Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.06.1982, Qupperneq 3

Skinfaxi - 01.06.1982, Qupperneq 3
SKINFAXI 3. tbl. — 73. árg. — 1982 ÁSKRIFTARVERÐ: 100 kr .árgangurinn. ÚTGEFANDI: Ungmennafélag íslatids. RITSTJÓRI: Ingólfur A. Steindórsson. RITNEFND: Jón G. Guðbjörnsson, llergur Torfason, Oluðjón Ingimundarson. AFGREIÐSLA SKINFÁXA: Skrifstofa UMFÍ Mjölnisholti 14, Reykjavík. Sími 14317. SETNING OG UMBROT: Leturval sf, Ártnúla 36. OFFSETPRENTUN: Prentval, Súðarvogi 7. MEÐAL EFNIS: Fréttiraf þingum ............ 4 Góngudagur fjölskyldunnar ... 6 Kveðja frá Umf. Dreng...... 7 Eflum íslenskt.............. 8 Hjólað umhverfis landið í máli og myndum ........ 11 Framkvæmdastjóranámskeið UMFÍ .................... 28 Glaesiför til Danmerkur.... 30 FORSÍÐUMYNDIN: Meginefni blaðsins erfrásögn í máli og nvpndum af hjólreiðaferðinni hringinn í kringum landið, setn farin var undir kjörorðinu ,,Eflutn íslenskt”. Forsíðu- nyndin er af ungum hjólreiðamannifrá HSH á fullri ferð í þágu íslenskrar framleiðslu. Afmælisverkefni UMFÍ Pann 11. júlí s. 1. lauk hjólreiðaferð umhveríis landið undir kjörorð- inu „Eflum íslenskt. Þá höfðu verið hjólaðir um 3. 200 km. á 17 dögum.Rúmlega 3 þús. hjóluðu á þeim þrem hjólum sem fóru allan hringinn, auk fjölmargra sem hjóluðu styttri vegalengdir og mikils fjölda sem tók þátt með því að mæta á hreppa og sýslumörk og fagna hjólreiðafólkinu. Um 3 þús. manns tóku á móti hjólreiðamönnunum á Lækjartorgi þar sem ferðinni lauk. Pað má ætla að 12-15 þús. hafl á einhvern hátt tekið þátt í þessu afmælisverkefni UMFI. Mér er nú efst í huga þakklæti til alls þess fólks sem sýndi málinu áhuga. Hvar sem við komum á leiðinni voru móttökur frábærlega góðar. Ahugi fyrir verkefninu leyndi sér ekki. Framkvæmd og skipu- lagning var undantekningalítið til mikillar fyrirmyndar. Ég vil þakka þeim fjölmörgu er studdu okkur til þessa verkefnis. Ég vil þakka Félagi ísl. iðnrekenda fyrir ánægjulega samvinnu og aðstoð, sömuleiðis Iðn- aðarráðuneytinu, Iðnrekstrarsjóði og Sambandi ísl. samvinnufélaga, en þessir aðilar studdu okkur með verulegu fjármagni. Auk þess lögðu ýmsir aðrir fram lægri upphæðir. Fálkinn h/f gaf hjól til ferðarinnar, íslenska framleiðslu sem stóðu sig mjög vel. Þetta afmælisverkelni UMFI var gert til þess að vekja athygli á nauðsyn þess að velja íslenska framleiðslu fremur en þá innfluttu, þar sem því verður við komið. Hver einstakur hlutur er liður í þeirri keðju að tryggja fjölda fólks atvinnu. Þetta er ekki eingöngu spurning um atvinnutækifæri heldur jafnframt um efnahag og sjálfstæði. Þessari baráttu sem ungmennafélagar hafa hrundið af stað má ekki ljúka. Hún er heldur ekki einkamál ungmennafélaga þetta er mál allra landsmanna. Fjölmenn félaga og launþegasamtök eiga að láta sig slíka hluti varða. Við ungmennafélagar verðum að halda þessari baráttu áfram. Við eigum allir að standa undir kjörorðinu „Eflum íslenskt" velja íslensku vöruna, hvetja aðra til að gera slíkt hið sama. Þetta afmælisverkefni er afsprengi þeirrar þjóðræknishugsjónar sem ungmennafélagshreyflngin er sprottin af. Flokkspólitík og at- kvæðasmölun ráða ekki gerðum okkar, aðeins sú von að við séum að vinna landinu gagn. Hér á árum áður ortu þjóðskáldin ættjarðarljóð sem flestir kunnu. Ekki var þó landið þeim öllum mjög gjöfult, en þeir trúðu á framtíð þess og sjálfstæði. Ungmennafélögin eru uppeldisstofnun margs ungs fólks, þar þarf að leggja höfuðáherslu á heiðarleika, drengskap og trú á land og þjóð. Verkefnin eru mörg, fegrun landsins og bætt umgengni eru sígild baráttumál. Þeim góða byr sem verkefhið „Eflum íslenskt“ hefur fengið þarf að fylgja eftir, því hvet ég alla ungmennafélaga og alla aðra íslendinga til að taka höndum saman og velja íslenskt þar sem því er við komið. Eflum íslenskt Islandi allt Pálmi Gíslason. k____________________________________________-__________y SKINFAXI 3

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.