Morgunblaðið - 26.10.2008, Blaðsíða 33
Ólöfu Jakobínu Ernudóttur langaði tilþess að fólk gæti styrkt gott málefni ogeignast fallegan hlut í leiðinni. Ólöf
sem er innanhúsarkitekt er hönnuður bleika
snagans Bínu, sem seldur er til styrktar
Krabbameinsfélagi Íslands en eins og margir
vita er október helgaður baráttunni gegn
brjóstakrabbameini.
„Hugmyndin að hönnuninni kemur frá
skápahöldu af eldhúsinnréttingum sem voru al-
gengar í húsum byggðum hér á árunum 1950-
60. Mér fannst þetta svo fallegt form og langaði
að gera eitthvað úr því. Upphaflega ætlaði ég
aðeins að gera nokkra snaga í mismunandi lit-
um til að hengja upp á vegg í herberginu hjá
syni mínum,“ útskýrir Ólöf Jakobína um hvern-
ig hugmyndin að hönnuninni kom til.
Íslensk hönnun og handverk
Hún segir að ekki hafi verið hlaupið að því að
finna einhvern sem gæti gert þetta fyrir hana
því ekki margir renni í tré. Hún fann að lokum
samstarfsmann í Úlfari Sveinbjörnssyni, sem
renndi snaga fyrir hana úr beyki. Þegar hún
var komin með prufur í hendurnar minnti lög-
un snagans, séð aftan frá, hana á brjóst. „Þá
fékk ég þessa hugmynd að sprauta hann bleik-
an og leggja Krabbameinsfélaginu lið í leið-
inni,“ segir hún. Málefnið stendur henni nærri
en móðir hennar lést úr brjóstakrabbameini
fyrir 15 árum. Kristján Heiðberg hjá Glugga-
og hurðasmiðju Selfoss sá síðan um að sprauta
snagana bleika en Ólöf Jakobína lét framleiða
100 stykki af hönnun sinni.
„Snaginn er seldur á ekki ósvipuðu verði og
happdrættismiði. Þarna leggurðu góðu málefni
lið og færð nytjahlut í staðinn sem framvegis
minnir þig á að mæta á Leitarstöð Krabba-
meinsfélagsins og vera á varðbergi, sem er ekki
síður ætlunin,“ segir hún.
Fyrir sloppa, slæður og festar
Snagann er hægt að nota með ýmsu móti.
„Það er hægt að hengja herðatré á hann. Líka
fer mjög vel um hálsfestar á snaganum og slæð-
ur. Einnig er hægt að setja snaga upp í eldhús-
inu fyrir viskastykkin eða setja nokkra í röð upp
í svefnherberginu fyrir föt í notkun og bað-
sloppinn,“ nefnir hönnuðurinn sem dæmi.
Snaginn, sem kostar 2.500 krónur, er til sölu
í Epal, þar sem Ólöf Jakobína vinnur, og Sirku
á Akureyri, heimabæ hönnuðarins. Allur ágóði
af sölunni fer til Krabbameinsfélagsins.
ingarun@mbl.is
Minnti á brjóst
Flottur í pari Hér sést lögun snagans vel og fer vel að hafa tvo saman.
Andrew Motion hefur sagt aðþað sé ekki tekið út meðsitjandi sældinni að vera
lárviðarskáld. Þegar hann tók við
titlinum að Ted Hughes gengnum
var honum sagt að ekki væri ætlast
til yrkinga af honum, heldur skyldi
hann njóta heiðursins í makindum.
Honum var í lófa lagið að fara að
dæmi Williams Wordsworths, sem
orti ekki eitt einasta lárviðarljóð,
en þess í stað kaus hann að gangast
upp í hirðskáldinu og nota tækifær-
ið til að gera veg ljóðsins sem
mestan. Ekki þar fyrir; hann hefur
ekki ort eina einustu minnisstæðu
línu, segja þeir sem þykir lítið til
ljóða hans koma, en aðrir segja þar
fulldjúpt í árinni tekið, hann sé vel
frambærilegt skáld þótt ekki kom-
ist hann með tærnar þar sem for-
veri hans hafði hælana. En það sem
vanta kann upp á skáldskapinn
bætir Motion fyrir með dugnaði
sínum við skáldakynningar í ræðu
og riti.
Motion fær ekki frið með lárvið-
arsveiginn alla sína ævidaga, heldur
rennur skipunartími hans út á
næsta ári. Þá hætta fimm þúsund
pundin að berast, en hann á þó allt-
af kaupaukann inni: 750 sherry-
flöskur sem eru gjöf frá Spán-
arkonungi, sem Motion hefur
reyndar aldrei kallað eftir.
freysteinn@mbl.is
Á þessum
degi …
26. OKTÓBER 1952
FÆDDIST LÁRVIÐARSKÁLD
BRETA, ANDREW MOTION
Íslensk hönnun 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2008