Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1924, Blaðsíða 1

Skinfaxi - 01.10.1924, Blaðsíða 1
10. BLAÐ REYKJAVÍK, OKT. 1924. XV. ÁB, Breyting við næstu áramót. Á Sambandsþingi U. M. F. í., sem haldið var síðastliðið vor, var samþykt að breyta mánaðarritinu Skinfaxa i árs- fjórðungsrit. Arkatala á ári skal vera bin sama og verið hefir siðastliðin ár. ílverju félagi innan Sambands U. M. F. I. er skylt að kaupa jafnmörg ein- tök af ritinu og félagar eru margir i ársbyrjun, enda hefir ritið enga aðra útsöiumenn en ungmennafélögin, á þeim stöðum, sem Sambandsfélög eru starfandi. Verð ritsins skal vera kr. 1,50 til félagsmanna, en til utanfélags- manna verður það hið sama og verið hefir. Breyting þessi á útgáfu ritsins, verður gerð um næstu áramót. Ætlast cr til, að béraðsstjórnir sendi nafn eins manns i bverju félagi til ritstjóra Skin- faxa fyrir febrúarmánaðarlok næst- komandi; skal senda ritið til bins til- greinda manns bvers félags, annasthann um útsending Skinfaxa og sér um að andvirði hans verði greitt skilvíslega á félagssvæði sínu. Umboðsmenn rits- ins greiða það til héraðsstjórna sinna, og þær sjá um að gjöld þessi verði send skilvíslega, annaðhvort til gjaldkera Sambands U. M. F. 1. eða ritstjóra Skin- faxa. Skinfaxi hefir nú verið gefinn út sem mánaðarrit í 15 ár, og má fullyrða að hann hefir verið fjöregg ungmennafé- laganna framar öllu öðru. Enginn fé- lagsskapur og því siður menningar- starfsemi, sem varðar alla þjóðina, get- ur átt sjer stað, nema þvi aðeins, að hin einstöku félög og félagar kynnist þeim hugsjónum og áhugamálum, sem sam- verkamenn þeirra og aðrir menningar- frömuðir eiga. J?að er kjörorð ung- mennafélaga, að vinna fyrir alþjóðar uppeldi. pau eiga að safna frækornum, fögrum og þroskavænlegum, og gróð- ursetja þau í andans akri íslendinga. Til þess að vinna þetta mikla verlc, þurfa þau að afla sér bæði erlendrar og inn- lendrar reynslu. J?au þurfa útlend álirif, holl og styrkjandi, læra af þeim, sem best kunna, og færastir eru í hverri grein. J?eim þarf að vaxa svo fiskur um brygg, að þau geti sent framgjarna og gáfaða unglinga, konur og karla, um heimsins frægustu mentalönd; þar á þetla fólk að vinna og vaxa, flytja svo feng sinn lieim, og bræða hann sam- an við það merkasta, sem íslenska þjóð- in átli á gullaldardögunum, og merk- ustu Islendingar hinna siðustu alda liafa unnið að og dreymt um. J?essi erlendu áhrif eiga að verða gróðrardögg i ís- lcnsku þjóðlifi. Sú gróðrardögg á að blandast alíslenskum uppsprettum, sem geyma frjómagn þroskaðrar reynslu. pessum uppsprettum á að veita út um landið svo nákvæmlega, að enginn blett- ur verði útundan.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.