Morgunblaðið - 03.11.2008, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 03.11.2008, Qupperneq 19
Daglegt líf 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2008 Skráning er hafin í Ljósinu, Langholtsvegi 43 í síma 561-3770 og á ljosid@ljosid.org Sjálfsmynd Fjölskyldan Vinir Skólinn Tilfinningar Unglingar Samskipti Fyrirmyndir og framkoma 10–13 ára (5-7 bekkur) Námskeið fyrir börn 10–13 ára, 11. nóvember kl. 16:30 í 6 skipti, vikulega. 14–16 ára (8-10 bekkur) Helgarnámskeið fyrir unglinga 14–16 ára, helgarnar 8.-9. og 22.-23. nóvember. 3 tímar í senn. Námskeiðin eru ókeypis. Lj ós m yn d: Ir ja Gr ön da l, 12 ár a Leiðbeinendur á námskeiðinu eru með margra ára starfsreynslu í að vinna með börnum. Þær eru: Ósk Sigurðardóttir iðjuþjálfi með sérmenntun í ævintýrameðferð fyrir börn, Elísabet Lorange listmeðferðarfræðingur, Hrafndís Tekla Pétursdóttir sálfræðingur og Sigríður Birna Valsdóttir kennari og leiklistarmeðferðarfræðingur. Ljósið fer nú aftur af stað með styrkjandi námskeið fyrir börn og unglinga sem eiga foreldri, systkini, ömmu, afa eða annan aðstandenda sem hefur greinst með krabbamein. Nú þegar hafa verið haldin námskeið fyrir aldurshópinn 6–9 ára og 13–17 ára sem slegið hafa í gegn. Námskeiðin stuðla að jákvæðri uppbyggingu og er mikið unnið með lífsgleðina og það að lifa í nútímanum. Fyrsti tíminn fjallar um innihald námskeiðsins og mætir aðstandendi með barninu/unglingnum. Námskeiðin enda með skemmtilegri pizzuveislu þar sem að ættingjar eru velkomnir. Skilningur, samkennd, umburðarlyndi, traust og hlustun. Námskeið fyrir börn og unglinga www.ljosid.org Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Þ etta er náttúrulega svar mitt við kreppunni. Að koma sér upp hænum er ótvíræð búbót. Það er gott að sækja egg í mat- inn út í kofa. Þær eru reyndar enn svo ungar greyin að einungis ein þeirra er farin að verpa annan hvern dag, brúnum og fallegum eggjum sem er aldeilis huggun harmi gegn í samdrættinum,“ segir Sólmundur Sigurðsson í Borgargerði í Ölfusi. Hann er stoltur af hænunum sínum fimm en þeim hefur hann reist sér- lega veglegt hús, með hlöðnum veggjum og torfþaki. „Þegar ég lét loks verða af því að fá mér hænur þá var ég ákveðinn í að gera þetta sæmilega huggulegt. Ég fékk flinkan hleðslumann, Stefán Benediktsson, til að tyrfa þakið og hlaða veggina. Ég vildi hafa torfveggi til að fella hænsnahúsið sem best inn í umhverfið og náttúruna hér. Ég kærði mig ekkert um ljótan hænsna- kofa.“ Vinnan við hænsnahúsbygg- inguna tók töluverðan tíma enda seinlegt að hlaða þykka veggina. „Nágrannarnir stríða mér á því að plássið kosti hundrað þúsund kall fyrir hverja hænu hjá mér. Þetta hús er því frekar langt frá því að skila hagnaði, en ánægjan er ótvíræð.“ Hjólgraður hani í hænsnahóp Dekurhænurnar hans Sólmundar eru alíslenskar og fallegar eftir því og engar tvær eins á litinn. „Ég fékk þær í ágúst hjá henni Valgerði á Húsatóftum. Þetta eru hamingju- samar hænur enda eru þær mjög frjálsar hjá mér. Ég hleypi þeim út daglega og þá vappa þær hér um að vild. Stundum fara þær yfir skurðinn inn á næsta land við hliðina en þó þær hafi ekki enn lært á landamæri þá koma þær sjálfar til baka. Þær hætta sér ekki of langt en ég hóa þeim inn yfir nóttina svo minkurinn nái þeim ekki.