Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.11.1916, Qupperneq 1

Skinfaxi - 01.11.1916, Qupperneq 1
11. BLAÐ REYKJAVÍK, NÓVEMBER 1916. VII. ÁR. Jarðvegurinn. Þegar lílið er yfir uppdrátlinn af land- inu, og athugað, hvar unghlennafélögin Imfa fe-d rætur og dafnað vel, |)á sést glögglega, að jarðvegurinn er mjöcj mis- jafn. Sumstaðar eru stórar eyður, par sem ekkert ungmennafélag er eða hefir verið. Sumstaðar Imfa pau verið stofnuð, blómgvastskammastund, en eru nú að deyja rít. Og að síðustu eru margar bygðir, þar sem félagsskapurinn er kominn í fastar skorður, og virðist liklegur til að eflast enn meir eftir því sem stundir líða. Á þessum stöðum er jarðvegurinn bestur. Það munu að öllu samtöldu vera þeir blettir, þar sem menning alþýðunnar er lengst á veg komin. Þau héruð á landinu, þar sem aldrei hafa verið nein ungmennafélög, þurfa þó engan veginn að vera lokuð eða mót- hverf þessari breyfingu. Það getur verið af því að hún hafi ekki enn náð lil þeirra. Það ætti að minsta kosti ekki að fullyrða neitt um þær bygðir, fyr en gerð hefir verið tilraun til að vekja æskulýðinn af dvala. I þessum flokki eru sumir „út- kjálkar11 landsins. En það þurfa samt alls ekki að vera andlegir útkjálkar. I mörgum þvíh'kum bygðum er mikill bók- lestur og heimilismenning. En fólkið hefir ekki komið sér fyrir með að vinna saman. Um þessi héruð þyrfti að senda áhuga- sama fyrirlestrarmenn til að láta æskuna vita um ungmennafélögin og skýra lög þeirra. Stórum ver er farið þeim héruðum, þar sem félögin hafa verið, en visnað og dáið. Þar er áreiðanlega um að kenna kulda og andlegri fátækt. Þessi lýsing á við sögn ungmennafélaganna í sumum kauptúnun- um, sjóþorpunum og sveitunum þar sem gróðahyggja síðustu ára hefir hellekið fólk- ið, svo að það þykist ekki hafa tíma til annars en að afla fjár eða taka þátt í skemtunum, sem eru við hæfi hugsjóna- lausra fjárhyggjumanna. Þar eyðir fólkið tómstundunum helst til mikið í „Bíó“ (ef til er), við peningaspil, víndrykkju eða reyfaralestur. Þar er orðtakið: Miklir pen- ingar og fljóttekin félagsgleði. í þessu umhverfi getur enginn heilbrigður félags- skapur þrifist. Jarðvegurinn er honum jafn óhollur eins og fúamýri er harðvellis- gróðri. Og breytingin, ef hún á að koma, verður að koma smátt og smátt, á löng- um tíma, og vera að þakka margháttaðri umbótastarfsemi. Einkennilegt er að at- huga samræmið milli eldra oð yngra fólks í þessum „dauðu bleltum11. Öll félags- menning, sem lýtur að samvinnu, er þar óþekt. Lundarfari fólksins svo háttað, að það hugsar ekki um nema sjálft sig og líðandi stund, i allra þrengstu merkingu. Hlutverk ungmennafélaganna er að leita að lífvænu héruðunum, þar sem fólkið er hæft til að vinna saman og vill taka hönd- um saman, Á þessum stöðum öllum þurfa að vera fólög vakaudi og starfandi. Fé- lögin verða aftur að taka höndum saman og starfa í landssambandinu. Hér dugar engin hreppapólitík, Allir sem mátlinn

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.