Skinfaxi - 01.12.1969, Page 11
Ytri aðstæður
og iuuri eitíng starísins
Rœtt viS GuSmud Snorrason, formann UMFN
GuSmundur Snorrason er núverandi formaSur
Ungmennafélags NjarSvikur.
Tók hann viS forystunni af Ólafi Sigurjónssyni í fyrra,
en hafSi óSur veriS í stjórn félagsins um órabil.
— Hvað er helzt á döfinni í félaginu um
þessar mundir, Guðmundur?
— Við leggjum áherzlu á innanhúss-
íþróttirnar, handknattleik og körfu-
knattleik og knattspyrnumennirnir
hafa einnig inniæfingar. Við sendum
lið til keppni í meistarafl. og 2. fl.
kvenna á íslandsmótið í vetur. Ólafur
Thordarsen er aðalhandknattleiksþjálf-
ari okkar, en hann var á þjálfaranám-
skeiði í Danmörku í sumar. I körfu-
knattleiknum höfum við fengið góðan
liðsauka, þar sem fKF gekk í Ung-
mennafélagið í einu lagi í sumar, og við
stofnuðum körfuknattleiksdeild í félag-
inu. Það verður þvi lið Ungmennafélags
Njarðvíkur, sem keppir í 1. deild í
körfuknattleik í vetur.
— Er félaginu skipt í íþróttadeildir?
— Já, við höfum deildir í knatt-
utan flugvallarins, en ault þess er í
smíðum hér nýtt íþróttahús, stórt og
vandað, ásamt sundlaug og verður á-
reiðanlega rik þörf fyrir það líka, þegar
það tekur til starfa.
— Hafið þið alltaf haft samvinnu við
Kvenfélagið hér?
— Já, félögin eru einskonar félagsleg
systkini, stofnuð nær samtímis í ungu
sveitarfélagi. Þau hafa vaxið upp saman
og samvinna þeirra hefur oft tryggt
tvöfalt átak. Samvinnan við hrepps-
félagið hefur einnig alltaf verið mjög
góð og hreppurinn styrkt starfsemi
oklcar með ráðum og dáð og rausnar-
legum fjárframlögum.
— Að lokum spyrjum við Ólaf hvern-
ig það hafi verið gerlegt að koma upp
öllum þessum mannvirkjum, hinu veg-
lega félagsheimili, íþróttahúsi og í-
þróttavöllum ásamt fleiru í þessu litla
hreppsfélagi.
— Ölafur svarar af sinni alkunnu
hógværð: — Ætli það sé ekki vegna
þess að við höfum gripið tækifærin á
réttum tíma og notað þau.
SKINFAXI
11