Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.03.1916, Page 5

Skinfaxi - 01.03.1916, Page 5
SKINFAXI 29 Námskeiðið á Akureyri. íþróttanámsskeið það, er haldið var á Akureyri í vetur og; U. M. F. Akureyrar gekst fyrir, stóð yfir frá 27. nóv. til 22. des. Æft var á hverjum virkum degi. Fyrri helniing námstím. var byrjað á morgnana kl. 8x/2 með leikfimiskerfi J. P. Miillers, „Mín aðferð“, og teknir bæði fimleikirnir fyrir og eftir baðið. En seinni helminginn var leikfimi kend í leikfimishúsi Gagn- fræðaskólans, og voru æfingarnar eftir bað- ið teknar þá á eftir, vegna þess að hægra var um baðið þar. Fimleikarnir fvrir baðið voru eftir það æfðir áður en farið var út á leikvöllinn, kl. 12. Þar voru æfð köst (kringluk. kúluvarp og spjótk.), stökk (hást. langst., þríst. og stangarst.) og hlaup, þar með talið grinda- hl., — hlaup var oft ómögulegt að æfa vegna fannkyngis, stökkin var oftast hægt að æfa, en köstin alt af. Aðeins einu sinni fórst úti-æfing fyrir, vegna hriðar. Þegar ekki var hægt að æfa stökk úti, var æft í sal sem „Hótel Akureyri“ hafði léð til þess; einnig voru þar æfð viðbrögð til sprett- hlaupa. Saiur þessi var einnig notaður til glímuæfinga og „Múllers æfingau. Fyrstu daga námsskeiðsins var auð jörð og ófrosin, og var gott til æfinga meðan svo var. En fyrst í des. fór að snjóa, og snjóaði fljótt svo mikið, að nær knésnjór varð á jafnsléttu. Yarð þá að moka göt- ur fyrir atrennu í köstum og stökkum og bera ösku o. þ. h. í. Varð þetta oft að gerast á hverjum degi. Stangarstökkið var verst viðureignar; var því hagað þann- ig, að gata var mokuð fyrir tilhlaup, stung- in upp hola fyrir stöngina, og snjónum mokað i hrúgu, i stað gryfju, þar sem komið var niður. Oft var töluvert kalt á þessum úti-æfingum, t. d. var einu sinni 16 stiga frost, límdust þá áhöldin — þar sem járn var — oft við hendurnar. Þessar æfingar fóru fram á grasvelli ca. 110 metra löngum og 50—60 m. breiðum, sem U. M. F. Akureyrar og Gagnfræðaskól- inn eiga í sameiningu. Á kveldin kl. 9 voru glímuæfingar á „Hótel Akureyri". Æfingar í leikfimi fóru fram milli 6 og 7 e. h. Á sunnudögum var aldrei æft. Námsskeiðsmenn voru um 20, hvaðan- æfa að úr Eyjafjarðar og Þingeyjarsýslum. Þeir bjuggu flestir hér og þar í bænum, en nokkrir — 6—8 — á hótelinu; hafði náms- skeiðsnefndin samið um vist þeirra þar. Tilætlunin var víst fyrst, að allir byggju þar, og átti að hafa þar nokkurskonar íþróltaskóla með heimavist. En það fyrir- komulag kom sér ver fyrir suma, og var þess vegna breytt. Það kom fyrir þegar slæmt var veður, að ekki heimtust allir á úti-æfingarnar, voru það einkum utan-hót- elsmenn sem þá vantaði. Um það leyti sem námsskeiðið endaði, var haldin kapp- glíma, og glímt í tveim flokkum — mið- þunga og þyngsta. í kringum 20. des. fóru námsskeiðsmenn að týnast heim ; þeir áttu mislangt, og allir vildu auðvitað vera komnir heim fyrir jólin. Nokkrir menn af Akureyri fengu tilsögn á kveldin, fáeina tíma, og voru aðallega æfð stökk og viðbrögð til spretthlaupa. Því miður voru þær æfingar alt of fáar. Muninn. Svar til hr. Sig. Grímssonar. 1. Ungmennafélögin bera enga ábyrgð á því, að þegnskylduvinnan er orðin að þingmáli. 2. Þegnskylduvinnan er ekki og hefir aldrei verið á stefnuskrá U. M. F. I. 3. Félag Mentaskólapilta kom málintf inn i þingið, og ber því siðferðislega á- byrgð á, að það er orðið að þingmáli nú. 4. Tveir helstu aðilar málsins hafa stórspilt fyrir því nú. Annar telur að

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.