Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.07.1960, Síða 3

Skinfaxi - 01.07.1960, Síða 3
Tímarit U.M.F.Í. ☆ ☆ ☆ 3. hefti 1960 S • Útgefandi: Sambandsstjórn Ungmennafélags Islands. Reykjavík. Afgreiðsla: Edduhúsinu, Reykjavík, efstu hæð. Ritst jóri: Guðm. Gíslason Hagalín. Pósthólf 1342. Simi 50166. I Félagsprentsmiðjan h.f. EFTIRBÁTAR AIMINIARRA Að dependera af þeim dönsku. Sveinn Sölvason lögmaður var um flest mætur maður og mjög velviljaður, en illa var það tekið upp fyrir honum, þegar hann taldi rétt, að við hættum að rækja málvöndun og lielzt tækjum upp danska tungu — eða eins og liann kallaði það: dependeruðum af þeim dönsku. En livað sem leið lmeykslun ágætra íslendinga út af þessum orðum lögmannsins, höfuin við löngum tekið margt upp eftir Dönum og á seinni árum Ameríkumönnum — og því miður sjaldan það, sem bezt er með þess- um þjóðum. Það skortir t. d. ekkert á, að kvenfólkið okkar vilji tolla í alþjóðlegri tízku um alls konar snyrtingu. Við, sem húum í hæjunum eða í grennd við þá, þurfum ekki að kippa okkur upp við það, þó að við sjáum þrítuga frú i næsta húsi við okkur koma út rauðhærða í dag, þó að hún hafi i að minnsta kosti fimm sein- ustu árin, sem við munum liana, verið jörp á liár eða skolhærð, og tvítug stúlka, sem við höfum séð daglega og ekki virzt hera nein lirörnunarmerki, er allt í einu orðin gráhærð i dag — eða að minnsta kosti komin með stóran gráan lepp í hár- ið! Og engan þyrfti að undra, þótt hann sæi einhverjar fegurðar- og tízkudísir komnar mcð hring í miðnesið einhvern daginn — því að nú er meira rætt um hlökkumenn í hlöðum og útvarpi en nokkru sinni áður. Þá er það og alkunna, að m jög erum við montnir, ef okkur eða einhverjum af okkar mönnum er liælt er- lendis, en hins vegar hregðumst við gjarn- an reiðir við, ef að okkur er fundið. Bandaríkjamenn og Danir. Margt er það, sem við getum gott lærl

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.