Morgunblaðið - 09.11.2008, Qupperneq 49
Minningar 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 2008
Fleiri minningargreinar um Guð-
rúnu Aðalbjarnadóttur bíða birting-
ar og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
✝ Guðrún Að-albjarnardóttir
fæddist í Reykjavík
10. febrúar 1928.
Hún lést á dval-
arheimilinu Kirkju-
hvoli 20. október
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Aðalbjörn Stef-
ánsson prentari f. á
Garðsá í Eyjafirði
28.12. 1873, d. 18.6.
1938, og Þorbjörg
Grímsdóttir hús-
móðir, f. á Litla-Seli
8.7. 1889, d. 3.8. 1993. Guðrún átti
7 systkini sem öll eru látin. Það
voru Aðalbjörn, f. 1915, d. 2002,
Grímur, f. 1917, d.1987, Stefán, f.
1918, d. 1991, Kristín, f. 1920, d.
1981, Katrín, f. 1922, d. 1986,
Guðjón, f. 1924, d. 1979, og Þor-
björn, f. 1932, d. 1977.
15. janúar 1955 giftist Guðrún
Helga Einarssyni, múrarameist-
ara frá Sperðli í V-Landeyjum, f.
31.7. 1926, d. 20.6. 1998. For-
eldrar hans voru Einar Einarsson
frá Krossi A-Landeyjum, f. 2.11.
1887, d. 8.11. 1967 og Hólmfríður
Jónsdóttir, f. í Króktúni í Hvol-
hrepp 26.1. 1889, d. 4.10. 1980.
Börn Guðrúnar og Helga eru: 1)
Einar Helgason múrarameistari,
f. 27.11. 1954, kvæntur Guðrúnu
Þorgilsdóttur hárgreiðslumeist-
ara, f. 24.4. 1959, búsett í Reykja-
vík. Synir þeirra eru: a) Helgi, f.
10.4. 1980, hans sonur er Mikael
Hrafn, f. 7.2. 2001, barnsmóðir
Helga er Elfa Sif Ingimarsdóttir,
f. 6.3. 1980. b) Þor-
gils Bjarni, f. 10.12.
1983, í sambúð með
Guðrúnu Björk
Jónsdóttir, f. 16.12.
1985. 2) Aðalbjörg
Katrín húsmóðir, f.
18.3. 1959, gift Gísla
Antonssyni húsa-
smíðameistara, f.
28.9. 1954, búsett í
Danmörku. Sonur
þeirra er Gísli
Grímur, f. 4.10.
1996. 3) Hólmfríður
Kristín verkakona,
f. 25.1. 1961, í sambúð með Sig-
mari Jónssyni flugradíómanni á
Bakkaflugvelli, f. 15.4. 1957, bú-
sett á Hvolsvelli. Börn þeirra eru:
a) Elísabet Rut, f. 8.10. 1982, börn
hennar og Gylfa Rafna Gísla-
sonar, f. 24.4. 1970, eru Sigmar
Valur, f. 29.3. 2003 og tvíburas-
telpur Bryndís Rut og Lovísa Kar-
en, f. 11.8. 2005. b) Jón Ægir, f.
1.5. 1987, kærasta Henný Hrund
Guðmundsdóttir, f. 11.1. 1989. c)
Rúnar Helgi, f. 24.11. 19984) And-
vana fæddur drengur, 9.3. 1967.
Fyrstu hjúskaparár Guðrúnar
og Helga bjuggu þau í Reykjavík.
Fluttust síðan á Hvolsvöll í sept-
ember 1965. Árið 1967 byggðu
þau sér hús í Stóragerði 12 þar
sem Guðrún sinnti húsmóð-
urshlutverkinu með sóma ásamt
því að starfa við ræstingar á hin-
um ýmsu stöðum á Hvolsvelli.
Útför Guðrúnar fór fram frá
Stórólfshvolskirkju 25. október, í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Elsku mamma, nú er komið að
kveðjustund.
Margar minningar koma upp í
hugann og af mörgu er að taka.
Fyrstu 6 árin mín bjuggum við í
tveimur herbergjum hjá Grími
bróður þínum og Lovísu konu hans,
og var þá oft glatt á hjalla. Ég
gleymi ekki þeim orðum þínum að
það hefðu ekki allir tekið inn á sig
svona stóra fjölskyldu. Ég velti því
stundum fyrir mér hvort það hefði
aldrei komið upp ágreiningur í eld-
húsinu sem þið Lúlla deilduð, en þú
neitaðir því.
