þennan hátt. Einar gaf út fyrstu sólóplötu sína, Það er ekkert víst að það klikki, í fyrra. Óskar eftir vinnu í gegnum Facebook  Fyrstu fimm þúsund eintökin af Sleepdrunk Seasons, frumburði hljómsveitarinnar Hjaltalín, eru uppseld hjá útgefanda. Samkvæmt tilkynningu frá sveitinni var ekki ákveðið að prenta sömu upptökur aftur, heldur notast við upplag af bresku útgáfu plötunnar sem inni- heldur lagið „Þú komst við hjartað í mér“. Lagið sem nýlega sló Íslands- met í sölu á Tónlist.is, verður því fá- anlegt á efnislegri plötu með Hjal- talín en áður hafði það komið út á Pottþétt safnplötu. Hjaltalín hyggst sjálf gefa út plötuna sína í Bret- landi í næsta mánuði og var ákveðið að setja sumarslagarann, „Þú komst við hjartað í mér“, inn sem aukalag. Hjaltalín sló í gegn á síð- ustu Airwaves-hátíð og eins og kom fram í Morgunblaðinu varð allt vit- laust í Hafnarhúsinu þegar Páll Óskar steig á svið í fyrrnefndu lagi. Ný plata ætti að líta dagsins ljós í lok sumars 2009. Hjaltalín-plata með aukalagi fáanleg Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „MÉR gengur bara alveg ágætlega, þakka þér fyrir,“ segir óperusöngv- arinn Garðar Thór Cortes þegar blaðamaður spyr hann hvernig lífs- baráttan gangi. Garðar er staddur hér á landi um þessar mundir, en hann syngur í Ástardrykknum sem Íslenska óperan frumsýnir í febrúar. Hann hefur þó ekki sagt skilið við útlönd, heldur þvert á móti. „Ég er til dæmis nýkominn frá Berlín þar sem ég var með tónleika í síðustu viku. Svo er ég að fara til Ír- lands, til Dublin, þar sem ég verð með tónleika í næstu viku. Þannig að lífið heldur áfram.“ Fyrri plata Garðars, sem heitir einfaldlega Cortes, kom út í Þýska- landi, Sviss og Austurríki í gær, og voru tónleikarnir í Berlín ætlaðir til kynningar á henni. „Tónleikarnir í Dublin verða hins vegar einsöngstónleikar með hljóm- sveit í Royal Concert Hall þar í borg. Ég var þarna í janúar og þeir buðu mér aftur. Þeir tónleikar eru þó ekki tengdir plötunum sérstaklega, held- ur eru þetta einsöngstónleikar þar sem ég syng óperuaríur og íslensk lög.“ Aðspurður segist Garðar ekki vera kominn með nýjan umboðs- mann í stað Einars Bárðarsonar. „Ég er hins vegar kominn með um- boðsmann í Þýskalandi. Hann sér um plötuna þar, í Austurríki og Sviss,“ útskýrir hann. En er Garðar bjartsýnn á frekari velgengni erlendis? „Ég reyni nú alltaf að fókusera bara á það sem ég er að gera, og ef ég fæ tækifæri til þess að koma fram og syngja eins og ég var að gera í Berlín, þá er ég ánægður. Og ef fólki líkar það sem ég geri, þá er markinu náð. Varðandi velgengni, þá hugsa ég ekki þannig. Ég hugsa bara um að gera alltaf mitt besta og leggja mitt af mörkum. Ef ég er sáttur við það sem ég geri sönglega og listrænt séð, þá er ég glaður.