Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.08.1924, Qupperneq 8

Skinfaxi - 01.08.1924, Qupperneq 8
64 SKINFAXI í fossum og fallvötnum landsins, er nægja til þess að reka stórfeldan iðn- að, og bæta og auka framlciðslu alla og verslun. Áhugi manna er vaknaður til þess að hagnýta orku, sem þeir þektu ekki til skams tíma, og víst er það, að auður og hverskonar framfarir munu aukast, þegar farið verður að nota raf- magn til iðnaðar hér á landi. Ástandið nú. pað er ekki glæsilegt að litast um í þjóðfélagi voru nú. Víða blasa við rústir fyrirtækja, sem eru að hrynja saman, eða eru hrunin. Geigur hefir gripið alla, sem fást við fi’am- leiðslu, og mesta bölið, atvinnuleysið, liggur eins og mara yfir þjóðlífinu. Breyting er óumflýjanleg. Gömlu fram- leiðslutækin við sjóinn, árabátar og handfæraskip, gefa ekki lengur viðun- andi lífsuppeldi, hvorki þeim, sem vinna að aflanum á landi, eða á skipunum sjálfum. Auk þess liafa þau skip lagt ol' þungan skatt á þjóðina með manna- láti. Mun það hvergi finnast, að svo margir drukni eða láti lífið við ann- an atvinnurekstur, að tiltölu við fólks- fjölda. petta er hin mesta ógæfa og kemur korku í þjóðina yfirleitt. Flest- ir mennirnir, sem fai’ast, eru ungir og efnilegir. peir láta oftast eftir sig ung hörn, sem svo verða handbendi vina og vandamanna, og liggja oft sem þung byrði á þeim, sem ekki eru færir um að sjá fyrir sér sjálfir. Verða þar af leiðandi vanrækl í æsku, og síðar ekki eins starfhæfir menn og þau hefðu orð- ið undir umsjón foreldi’a sinna. petta er auðvitað engin algild regla, en hætt við að þarna liggi ein rótin til hnignun- ar þjóðfélagsins. Stærri skipin, togarar og vel útbúnir, stórir vélbátar, cru miklu tryggari og eflirsóknarvcrðari. Fyrst og fremst er lífið sjálft miklu tryggara þar, og svo verða tekjurnar af vinnu mannanna ineiri. þ>ó er afli stærri skipanna ekki eins vel nýttur og verða má. Má þar benda á fiskúrgang, sem mokað er í sjóinn af togurunum af þvi að þekkingu vantar og tæki, til að búa til ýmsar vörur úr honum, svo sem áhurð, lím, beinvörur, fituvörur o. fl. pá er einnig athugavert, hversu lítil stund er lögð á lúðuveiði, sem þó er mikið af hér við land, og hve lítið er gert til, að gera þann afla verðmætan. Nú borga efnaðir útlendingar 3—4 kr. fyrir kiló af lúðu, en liér fæst ekki meira en 30—100 aurar fyrir kílóið, og ekki nálægt hærri tölunni nema þar, sem hægt er að selja nýtt í bæjunum. Mestöll lúða, sem veiðist kringum land alt, verður ekki meira virði en 30 aura kg., og er það 10 sinnum minna, en hægl er að fá á erlendum mai’ktxði. Skipulagsleysi og samtakaleysi veldur því, að ekki er mögulegt að ná hæi’ra verðinu, nema fyi’ir það eitt, er togar- ar veiða og flytja út. Framh. Fréttir. íþróttamót. Héraðssambandið „Skarphéðinn“ hélt íþróttamót við pjórsárhrú 28. júní sl. Sigurður Grei]xsson, glímukonungur íslands, setti mótið. Er lxann formaður Héraðssambansins „Skarphéðinn“. Gat hann þess, að helmingur af ágóðanum af mótinu rynni til héraðsskóla Suður- lands. Guðmundur Björnson landlæknir og Helgi Valtýsson forstjóri, fluttu i’æður. Lviði’asveit frá Reykjavik lék „Ó, guð vors Iands“. íþróttamenn keptu um verðlaun fyr- ir lilaup, stökk og glímur. Bæði fullorðnir menn og unglingar tóku þátt i iþróttunum. , Nokkuð ó annað þúsund manns var á mótinu. FJELAQSPRENTSMIÐJAN

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.