Morgunblaðið - 26.10.2008, Qupperneq 1
2 6. O K T Ó B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
293. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
LAGASETNING»6 NORÐURLÖND»34
„Þetta eru alvarleg tíðindi sem berast frá
Íslandi og þegar eitthvað hendir bróður
manns snertir það mann sjálfan,“ segir
Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra
Noregs. Noregur sé reiðubúinn að leggja
sitt af mörkum í víðtækri alþjóðlegri að-
stoð við Íslendinga og spurður um kröfur
Breta vegna Icesave svarar hann að
Norðmenn muni ekki flækja málið hvað
skilyrði varðar. En Íslendingar þurfi sjálfir
að axla ábyrgð. „Þetta voru ekki nátt-
úruhamfarir og Íslendingar þurfa að
ræða það hvort stefnan var rétt,
hvort reglurnar stóðust.“
Samkennd
bræðraþjóða
Svo getur farið að mörg riftunar- og
skaðabótamál verði höfðuð fyrir ís-
lenskum dómstólum vegna neyðarlag-
anna, sem Alþingi setti vegna efna-
hagsástandsins.
Ríkisvaldið mun lík-
lega bera fyrir sig
stjórnskipulegan
neyðarrétt en
engin fordæmi
eru hins
vegar
fyrir
slíku.
Réð neyðar-
réttur ríkjum?
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
BJÖRGÓLFUR Guðmundsson segir
að engin reynsla hafi reynst sér jafn-
erfið og hrun íslenska bankakerf-
isins.
„Nei, það kemst ekkert í líkingu
við þetta. Það er rétt hjá þér, að ég
og fjölskylda mín höfum gengið í
gegnum mikla erfiðleika, sem mér
dettur ekki í hug eitt andartak að
gera lítið úr, en þetta er það erfiðasta
sem ég hef lent í vegna þess að það
er öll þjóðin sem á í hlut og líður fyrir
það hvernig málum er komið.
Þessar hamfarir virka eiginlega á
þjóðina eins og eldgosið í Vest-
mannaeyjum virkaði á Vest-
mannaeyinga á sínum tíma. Það voru
náttúruhamfarir á einni nóttu sem
gerðu það að verkum að fólk á einni
eyju flúði til lands, nánast án þess að
vita hvað hafði dunið yfir það. Þetta
eru alþjóðlegar efnahagslegar ham-
farir af mannavöldum.“
Persónuleg veð
„Nær allar mínar skuldir eru með
mínu persónulega veði. Mér er ekki
kunnugt um hvort aðrir hafa gengið í
miklar persónulegar ábyrgðir vegna
félaga þar sem þeir eiga hlut. Ég
skrifa sjálfur upp á mínar lántökur,
þannig að það eru ekki bara hlutirnir
sem ég á í ólíkum félögum sem eru
að veði, heldur ég sjálfur. Í dag veit
ég ekki hvernig ég stend. Ég og aðrir
erum að vinna í því en ég segi það
hreinskilnislega, að ég veit ekki
hvernig ég kem út úr slíku uppgjöri.
Ég á ekkert von á því að það fari
vel.“
Eignir duga fyrir skuldum
„Vitanlega hefur aldrei staðið til
að skuldsetja íslensku þjóðina til
framtíðar vegna Icesave-reikning-
anna og það verður ekki gert. Má ég
benda á, að ríkið tók yfir allar eignir
Landsbankans með lagasetningunni
hinn 6. október. Vissulega einnig
skuldir hans, en ég er þess fullviss að
ef rétt verður farið með þær eignir
duga þær fyrir Icesave-reikning-
unum og gott betur.“
Mín erfiðasta reynsla
Þjóðin Það er öll þjóðin sem
á í hlut og líður fyrir ástandið
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Óvissa Björgólfur Guðmundsson, fráfarandi stjórnarformaður Landsbankans, var stærsti hluthafinn í Landsbankanum ásamt syni sínum, Björgólfi Thor.
Hann segir að fullkomin óvissa ríki um eigna- og skuldastöðu sína nú. Hann sé í sömu sporum og svo margir aðrir, að vita ekki hvar hann stendur.
Icesave Eignir bankans eiga
að duga fyrir þeim skuldum
Eignir Á ekki von á að eigna-
uppgjör hjá mér fari vel
Allt undir hjá mér | 12
Kvennalandsliðið í fótbolta
skipa stelpur með sterk bein. Þær
mælast með 24% þéttari bein en jafnöldrur.
Þær spila gegn Írum í dag og aftur
á Laugardalsvelli 30. október.
Mætum þá og hvetjum
stelpur með sterk
bein til sigurs
LUMMUR OG
PÖNNUKÖKUR
UM HELGAR
Í CAFÉ LOKA
Sautján bækur, barna-
bókaverðlaun og
tenging í tónlistinni
NÆSTUM
NÆM
SÉR TIL
ÓBÓTA
TENGSL:MÆÐGININ
ÞÓRUNN OG GUNNAR
[ ]VISTVÆNAR Umhverfisvæn tískafellur í kramið um þessar mundir
SUNNUDAGUR