“ Lífið heldur áfram Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Bjartsýnn „Varðandi velgengni, þá hugsa ég ekki þannig. Ég hugsa bara um að gera alltaf mitt besta og leggja mitt af mörkum,“ segir Garðar Thór. Það er enn nóg að gera hjá Garðari Thór Cortes í útlöndum Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@mbl.is UNDIRBÚNINGUR fyrir sjöundu tónleika Frost- rósanna stendur nú sem hæst. Í fyrra var slegið Íslandsmet þar sem framtakið náði rúmlega 11 þúsund manns á þrenna tónleika þeirra í Laug- ardalshöll og á tónleikaferð þeirra um kirkjur landsins. Í ár vilja Íslensku dívurnar gera sitt til þess að hjálpa þeim er eiga um sárt að binda eftir þrot bankakerfisins. Það er gert með því að gefa 500 miða á stórtónleika þeirra í ár í Laugardalshöll til þeirra er mest þurfa. Ráðstafanir hafa verið gerð- ar til þess að miðarnir rati í réttar hendur. Auk þess verður jólagjöf færð Mæðrastyrksnefnd og öðrum samtökum á höfuðborgarsvæðinu fyrir hvern seldan miða sem eiga að skila sér til þeirra er vantar aðstoð við jólainnkaupin. Gefa vinnu sína „Með þessu móti náum við halda tónleikana, þar sem þetta er nú orðin hefð hjá þúsundum manna að koma,“ segir Samúel Samúelsson, fram- kvæmdastjóri verkefnsins, er segir sama munu gilda komi til aukatónleika. „Íslenskir tónlist- armenn eru alltaf fyrstir til að gefa vinnu sína og láta gott af sér leiða. Einhvern tímann þurfa þeir nú líka að fá borgað og þessir tónleikar eru fastur liður í þeirra árstekjum. Með þessu móti náum við bæði að tryggja þeirra vinnu og láta gott af verk- efninu leiða.“ Í ár er Íslenski dívuhópurinn settur saman af þeim Margréti Eir, Heru Björk, Eivöru Pálsdóttur og Dísellu Lárusdóttur er allar koma fram á stór- tónleikum þann 13. desember ásamt Jóhanni Frið- geir, Garðari Cortes, Guðrúnu Árný og Edgar Smára. Það hefur verið hefð fyrir því síðustu ár að gefa út tónleika ársins áður á geisla- og mynd- disk og engu verður breytt í þeim efnum. Aftur á móti hafa Dívurnar í ár einnig gert hljóðversdisk þar sem hvergi er sparað í glæsileika. „Fyrsta Frostrósarplatan var sú lang-söluhæsta sem við höfum gefið út þannig að við endurtökum leikinn. Þessi plata er mjög stór í útsetningum, með kór- um og strengjasveitum. Þetta er örugglega eitt stærsta útgáfuverkefni sem hefur verið gert hérna á Íslandi,“ segir Samúel brattur. Láta gott af sér leiða Íslensku dívurnar hafa ákveðið að bjóða 500 manns, er eiga um sárt að binda, á væntanlega stórtónleika Frostrósanna í Laugardalshöll um miðjan desember. Morgunblaðið/Kristinn Íslensku dívurnar Hópurinn er glæsilegur en stór hluti hans fer einnig í ferðalag um landið í desember, auk þess að koma fram á stórtónleikum í Laug- ardalshöll þar sem 500 manns verður boðið í gegnum góðgerðarsamtök á höfuðborgarsvæðinu. Kannski að metið frá í fyrra verði slegið. kom svona smellur í puttann þegar ég hreyfði hann. Þá fór ég að hugsa að þetta gæti verið alvarlegt, og fór þá.“ Ekki er ljóst hvað Bubbi þarf að vera lengi í gifsi, en hann á að koma í skoðun hjá lækni eftir viku. „Þannig að það verða engir tónleikar um helgina, og ekki heldur eftir helgi. Þá átti ég að vera á Sauðárkróki, Dalvík, Akureyri og Húsavík. Þannig að þeir tónleikar frestast eitthvað.“ jbk@mbl.is Tónleikum frestað vegna fingurmeiðsla Bubba Lán í óláni Bubbi segist feginn að hafa ekki hangleggsbrotnað þegar hann datt í gærmorgun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.