Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1955, Blaðsíða 1

Skinfaxi - 01.11.1955, Blaðsíða 1
SKINFAXI r-------------------------------------------------n H.F. EIMSKIPAFÉLAG ISLANDS AÐ ALFU l\l DU R Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélag íslands verður haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykja- vík, laugardaginn 9. júní 1956 og hefst kl. 1,30. e.h. DAGSKRÁ: 1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og fram- kvæmdum á liðnu starfsári, og frá starfstilhögun- inni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða rekst- ursreikninga til 31. desember 1955 og efnahags- reikninga með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinn um skipt- ingu ársarðsins. 3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra, sem úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins. 4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins varaendurskoðanda. 5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins. 6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að vera borin. Þeir einir geta sótt fundin, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 5.—7. júní næstkomandi. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu komin skrif- stofu félagsins í hendur til skrásetningar, ef unnt er 10 dögum fyrir fundinn, þ. e. eigi síðar en 30. maí 1956. Reykjavík, 28. desember 1955. Stjórnin.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.