Skinfaxi - 01.10.1924, Page 8
80
SKINFAXI
liggur gegnum vinnuna. J?að þaif bæði
lirauslan líkama, dómgreind, vit og
sálarþrek, til þess að vinna vel, og þetta
alt þarf að vera sameinað í einum
manni. þar, sem gnægð er góðra liðs-
manna, vantar aklrei foringja, er leiðir
fram til sigurs, þó við örðugleika sé að
etja.
Hvaða framtíð á þetta land? pví verð-
ur að eins svarað með annari spurningu,
þeirri: Ilvernig verður uppeldi barna og
unglinga á yfirslandandi og komandi
árum? Einlæg alúð lögð við uppeldi
æskumanna hjálpar til að ná fótfestu,
en þar þurfa allir að vera samtaka. —
Ilcimilin verðá að skila frá sér nýtum
og vel hugsandi mannaefnum, sem skól-
arnir síðan fræði um, hvernig barátt-
unni verði best hagað, og bæði heimili
o-g skólar vinni að því, að þroska góða
og fagra siði, og kenni að skilja skyld-
ur þær, sem hver einstakur, í hverri
stétt eða stöðu, hefir gagnvart öðrum
mönnum. — Sjálfsbjargarhvöt og at-
orka verða að vera einkenni næstu kyn-
slóðar.
F r é it i r,
Lestrarfélag.
Eitt af elstu lestrarfélögum, sem til
er hér á landi, mun vera lestrarfélag
Tungusveitar í Strandasýslu, stofnað
1840 af Guðmundi Bárðarsyni frá Bæ.
Siðustu árin hefir Ungmennafélag
Tungusveitar lagt mikla rækt við bóka-
safn sitt og aukið það stórum. — Er
það lofsvert, þegar ungmennafélög láta
sér ant um fornar og þjóðnýtar menjar,
hvort sem eru bókasöfn eða annað.
Gjöf
Aðalsteinn Sigmundsson skólastj. á
Eyrarbakka dvaldi í sumar um 6 vikna
tíma í þrastaskógi. Vann hann að því
að grisja skóginn, laga girðingar og
gætti þess að ferðamenn skemdu ekki
gróðurinn með þvi að rifa og brenna
eins og átt hefir sér stað undanfarin
sumur. Beynslan hefir sýnt að ekki
verður Iijá því komist að skógvörður
dvelji í þrastaskógi 2—3 mánuði á
sumri hverju, enda er svo mikill áhugi
vaknaður fyrir þessu máli, að ýms ung-
mennafélög hafa lýst því yfir, að þau
myndu styðja umbætur í þrastaskógi
með framlögum. Ungmennafélag Mið-
nesinga hefir riðið á vaðið og gefið 100
kr. til skógarins. Skinfaxi þakkar Mið-
nesingum þessa rausnarlegu gjöf.
íþróttanámsskeið.
Hér í Reykjavík verður haldið íþrótta-
námsskeið frá 1. nóv. n. k. til 1. apríl
1025.
Námsgreinir verða þessar: Fimleik-
ar, sund, glímur, hlaup, stökk, knalt-
leikar, heilsufræði og Mullersæfingar.
Kenslan verður bæði verkleg og
munnleg, sérstök áhersla lögð á að
gera nemendur hæfa til að kenna.
Kenslugjald er 100 kr. fyrir allan tím-
ann..
Hr. Jón porsteinsson frá Ilofsstöðum
v: itir námskeiðinu forstöðu og verður
aðalkennari þess. — Jón liefir haldið
íþróttaskóla hér í bænum s.l. ár, hefir
mikið orð og gott farið af skóla hans,
þvi munu efnilegir iþróttamenn hafa
mikið gagn af að kynnast honum og
njóta kenslu hans. Liklegt er að nám-
skeið þetta verði vel sótt, þvi að lengi
liefir iþrótta- og ungmennafélög skort
íþróttakennara, en nú gefst kostur á að
bæta úr því.
nggp Munið að afgreiðsla Skin-
faxa er í Bergstaðastræti 51. —
Skrifið þangað.
FjnLXGSPRENTSMIÐJAN