“ Hænurnar fimm hafa sér til fylgi- lags reffilegan hana. „Þetta er hjól- graður hani sem hefur ekki enn feng- ið nafn. Ég vildi upphaflega hafa einn hana og þrjár hænur og ætlaði að skíra þær í höfuðið á núverandi og fyrrverandi konum mínum, en sú hugmynd fékk ekki brautargengi á heimilinu. Þetta skekkir náttúrulega stöðuna að hafa þær fimm, en kannski á það eftir að passa seinna,“ segir Sólmundur og skellihlær. Bærinn Borgargerði stendur undir rótum Ingólfsfjalls í fallegu um- hverfi. „Þetta er nýbýli, ég flutti hingað fyrir tíu árum. Ég keypti þessa sex hektara sem eru brot úr jörðinni Akurgerði hér við hliðina. Það vill svo til að ég er alinn upp á þessum slóðum, ég flutti í Akurgerði tveggja ára gamall með foreldrum mínum. Auk þess bjó afi minn og nafni í Hlíðartungu sem er hér beint á móti. Þessar jarðir voru löngu farn- ar úr fjölskyldunni þegar ég keypti Borgargerði,“ segir Sólmundur sem hefur því í raun snúið aftur til bernskustöðvanna. Hann kann vel við sig í sveitinni, er með tíu hesta og títtnefndar fimm hænur auk hanans, en hann hefur hug á að stækka bú- stofninn. „Mig dreplangar að hlaða gam- aldags fjárhús og fá mér nokkrar skjátur og verða alvöru frí- stundabóndi.“ Fiðurfé í fögru húsi Alvöru tennur Þennan karl gerði listamaðurinn Sigurður faðir Sól- mundar, en efniviðurinn er hval- bein, hrosshár og tennur úr Brandi syni hans sem hann lét draga úr sér eftir tannpínu á sjó. Gleraugun eru frá Sigurði sjálfum. Morgunblaðið/Ómar Brjáluð hæna Hún Doppa var ekkert sérstaklega ánægð þegar Sólmundur hafði fangað hana. Fegurð Þær gleðja augað, frjálsar og nýkomnar út í snjóinn, upp við torfvegg með hananum reffilega. ÞÓ að efnahagslægðin hafi víðast hvar þau áhrif að fólk haldi að sér höndum og hugsi sig tvisvar um áð- ur en það dregur fram budduna, segir Jónas Halldórsson í Antikbúð- inni í Hafnarfirði nóg að gera hjá sér þessa dagana. „Fólk leitar í eldri muni og hlýlegra útlit þeg- ar að kreppir að,“ segir Jónas. Ekki er fólk þó ein- göngu að kaupa muni, því nokkuð er einnig um að fólk sé selja muni, gripi sem e.t.v. voru búnir að safna ryki í geymslunni um árabil. Aðrir forn- gripasalar sem rætt var við voru á sama máli. Kaup né sala höfðu e.t.v. ekki enn tekið kipp – en í ljósi fyrri reynslu gera þeir fyllilega ráð fyrir að viðskipti eigi eftir að aukast næstu mánuði. Einn þeirra muna sem ratað hafa í búðina hjá Jónasi nýverið, er skrif- púlt sem hann segir ekki komið úr ómerkari húsakynnum en Lærða skóla. Skrifpúltinu á eldri maður að hafa bjargað frá því að enda á haug- unum fyrir mörgum áratugum síðan, er til stóð að henda því úr Lærða skóla á haugana. „Þetta er áhugaverður munur sem ber með sér mikla sögu,“ segir Jónas og vísar þar til útskorinna nafna sem rist hafa verið í borðplötuna. Skrifpúltið hefur líka vakið mikla athygli þeirra sem kíkt hafa í verslunina, en sjálfur telur Jón- as ekki ólíklegt að púltið eigi eftir að enda í minja- og handverkshúsinu Kört í Trékyllisvík. annaei@mbl.is Sagan skorin í skrifpúltið M or gu nb la ði ð/ F ri kk i Úr Lærða skóla Jónas Hall- dórsson með skrifpúltið góða sem bjargað var frá því að lenda á haugunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.