Skinfaxi - 01.03.1916, Page 6
30
SKINFAXI
þegnskylduvinnan (þriggja mán. verklegt*
nám) mundi verða besti alþýðuskóli þjóð-
-arinnar. Hinn að þ. v. mundi skjótlega
-mpprœta flestar manntegar ódygðir.
Þessar skoðanir koma fram í nefndaráliti
Mentaskólapilta og n.áliti M. Ól. á þingi í
fyrra. Slíkum draumsjónamönnum fylgir
enginn, sem skyn ber á málið.
5. Víst hlyti að verða úr þegnskyldu-
vinnunni persónuskattur en ekki nám, ef
flanað væri að því að lögleiða hana, með-
an engir eru til að kenna rétt vinnubrögð.
6. Frá sjónarmiði þess, er þetta ritar,
getur þegnskylduvinnan ekki komist í fram-
kvæmd svo að gagn sé að, nema hún sé
borin fram af^stjórn, sem fylgir henni fram
í orði og verki eins og Skúli fógeti iðn-
aðarstofnunum. Og þessi stjórn hafi að
baki sér mikinn meiri hluta þingmanna,
kjósenda og æskulýðsins.
7. Við næstu kosningar geta U. M. F.
lítil áhrif haít á atkvæðagreiðsluna. Engin
stúlka í félögunum hefir atkvæðisrétt og
ekki nema sumir af karlmönnunum.
8. Atkvæðisbærir menn, sem eru hlyntir
þegnskylduvinnu en fyrirlíta ráðsmensku
þingsins í fyrra (að þvi er þetta mál snertir)
ættu að skila auðum seðlum við kosn-
ingarnar.
9. Mér og mínum skoðanabræðrum
munu liggja í léttu rúmi ásakanir um svik
við þegnskylduhugmyndina. Við höfum
þann hlýleik til málsins, að við viljumekki
koma því i fóstur hjá mönnum, sem ber-
sýnilega eru ekki enn þeim vanda vaxnir.
10. Vonandi skilst mönnum nú, að ung-
mennafélögin standa á engan hátt á bak
við, né eru riðin við, að-gerðir hr. Sig.
Grímssonar og hr. Matth. Ólafssonar í þegn-
skyldumálinu. Er því mælst til, að félög-
unum verði ekki, í sambandi við atkvæða-
greiðsluna i haust, blandað inn í umræður
um mál, sem á þessu stigi er þeim alger-
lega óviðkomandi.
11. Til að taka af öll tvímæli, mun
stjórn U. M. F. í. skýra afstöðu félaganna
til þegnskyldumálsins, áður en langt um
líður.
Dýraverndun.
Flestir vilja víst fara eins vel með dýr-
in og hægt er, en víðast hvar á landinu
er meðferð á dýrum ekki eins góð og hún
gæti verið og ætti að vera. Það má með
sanni segja, að „Dýraverndunarfélag Is-
lands“ ætlar sér að vinna að góðu og
þörfu hlutverki, og er vonandi að það ásamt
Dýravininum komi því til leiðar, að menn
sýni dýrunum meiri ástúð og nærgætni,
en gert heíir verið. „Dýraverndunarfélag
Islands“ ætlar að reyna að stofna sem
viðast dýraverndunarfélög út um landið,
og er ekki nema golt um það að segja.
En mér kemur til hugar, hvort það mundi
ekki vera hægt fyrir ungmennafélögin að
styðja dýraverndun. Eg get vel búist við,
að um þetta verði skiftar skoðanir, og bæði
færðar ástæður með og móti því, en mér
sýnist fleira mæla með.
Þar sem ungmennafélög eru í fámenn-
um sveitum, finst mér það gæti dregið úr
félagsskapnum, að hafa félögin mörg í
sveitinni. Og víða þar sem ég þekki til,
er þaðefnilegastaog duglegasta ungafólkið,
sem í ungmennafélagi er. Og frekar get
eg búist við, að það fólk vilji' og hafi mátt
til, að styðja að dýraverndun heldur en
hitt unga fólkið, sem ekki vill vera í ung-
mennafélagi.
En athugandi er, hvort það sé rétt af
ungmennafélögunum að styðja að dýra-
verndun. Mér finst það geti heyrt undir
stefnuskrá þeirra. Við ungmennafélagar
höfum lofað að styðja að heill og vernd
fósturjarðar okkar, og finst mér við gera
það vel, ef við styðjum að dýraverndun.
En áður en ungmennafélögin taka það fyr-
ir að styðja að dýraverndun, verða þau að