Morgunblaðið - 26.10.2008, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 26.10.2008, Qupperneq 50
50 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2008 Í síðustu viku kom fyrsta breið- skífa sveitarinnar, Pull Hard, út. Innihaldið er kraftmikið pönkrokk, vel þétt og rokk- andi og nánast undarlegt að sveitin sé ekki nema eins og hálfs árs gömul. Á Airwaves í fyrra vakti sveit- in einnig athygli fyrir kraftmikið sett en síðan þá hefur hún spilað nánast um hverja einustu helgi og steinninn því slípaður frá morgni til kvölds. Í ár sló sveitin hálfpartinn í gegn, spilaði á fernum tónleikum á og í kringum Airwaves og plata hennar mokaðist út, var mest selda plata sveitar á há- tíðinni. Aðdáendur utan úr heimi komu gagngert til að sjá hana (my- space!) og þungarokksbiblían Kerr- ang! er í góðu bandi við meðlimi. Tón- leikaferðalög um Kína (í apríl/maí) og Bandaríkin (september) eru þá að baki og ýmis sambönd eru að komast á úti í löndum. Lag sveitarinnar, „Blizzard“ er þá í öðru sæti X-Dom- inoslista X-ins 977 og hefur jafnframt verið að fá spilun á Rás 2. Hér er komin kornung sveit, nýbúin að gefa út sína fyrstu plötu – og það á litlu merki – en er strax hokin af reynslu. Við spilum endalaust Ég sest niður með bandinu eins og það leggur sig, strax eftir að ljós- myndarinn hefur lokið sér af. Að taka viðtal við heila hljómsveit getur verið bagalegt, allt leysist upp í flipp og málæði en svo er ekki í þessu tilfelli. Jú, vissulega rýkur orkan og ástríðan upp en í þessu tilfelli er það gefandi. Það er allt á fullu spani hjá sveitinni, sjálfstraustið í toppi og ekkert er ómögulegt en sveitina skipa þau Orri (trommur), Eygló (söngur), Lotta (gítar), Eyrún (gítar) og Ástrós (bassi). „Það var geðveikt að fara til Kína,“ segir Orri. „Það má segja að sú ferð hafi þétt bandið enn frekar og gert það að því sem það er í dag. Þar á undan vorum við búin að spila u.þ.b. 50 sinnum á Amsterdam og því góð tilbreyting að spila fyrir fleiri.“ Eyrún segir stemninguna úti í Kína ólýsanlega. „Það var alltaf troðfullt á tónleikum og Kínverjarnir allir í ýktum pönk- múnderingum. Og tóku líka þvílíkan þátt í tónleikunum, allir glaðir og æst- ir. Íslenskir áhorfendur eru mun erf- iðari.“ Vicky-liðar lýsa Hafnarfirði sem gróskumiklum rokkbæ og Orri, sem er sá eini sem er ekki þaðan, hristir hausinn yfir ástandinu. „Það er bara rokk hérna!“ segir hann og dæsir. Lotta tekur við. „Hljómsveitir hittast í æfinga- húsnæði, eða á tónleikum í Gamla bókasafninu eða bara á barnum á A. Hansen. Stundum er verið að djamma saman í æfingahúsnæði og þannig varð þessi hljómsveit til, sam- sláttur úr tveimur hljómsveitum.“ Nokkrar stelpnanna höfðu verið í kántrísveit með Lay Low sem hún hefur stundum minnst á en þegar fimmmenningarnir sem nú skipa Vicky hittust á æfingu urðu talsverð hljóðfæraumskipti (Eyrún fór t.d. af trommum á gítar) og Orri settist á bak við settið – blindfullur. Og ferða- lagið síðan hefur verið ævintýri líkast – leiðin hefur eiginlega legið beint upp á við og verið heldur greið bar- asta. „Við spiluðum svo mikið að við höfðum ekki tíma til að semja nýtt efni,“ segir Lotta og er mikið niðri fyrir. „Við sömdum fjögur lög á fyrstu þremur æfingunum og á fyrstu tónleikunum þurftum við að renna í gegnum þau tvisvar, þrisvar. Fólk öskraði eftir meira og við vorum búin að spila göt á þessi örfáu lög.“ Og að redda tónleikum hefur verið lítið mál. „Við erum alltaf beðnar … afsakið beðin um að spila,“ segir Eygló og hlær. „Við eigum vinasveitir eins og Cliff Clavin, We Made God, Ashton Cut, Wulfgang og nú erum við alltaf að spila með Agent Fresco.“ Rokkgellur … og -gæi Platan kemur út á litlu merki sem kallast Töfrahellirinn en það rekur Ásgeir nokkur Guðmundsson sem er umboðsmaður sveitarinnar og er einnig skráður sem upptökustjórn- andi plötunnar. Hann kom sveitinni út til Kína og hefur verið að vinna að framgangi hennar úti í Bandaríkj- unum, Bretlandi og Þýskalandi. „Við erum komin í gott samband úti í Þýskalandi,“ segir Orri. „Þá er búið að bjóða okkur að gefa út plöt- una í Bandaríkjunum og það er svona verið að pota í Bretland.