Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1953, Blaðsíða 2

Skinfaxi - 01.11.1953, Blaðsíða 2
SK.INFAXI H.f. Eimskipafélag fslands AÐALFUNDUR hlutafélagsins Eimskipafélags íslands verður haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík laugardaghm 12. júní 1954 og hefst kl. 1,30 e.h. DAGSKRÁ: 1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfirstand- andi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. des- ember 1953 og efnahagsreikning með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skipt- ingu ársarðsins. 3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins í stað þeirra sem úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins. 4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess, er frá fer, og eins varaendurskoðanda. 5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að verða borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöf- um og umboðsmönnum hluthafa í skrifstofu félagsins í Reykjavík dagana 8.—10. júní næstkomandi. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn í aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir, að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins í hendur til skrásetningar, ef unnt er 10 dögum fyrir fundinn, þ. e. eigi síðar en 2. júní 1954. Reykjavík, 22. desember 1953. STJÓRNIN.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.