Á Hvolsvöll fluttum við svo um
haustið 1965 og árið 1967 var fyrsta
skóflustungan tekin að Stóragerði
12. Við krakkarnir fengum að taka
þátt, þá var allt gert í höndunum,
engar gröfur til að grafa grunninn,
en þetta gekk. Við krakkarnir nagl-
hreinsuðum og bárum hleðslustein-
ana, sem okkur þóttu þungir.
Stóragerði 12 var okkar fé-
lagsmiðstöð og afdrep seinni árin.
Oft hugsaði maður um umburðar-
lyndi þitt að þola að hafa fullt hús af
hlæjandi stelpum og strákum, þetta
hefðu ekki allir leyft, en þú vildir
vita hvar við vorum. Mamma talaði
oft um afleggjarana sína, og þá átti
hún við börnin sín, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
Henni fannst hún svo rík.
Þegar pabbi veiktist stóð mamma
eins og klettur við hlið hans og
hjúkraði honum eftir bestu getu.
Árið 1998 dó pabbi og missir
mömmu var mikill. Við börnin
reyndum að fylla skarð hans með
misgóðum árangri. Mamma var svo-
lítill einfari í sér en hafði samt gam-
an af að vera í góðra vina hópi sem
hafði húmorinn í lagi. Ég og fjöl-
skylda mín fluttum til Danmerkur
fyrir 3½ ári síðan. Mamma var ekki
sátt við þá ákvörðun. Síðasta heim-
sókn okkar til hennar var dagana 6.-
13. okt og áttum við góðan tíma með
henni. Ekki var ég búin að vera
lengi í Danmörku þegar mamma
hringdi í mig og sagði mér að hún
væri að fara að flytja inn á Kirkju-
hvol tímabundið, en það var föstu-
daginn 17. okt. Morguninn 20. okt.
sofnaði hún svo svefninum langa eft-
ir erfið veikindi.
Elsku mamma, ég sakna þín mik-
ið.
Ég vil þakka Guðrúnu Ormsdótt-
ur fyrir þær stundir sem hún átti
með mömmu.
Vögguvísan þín
vera skal mér kær,
elsku mamma mín,
meðan hjartað slær.
Minni alltaf á,
ef ég gleymi þér;
vondri freistni frá
forði jafnan mér.
Óreynt barn ég er,
ung og veik og smá;
vísan vísar mér
veginn rétta á.
Því skal vísan þín
þínu barni kær,
elsku mamma mín,
meðan hjartað slær.
(Höf. ók.)
Elsku mamma, ég kveð þig nú.
Við eigum eftir að hittast síðar.
Þín dóttir
Aðalbjörg Katrín
(Daddý).
Elsku mamma mín, þá ertu komin
til pabba, foreldra og systkina þinna.
Held ég að það hljóti að hafa orðið
fagnaðarfundir. Þetta hefur þú fund-
ið á þér elsku mamma, að komið væri
að kveðjustund. Eins og þú sagðir
svo oft: „Maður þarf ekki alltaf að
drekka til að finna á sér.“ Oft var bú-
ið að tala um hvort þú vildir fara á
dvalarheimilið, en það vildir þú ekki.
Þú vildir vera í þínu húsi innan um
þínar minningar. „Á meðan ég get
klætt mig og eldað ofan í mig, er ég
ánægð með að fá vera í mínu húsi,“
sagðir þú svo oft. Ég var hlynnt
þessari ákvörðun þinni og við systk-
inin virtum hana.
Það verður svo skrýtið að koma
heim úr vinnunni núna og fara ekki
til þín mamma mín. Þá hughreysti ég
mig við orðin þín: „Manni þarf ekki
að leiðast heima hjá sér, alltaf hægt
að finna sér eitthvað að gera.“ Það er
alveg satt. Svo kom að því að þú
gafst grænt ljós á að fara á dvalar-
heimilið Kirkjuhvol. Þegar við fórum
þangað seinni part föstudagsins 17.
okt., varðst þú svo jákvæð og bara
nokkuð hress. Við hittum Guðmund
lækni þarna fyrir utan og þú sagðir
við hann: „Þær á Kirkjuhvoli vita
ekki hvaða pakka þú ert að senda til
þeirra.“ Síðan hlóguð þið bæði. Þér
leist vel á herbergið þitt, en fyrstu
nóttina þína fór heilsu þinni að hraka
mjög mikið. Þú kvaddir þennan heim
snemma að morgni mánudags 20.
okt. og dvaldir því ekki nema þessa
einu helgi á Kirkjuhvoli. Sóley sagði
mér að hún hefði sagt við þig á föstu-
dagsmorgninum: „Guðrún mín, mað-
ur fær svo fréttir af þér á Kirkju-
hvoli“ og þú svaraðir henni með þeim
orðum: „Já, já, þú lest það þá bara í
Mogganum.“ Eins og ég skrifaði hér
áður, þú hefur eitthvað fundið á þér.
