Skinfaxi - 01.10.1924, Blaðsíða 4
76
SKINF AXI
legt, að þær geta tekið þátt í fleiri leikj-
um en dansi. Og þar við bætist, að
knattspyrna hefir þvi aðeins gildi, að
skipulega og rétt sé æft, en á því hefir
viljað verða misbrestur hér i Reykja-
vík og er hætt við að svo verði víðar,
en við það getur leikurinn orðið bæði
ruddalegur og ósiðlegur, og ært upp
sumt af því, sem verst er til í mann-
legu eðli. pessvegna eru það margir
leikir fremur, sem ungmennafélögin
ættu að leggja sig eftir. Leikir sem eru
miklu betur við þeirra hæfi, — þurfa
færri þátttakendur og piltar og slúlk-
ur geta leikið jöfnum liöndum.
En af því að leikir eru svo lítið þekt-
ir hér og fáir kunna, hefi eg lofað „Skin-
faxa“ að skrifa upp nokkra leiki lianda
honum til að birta. En eg skal taka það
fram, að það er mjög örðugt að skrifa
svo um leiki að hægt sé að læra þá til
hlítar eftir því. En eg vil ráðleggja þeim
ungmennafélögum, er halda íþrótta-
námsskeið, að tryggja sér að kennar-
inn kunni eitthvað dálítið af leikjum,
því án þeirra verða námsskeiðin altaf
dauf og fjörlaus. Framh.
Valdemar Sveinbjörnsson.
Þórður Hafliðason.
(Minning um látinn félaga).
pórður Hafliðason að Neðri-Bakka í
Langadal við Isafjörð lést að heimili
sínu hinn 19. ágústmánaðar s.l. Var
hann ekki þrítugur að aldri. Hlýðir að
hans sé ekki ógetið í Skinfaxa, þvi að
hann var ungmennafélagi sannur og
dugandi, svo að leit verður að öðrum
slílcum. Hann var formaður ungmenna-
fél. Huld á Langadalsströnd tvö til þrjú
árin síðustu og reyndist félagi sínu hinn
ötulasti og ótrauðasti maður til allra
framkvæmda, enda hefir félagið á þess-
um árum unrfangsmikil og erfið verk-
efni mcð höndum (svo sem heimaiðju,
námsskeið eitt eða fleiri á ári hverju,
starfrækslu sundlaugarinnar í Reykja-
nesi o. fl.). — Að vísu hefir félag þetta
haft ýmsum öðrum góðum félögum á að
slcipa, en pórður sál mun þó nú á sið-
ari árum hafa haft alla forgönguna
mest á höndum meðan hans naut við.
Eg hafði nokkuð mikil kynni af J?órði
heitnum fyrir starfsemi hans i ung-
mennafélagsskapnum, bæði heima i fé-
lagi hans, svo og fyrir samveru á fjórð-
ungs- og héraðsþingum hér vestra, sem
hann lét sig sjaldnast vanta til þrátt
fyrir löng og erfið ferðalög.
Minnist eg hans jafnan fyrir fram-
úrskarandi áhuga, óeigingjarna fórn-
fýsi og atorku að vinna þeim málstað
hvervetna til heilla og umbóta.
Auk starfseminnar í U. M. F. Huld
og annars á vegum ungmennafélags-
skaparins var J>órður heitinn og hinn
nýtasti maður til allra starfa og lík-
legur til enn meiri uppbyggingar fyrir
bygðarlag sitt, hefði honum orðið
Iengra lífs auðið. — Styður þetta þá
viðeigandi skoðun, að góðir ungmenna-
félagar verði jafnan vænni menn og
nýtari í hvivetna. J?að er að vísu sárt
og raun mikil, — einkum fyrir þá sem
nákomnir eru — að sjá á bak svo nýt-
um dreng og góðum á unga aldri. En
það er líka mikil bót að geyma svo
góða minningu sem hans, og að í mörgu
getur hann verið öðrum fyrirmynd.
Eg vil ekki lengja þessi orð frekar,
því að J>órði sál. ætla eg betur lýst en
eg fæ gert í eftirmælum þeim, er hér
fylgja, og einn góður félagi hans hefir
rétlilega um hann kveðið.
Guðm. frá Mosdal.