Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.05.1917, Side 8

Skinfaxi - 01.05.1917, Side 8
40 SKINFAXI Fjórðungsstjórn næsta árs var kosin: Fjórðungsstjóri Erlingur Eriðjónsson, Ak. —ritari Árni Jóhannsson, — — „— féhirðir Jóhannes Jónasson, — Bókafregn. Guðm. Finnbogason: Vinnan. Guðmundur Finnbogason hefir marga einkennilega kosti til að vera rithöfundur, Hann kann allra manna besl að fara með smellnar líkingar og tilvitnanir, og hann kann óvenjulega vel að velja bókum sínum heiti: Síðasta bókin heitir „Vinnan“. Ekk- ert nafn er látlausara eða Ijósara. Þetta eru allmargir fyrirlestrar, sem höf. liélt síðastliðinn vetur um vinnuvísindin svo- nefndu. Frágangur allur er vandaður, efnið nýstárlegt og þó gamalkunnugt, bún- ingurinn auðveldur og einfaldur. Hver sem les bókina með athygli veitir sjálfum sér ánægjustund og er víðsýnni maður. eftir. Efni hennar verður ékki rakið hér, en bent á eitt atriði, sem allir menn í land- inu verða að vita. Það er þreytulögmál- ið. Gamla lagið var það að gera daginn sem lengstan, og hvíldarstundirnar sem stystar. Klukkunni stundum ílýtt á morgn- anna og seinkað á kvöldin. Því er nú löngu hætt, en andinn lifir enn, á þann hátt, að fjölmargir menn spilla heilsu sinni, stylta æfina, og minka árangur iðju sinn- ar með heimskulegri vinnu og ónógum hvíldum. I þessari bók geta menn kynt sér úrslit síðustu rannsókna um þetta mál. Vinnuvísindindin hafa verið hædd og smánuð af fjölmörgum mönnum, ekki síst af sumum þeim, sem halda sig vera vitra. Smátt og smátt mun þetta breytast. Hleypidómarnir hjaðna niður og verða að engu, en vinnuvísindin tekin í þjónustu SKINFÁXI. Mánaðarrit U. M. F. í. Verð: 2 krónur. Ritsljóri: Jónas Jónsson, Skólavörðuslíg 35. Sími 418. Afgreiðslumaður: Egill Ghittormsson. Skólavörðustig 8. þjóðarinnar bæði við líkamlega og and- lega vinnu. Mörgum þykir það sjálfsagt ótrúlegt, en alt bendir þó i þá átt, að uppeldismál og vinnubrögð hér á landi komist hvorugt í viðunanlegt horf, fyr en þau eru bygð á „hagnýtri sálarfræði“. Rannsókniraf þessu tægi ætlar G. F. að gera að æfistarfi sínu. Byrjunin hefir verið erfið, eins og eðlilegt var, þar sem um jafn mikla nýjung var að ræða. En ötrauður brautryðjandi skeytir því engu, og þá er siguriun viss. Eftir fáein ár mun öll þjóðin verða þakk- lát þeim manni, sem flutti vinnuvísindin inn í landið. Félagsmál. Utanfarir. Allmargir ungmennafélagar eru nú er- lendis við nám og á ferðalagi. T. d. Axel Thorsteinsson, Ásgeir Ásgeirsson guðfræðingur og Bjarni Ásgeirsson í Knararnesi. Hafa þeir allir verið i Dan- mörku, Svíþjóð og Noregi síðan í sumar og haust. Pappírinn. Skinfaxi varð fyrir því happi að ná í pappír frá Noregi með Flóru síðast, næg- an til næstu missiranna. Ritstóri: Jónas Jónsson frá Hriflu. Félagsprentsmidjan

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.