“ Platan var tekin upp í Tanknum, hljóðveri sem er á Flateyri við Ön- undarfjörð. Um er að ræða gamlan lýsistank sem byggður var 1925 en hefur nú verið innréttaður sem hljóð- ver. Upptökuna gerði Önundur Páls- son, eigandi Tanksins. „Við tókum plötuna upp á fimmtán tímum,“ segir Eyrún. „Rúlluðum þessu inn beint, söngurinn var svo tekinn upp síðar. Við prufuðum að taka upp eins og vant er, trommur sér, gítara sér o.s.frv. en það virkaði engan veginn. Þetta byggist of mikið á því að vera saman og ná upp ein- hverri stemningu. Þetta er svo mikið tónleikaband.“ Svo þegar upptökum var lokið um nóttina keyrði sveitin beinustu leið heim, yfir Steingrímsfjarðarheiði, og festist þar. „Björgunarsveitin Dagrenning á Hólmavík kom og bjargaði okkur,“ segir Lotta og hlær sínum smitandi hlátri. „Hún er efst á þakkalista plöt- unnar!“ Eins og gefur að skilja kom sveitin með lögin fullkláruð inn í hljóðverið, enda lítið svigrúm til að vera að dútla eitthvað við lögin á svo skömmum tíma. „Við vildum hafa þetta hreint og beint,“ segir Lotta. „Ná einhverju grúvi upp og sleppa öllum óþarfa pæl- ingum.“ Ákveðið var að breyta nafninu úr Vicky Pollard í Vicky til að rugla fólk í Bretlandi ekki í ríminu, fari svo að sveit- in spili eitthvað þar og gefi svo út plötu í kjölfarið. Vicky Pollard er nafn á per- sónu í Little Britain-gamanþáttunum. Í auga stormsins Morgunblaðið/Frikki Hoppandi glöð Vicky er á fullu stími um þessar mundir og teygir ástríðufulla rokkanga sína víðs vegar um veröldina. Harla gott hjá svo ungri hljómsveit. Ungsveitin Vicky (áður Vicky Pollard), skipuð fjórum ungum hnátum og einum hnokka, sló í gegn á umliðinni Airwaves-hátíð. Býsna margt er í farvatninu hjá þessari ungu og bráðefnilegu sveit og settist Arnar Eggert Thoroddsen á rökstóla með sveit- inni í heimabænum, hinni miklu rokk og ról útungunarstöð Hafnarfirði. » Fólk kemur til okkar blaðskellandi og segist ekki hafa búist við þessu. Fólk virðist hissa á því að við getum hent í almennilega rokktónleika. Fólk afskrifar stelpubönd venjulega áður en þau eru bú- in að spila eina nótu.“ TIL allrar hamingju hafa komið fram sveitir í gegnum tíðina sem brjóta upp alltumlykj- andi testósterónflæði nútímarokks. Lítum á nokkrar þekktar sveitir úr sögunni sem hafa sömu skipan og Vicky, þ.e. karlmaður lemur húðir en restin af hljóðfæraleiknum er í höndum kvenfólks. Throwing Muses Þessi dásamlega ný- bylgjusveit var leidd af þeim stjúpsystrum, Kristin Hersh og Tanyu Donelly og var blómaskeið hennar á níunda áratugnum. Á fyrstu þremur breiðskífunum var sveitin skipuð þeim stöllum en auk þeirra voru bassaleikarinn Leslie Langston og trymbill- inn Dave Narcizo í bandinu. Síðasta plata þessarar liðsskipunar var Hunkpapa (1989) sem er af flestum talin besta verk Throwing Muses. The Breeders Þessi sveit, sem var hug- arfóstur Pixies-limsins Kim Deal „sló“ í gegn árið 1994 með plötunni Last Splash, eink- anlega þó með laginu „Cannonball“ (þú veist alveg að þú kannt að humma það …). Fyrsta platan, Pod, kom út árið 1990 og þá voru í sveitinni ásamt Deal áðurnefnd Donelly, Jo- sephine Wiggs úr Perfect Disaster en um trommuslátt sá Britt nokkur Walford, betur þekktur sem meðlimur í Slint, einni áhrifarík- ustu jaðarrokkssveit allra tíma. Á Last Splash hafði tvíburasystir Deal, Kelley leyst Don- nelly af og Jim McPherson hafði leyst Wal- ford af (ég er kominn með hausverk af þess- um poppnördahætti. Segjum þetta gott …). Kolrassa krókríðandi/Bellatrix Er Kolrassa sigraði Músíktilraunir árið 1992 var hún eingöngu skipuð stúlkum. Fljótlega eftir útkomu Drápu, fyrstu plötu sveitarinnar, gekk Birgitta Vilbergsdóttir úr sveitinni en Karl Ágúst Guðmundsson, Kalli, leysti hana af. Hann kom úr dauðarokkssveitinni Sorori- cide og þótti þessi tilfærsla ansi djörf á sínum tíma. Hann leysti sitt með miklum sóma og skellti sér meira að segja í kjól á fyrstu tón- leikunum til að undirstrika hvert hann væri kominn. Velvet Underground Jæja, nú snúum við þessu á rönguna hérna í lokin, svona upp á flippið. Þessi gríðarlega áhrifamikla sveit (sumir segja hana mikilvægustu rokksveit allra tíma) var skipuð þeim Lou Reed, Sterl- ing Morrison og John Cale en á trommum var Maureen Tucker og var hún standandi við þá iðju. Hún leysti Angus MacLise af, en hann hafði neitað að spila fyrir borgandi áhorf- endur (hvílíkir tímar sem þetta voru …). Nico telst ekki með í þessari greiningu, enda gestasöngvari á margfrægri fyrstu plötu sveitarinnar. Bellatrix Kalli var einn í kvennaveldi. Strákurinn sér um taktinn, stelpurnar um hitt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.