Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1921, Page 4

Skinfaxi - 01.11.1921, Page 4
SKINFAXI 36 þess að halda þér ungum í anda í lífs- starfi þínu! Þá mun ylur hjartans og æskuhugsjónir þínar fylgja þér alla æfi. Það er gott föruneyti og fagurt! Molar. „Heimleiðis“. Enn þá er talsvert óselt af ljóðabálki þeim sem St. G. St. gaf U. M. F. I., og hefir varla selst Svo mikið að hægt sé að draga þá ályktun, að U. M. F. hafi þótt vænt um gjöfina. Bókin kost- ar 1. kr. óbundin, útsölumenn fá rífleg sölulaun. íþróttaskólinn. Eitt af mestu áhuga- málum U. M. F. nú er íþróttaskólamálið. Víðsvegar að berast mér bréf um þetta þjóðþrifamál og er það gleðilegt tákn þess að U. M. F. séu vel vakandi og sístarf- andi fyrir þetta mál og mörg önnur lífs- nauðsynjamál hinnar íslensku þjóðar. Eg get ekki stilt mig um að tilfæra kafla úr bréfi frá einu U. M. F. þessu viðvíkjandi í algerðu leyfisleysi samt: . . . Að undanförnu hefir lítið sést ritað um mál þetta (íþróttaskólamálið) hvorki á sviði ungmennafélagsmálanna né utan þeirra, og hræðir það ef til vill margan sú ytri deyfð. Þrátt fyrir það vona eg að öll ungmennafélög og margir einstaklingar hafi þá þegar fest svo huga við þetta málefni að unnið hafi verið margt og marg- víslegt í kyrþey að undirbúningi þess og framkvæmd — jarðvegurinn brotinn og bættur í meðvitund þjóðarinnar, til frjórrar uppskeru, einhuga vilja og samtaka, er leiði málefnið til sigurs. Mér virðist þó nauðsyn bera til, að þjóðin fengi yfirleitt meira að sjá og heyra ritað og rætt mál- inu viðvíkjandi, því sjaldan er of góðum samtökum fyrir að fara, enda þótt margt málið liggi ljósara fyrir en viðbúið er að þetta geri enn sem komið er. Gagnorðir og íþróttafróðir menn ættu að láta til sín heyra í ritgerðum og fyrirlestrum, er örfi áhuga og samtök á sviði íþróttamálanna. — — Það verður að vera kappsmál vort, hinnar uppvaxandi kynslóðar Islands, og þeirra er oss vilja liðsinni ljá, að sigra örðugleikana á vegi þessa mikilsvarða máls. Líklegt er að margir hugsi og spyrji: Nær sjáum vér árangur af starfi þjóðar- innar á sviði íþróttanna? Væri þá fjarri sanni að svara: Ekki fyr en vér höfum færi á að teiga æskumjöð íþróttanna úr íslenskri uppsprettulind þeirra — íslensk- um íþróttaskóla!« . . Þessi stutti bréfkafii er að eins lítið sýnishorn af því hvað áhugi margra virð- ist vera einlægur og einbeittur fyrir þessu máli. Það hefir verið sagt um U. M. F. að þau hafi alloft mörg járn í eldinum, en stórhuga og framgjarnir æskumenn spyrja ekki um hvað öðrum sýnist um það, þeir sjá þörfina fyrir að þessum þjóð- þrifamálum sem U. M. F. beita sér fyrir, sé hrynt í tramkvæmd, og eg trúi því að starfsþrek hinnar ungu kynslóðar Islands sé svo mikið, að ekkert járnið brenni. Fyrirlestrar. Ef til vill ferðast Helgi Valtýsson eitthvað um Vestur- og Norður- land í vetur. Mun hann þá að einhverju leyti verða á vegum sambandsstjórnar, flytja fyrirlestra hjá þeim U. M. F. sem hann nær til. Væri því gott að heyra eitt- hvað um það frá U. M. F. hvort þau vilja ekki ná til hans, því vís væri hann þá að leggja lykkju á leið sína ef þess yrði óskað, en annars ferðast hann aðallega fyrir »Andvöku , og æskilegt væri fyrir sambandsstjórn að vita um vilja félaganna, áður en Helgi leggur af stað héðan. Skinfaxi. Alt sem viðkemur afgreiðslu og innheimtu blaðsins á að senda beint til Magnúsar Stefánssonar, Pósthólf 516. En það sem viðvíkur ritstjórn blaösins, til Helga Valtýssonar, Pósthólf 533. Mlinið að greiða Skinfaxa nú þegar. Gjalddagi var 1. júlí.____________M. S. Prentsmiðjan Acta — 1921.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.