Skinfaxi - 01.11.1924, Qupperneq 1
Sfc\xv$ax\
11 12. BLAÐ REYKJAVÍK, KÓV.-DES. 1924. XV. ÁR
Ávarp
til ungmennafélaga íslands.
Velurinn er þegar genginn í garð.
Starfstími ungmennafélaganna byrjar
ineð komu hans. pegar sumarannirn-
ar e.'U úti vaknar félagslífið eins og
af drala. Hugirnir leita að verkefnum,
ekki síður ungmennanna en þeirra full-
orðru. Allir þurfa að hafa eitthvað að
staría, og innan vébanda ungmennafé-
laganna liggur slarfssvið æskunnar, sem
á ótemandi uppsprettur hugsjóna, vilja,
þor og þrek.
I ngmennafélögin eru orðin alhnörg
hérá landi, og þó ýms þeirra séu enn-
þá ítan samhandsins, munu þau þó öll
staífa í líkum anda. Efalaust liefir það
saraa vakað fyrir öllum, sem starfað
liafa að stofnun þeirra og uiinið hafa
innan þeirra veggja. Allir munu þeir
hala hugsað sjer l'élagið sitt líkt og
uppeldisstofnun fyrir æskulýð lands
þe>sa. Fyrir öllum þeim hefir það vak-
að að ungmennin, sem i félögunum
varu, ættu kost á að þroska og efla
sUrfskrafta sína á allan þann hátt, sem
iniðar að þvi að ala upp heilbrigða,
dJgandi og rétt hugsandi þjóð.
Öll þau ungmennafélög, sem eru inn-
ao Sambands Ungmennafélaga íslands
lafa, eins og kunnugt er, í lögum sín-
uin þessi eftirfarandi sameiginlegu
ákvæði:
1. Að þau hyggja starf sitt á kristi-
legum grundvelli.
2. Stefnuskrá ungmennafélaganna á
þessa leið:
Að reyna af alefli að vekja löngun
hjá æskulýð iil þess að vinna að frelsi,
framförum og heill sjálfra sín og ann-
ara með mannúð og réttsýni.
Að temja sér að beita starfskröftum
sínum innan félags og utan.
Að reyna af fremsta megni að styðja,
vernda og efla alt það, sem þjóðlegt er
og liorfir hinni íslensku þjóð til gagns
og sóma. Sérstaklega skal leggja stund
á að lireinsa og fegra móðurmálið.
3. Skuldbinding, sem allir félagar
skrifa undir, um að neyta engra á-
fengra di’ykkja, né valda þess vísvit-
andi, að öðrum séu þeir veittir.
Að vinna af alhuga að heill félags-
skaparins, framförum sjálfra sín, and-
lega og hkamlega, og að velferð og sóma
þjóðarinnar í öllu sem þjóðlegt cr, gott
og gagnlegt.
4. Allir félagar innan sambandsins,
skulu þúast.
pcssi sameiginlegu meginatriði sýna
ljóslega, hvað vakað hefir fyrir þeim
mönnum, sem ruddu ungmennafélags-
skapnum braut hér á landi, c>£ fáir
munu þeir, sem halda því frám, að
þessar stefnur séu rangar eða lítils-
verðar.