Skinfaxi - 01.03.1915, Page 1
3. BLAÐ
REYKJAVÍK, MARS 1915
VI. ÁR
Mentamálin.
Sjálfsagt mun mörgum manni þykja
rangt að farið, að nefna mentamálin fyrst,
þegar rætt er um viðreisn þjóðarinnar.
Algengara er að heyra atvinnumálum, sam-
göngum, bankamálum, verslun o. s. frv.
skipað í æðsta sessinn. En þetta er hér
gert af ásettu ráði, og bygt á því, að at-
vinnnurekstur, samgöngur og peningamál
hverrar þjóðar eru í góðu
Eltsyníegt.UÖ" eSa lélegu ástandi- eftir Þvi>
hversu liáttað er menningu
fólksins. Tökum dæmi. Grindvíkingar og
Hafnamenn á Suðurnesjum eiga yfir veg-
leysur og hraun að fara í kaupstað. I
þúsund ár hefir fólldð i þessum bygðum
klöngrast yfir illfært hraunið, en aldrei, að
kalla má, rutt steini úr götunni. En nú í
tvö seinustu árin taka sjómennirnir í þess-
um verstöðum hálfan hlut af skipi hverju,
«r þaðan gengur til fiskjar, og leggja til
veganna. I meðalári safnast þannig í báð-
um stöðunum um 5000 kr., og eftir örfá ár
munu þessi frjálsu fjárframlög ná lang-
firægt til að brúa hraunið, gera yfir það
nýtísku akbraut, sem síðan verður undir-
«taða annara framfara, í byggingum, at-
vinnurekstri, viðskiftum, og hverskonar
menningu. Þarna er bersýnilegt að fram-
■sýni, félagshyggja og mannlund eru frum-
skilyrði verklegu framfaranna. Það sem
hér verður sagt um mentamálin, miðar
eingöngu að því, að sannfæra menn uni
þá miklu nauðsyn, sem er á, að útbreiða
þekkingu og hollar lífsskoðanir, áður en
þjóðinni er ætlað að ráðast i dýrar og um-
fangsmiklar verklegar endurbætur.
Ekki er úr vegi að líta á
^Japansmenny' fáein dæmi frá öðrum Þ.Í05'
um, máli þessu til sönnun-
ar. Það er vel kunnugt, hve kænlega
Finnlendingar verjast yfirgangi og ásælni
Rússa. Má segja að Finnar beiti ætið
krók á móti hverju bragði, og ónýti þann-
ig tilgang Rússanna, sem er sá, að drepa
finskt þjóðerni. En hitt er ef til vill mið-
ur kunnugt, að Finnar lögðu meiri stund
á að efla góða alþýðumentun, heldur en
gerðist um aðrar Norðurálfuþjóðir á 19.
öldinni. Lögðu þeirra vitrustu menn þar
á ráð, að svo skyldi til haga vörninni, er
þeir sáu hvað Rússum bjó í brjósti. Ann-
að dæmi eru Japansmenn. Fyrir hálfri
öld voru þeir máttlítil undirlægja hvers
þess ræningja, er vildi hrjá landið og þjóð-
ina. Nú eru þeir meðal hinna voldugustu
þjóða í heimi. Af hverju stafar breyting-
in? Ekki af verklegu framförunum sjálf-
um, heldur hugmyndunum, þekkingunni og
reynslunni, sem þeir hafa fengið með því
að nema af vestrænu þjóðunum. Enginn
vafi er á því, að ver hefði farið, og það
stórum, ef þeir hefðu byrjað á að flytja
austur í Japan líkama vestrænu menning-
arinnar, og reynt að blása anda austrænn-
ar kyrstöðu í aðflutta haminn. Mörg önn-
ur dæmi mætti telja þessu til sönnunar,
ef rúmið leyfði.
Andleg- fátækt En hvernig er þá ástutt hér?
íslendinga. Talsverð framför, en þyrfti