Það var samt alltaf stutt í húmorinn
hjá þér mamma, þú lést það bara
flakka sem þér datt í hug.
Að lokum vil ég, fyrir hönd okkar
systkina og fjölskyldu, þakka Guð-
mundi lækni, Sóleyju og Arndísi fyr-
ir umhyggjusemi og allt það sem þið
gerðuð fyrir mömmu. Þetta er okkur
ómetanlegt. Svona vildir þú hafa sitt
líf og það ber að virða þó stundum
hafi það verið erfitt.
En komin eru leiðarlok
og lífsins kerti brunnið
og þín er liðin æviönn
á enda skeiðið runnið.
Í hugann kemur minning mörg,
og myndir horfinna daga,
frá liðnum stundum læðist fram
mörg ljúf og falleg saga.
(Höf. ók.)
Við hittumst síðar.
Þín dóttir,
Hólmfríður Kristín (Hoffý.)
Guðrún
Aðalbjarnardóttir
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj.,
s. 691 0919
✝
Hugheilar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður og afa,
GUÐMUNDAR A. ÞÓRÐARSONAR,
Holtsflöt 4,
Akranesi.
Málfríður K. Björnsdóttir,
Guðrún H. Guðmundsdóttir,
Björn Guðmundsson, Skúlína H. Guðmundsdóttir,
Kristín Guðmundsdóttir, Guðmundur Benediktsson,
Þórður Guðmundsson, Guðný Hrund Rúnarsdóttir,
Ólöf Ásta Guðmundsdóttir, Guðmundur Guðjónsson
og afabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur hlýhug og
samúð við fráfall og útför elskulegs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GUNNARS KR. BERGSTEINSSONAR
fyrrverandi forstjóra,
Skúlagötu 20.
Brynja Þórarinsdóttir,
Þórarinn Gunnarsson,
Ragnhildur Gunnarsdóttir, Guðmundur Magnússon,
Bergsteinn Gunnarsson, Anna S. Björnsdóttir,
Theódóra Gunnarsdóttir, Garðar Þ. Gíslason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og
samúð við fráfall og útför elskulegs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÍVARS REYNIS STEINDÓRSSONAR
frá Teigi,
Furugrund 66,
Kópavogi,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu-
daginn 16. október.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Landspítalans Fossvogi og
Hringbraut fyrir góða umönnun.
Sólveig Jóhannesdóttir,
Þórarinn Ívarsson, Maitza Esther Pacifico Ospino,
Steindór Ívarsson, Jón Sigurðsson,
Sigurjón Ívarsson, Ásta Guðríður Björnsdóttir,
Guðrún Ívarsdóttir, Þorvaldur Siggason,
Rúnar Ívarsson, Sigrún Sölvey Gísladóttir,
Kolbrún Ívarsdóttir, Jóhann Anton Ragnarsson,
Ólafur Björn Heimisson, Júlíana Ósk Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
GUÐMUNDAR VALDIMARSSONAR,
Móasíðu 6a,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til Oddfellowreglunnar fyrir
veittan stuðning.
Þóranna Þórðardóttir,
E. Ásrún Guðmundsdóttir, Árni Ragnarsson,
Margrét Unnur Akselsdóttir, Erik Andersson,
Valdimar R. Guðmundsson, Daðey A. Sigþórsdóttir
og afabörn.
✝
Innilegustu þakkir til allra er sýndu okkur hlýhug
og samúð við fráfall og útför elskulegs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, bróður,
afa og langafa,
SIGURÐAR HELGASONAR
fyrrv. deildarstjóra
í menntamálaráðuneyti
frá Heggsstöðum,
Hrafnhólum 2,
Reykjavík.
Soffía Kristjánsdóttir,
Ágúst Heiðar Sigurðsson, Margrét Haraldsdóttir,
Álfheiður Sigurðardóttir, Daði Guðmundsson,
Helga Guðrún Sigurðardóttir,
Guðný Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÓLAFÍU KRISTÍNAR GÍSLADÓTTUR,
Kópavogsbraut 1B,
Kópavogi
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu-
daginn 23. október.
Björg Atladóttir, Hilmar Pétur Þormóðsson,
María Lára Atladóttir, Hörður Hagelund Guðmundsson,
Gísli Árni Atlason, Kornelía Kornelíusdóttir,
Arngunnur Atladóttir, Ragnar Már Einarsson,
Ásgerður Atladóttir, Hilmar Sigurgíslason,
barnabörn og barnabranabörn.