Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1992, Síða 13

Skinfaxi - 01.02.1992, Síða 13
BADMINTON Þeir yngri taka mig ekki á úthaldinu Einn af upphafsmönnum bad- mintoníþróttarinnar í Borgarnesi er Albert Þorkelsson. Hann spilar enn, að verða sjötíu ára gamall. Albert er Siglfirðingur og byrjaði að skíða snemma og með þeim byrjaði í- þróttabakterían að virka. En í Borgar- nesi gat hann ekki stundað skíðin, en það varð ekki til þess að aftra honum frá því að stunda íþróttir. Hann byrjaði að kenna unglingunum badminton í Borg- arnesi um 1970. „Ég er bakari og hafði lítið að gera á kvöldin svo ég fór í þetta, svona tvisvar til þrisvar í viku. Badminton er mjög góð íþrótt og ég ætla að halda áfram eins lengi og ég get. Ég spila líka golf og hef gert það síðastliðin tuttugu ár.” Forvarnarstarf Uppbygging íþróttamannvirkja hjá bæjar- og sveitarfélögum er misjafnlega á veg komin. Borg- arnesbær er eitt þeirra bæjarfé- laga sem hefur lagt mikla á- herslu á að geta veitt bæjarbú- um og nærliggjandi sveitarfé- lögum sem flest og fjölbreyttust tækifæri til þess að stunda í- þróttir. Indriði Jósafatsson er í- þrótta- og æskulýðsfulltrúi í Borgarnesi. Hann var inntur eftir framgangi bæjaryfirvalda varð- andi íþrótta- og æskulýðsstarf og fréttum af undirbúningi vegna 22. Landsmóts UMFÍ i Borgarnesi 1997. Hvert er mikilvœgi íþrótta í uppeldi unglinga og hver er stefna Borgarnes- bœjar í íþrótta- og œskulýðsmdlum á komandi árum? „Það hlýtur að vera stefna allra bæj- ar- og sveitarfélaga að styðja vel við bakið á íþrótta- og æskufólki. Með því er verið að vinna forvarnarstarf gegn þeim freistingum sem annars bíða barna og unglinga á götum úti. Það ætti að vera betra fyrir foreldra að vita fyrir víst að barnið þeirra er í skipulögðu íþrótta- eða félagsstarfi og þá geta veita foreldr- ar vitað fyrir víst hvar barnið er og hvað það hefur fyrir stafni. Hvaða íþróttagrein finnst þér henta eldrafólki best? „Það fer eiginlega eftir því á hverju það byrjar, ég held að það sé best að halda áfram að stunda þá grein sem fólk kann best tökin á. Það er vont að byrja að stunda einhverja grein mjög seint á aldursskeiðinu, en það er um að gera að halda áfram eftir að maður er byrjaður.” Finnst þér eldra fólk orðið fróðara um nauðsyn hreyfingar? „Það er ekki efamál. Hér í Borgar- nesi eru flestir þeir eldri í golfinu. Ég er sá elsti í bandmintoni og þeir yngri mega hafa sig alla við til að hafa við mér,” segir Albert og er brosir breitt. „Það ættu allir að byrja að stunda einhverjar íþróttagreinar, byrja bara ró- Ég lít þannig á að næstuni allir sem eru í íþróttum stundi þær af félagslegri þörf, en ekkert endilega að þeir ætli sér að verða landsliðsmenn með beinan keppnisárangur í huga. Eflaust blundar hann þó í okkur öllum. Því er mikilvægt fyrir bæjarfélögin að hjálpa þeim félög- um á viðkomandi stað sem sjá um starf- semi sem þessa. Skapa þeim góða að- stöðu til þess að böm og unglingar velji helst íþróttir og félagsstörf frekar en eitthvað annað. Segja rná að sú aðstaða sem boðið er upp á hér í Borgarnesi sé mjög góð mið- að við stærð bæjarins en miðað við þá aukningu sem orðið hefur í íþróttum hér í bæ á síðustu árum er aðstaðan að verða of lítil. Staðreyndin er sú að um helrn- ingur bæjarbúa sækir skipulagða þjálfun lega og halda svo áfrant. Þetta er gaman, manni líður vel og ég fullyrði að ég hefði ekki þetta úthald sem ég hef ef ég væri ekki í þessari hreyfingu. Það er al- veg ábyggilegt að þessir yngri taka mig ekki á úthaldi,” sagði Albert að lokum og hafði engan tíma til þess að spjalla meira því þeir yngri biðu eftir að fá hann í slaginn. og æfingar á vegunt íþróttamiðstöðvar- innar eða ungmennafélagsins amk. tvisvar í víku og suntir alla daga vikunn- ar og þá er skólaleikfimi ekki meðtalinn. Með tilkomu félagsmiðstöðvar fyrir unglinga sern tekin var í notkun fyrir tveim árum stórlagaðist félagslíf ung- linga í Borgarnesi,” sagði Indriði. Ungmennasamband Borgarfjarðar hyggst halda 22. Landsmót UMFÍ í Borgarnesi 1997, er undirbúningur haf- inn? „Eins og málin standa í dag, þá eru bæjaryfirvöld að kanna kostnað við að halda landsmótið í samráði við stjóm UMSB . Ég lít svo á að þau mannvirki sem þarf að byggja upp vegna landsmótsins sem slíks komi hvort sem er upp í Borg- arnesi á næstu árum hvort sern lands- mótið verður haldið hér eða ekki. Auðvitað ntyndi landsmótið flýta fyr- ir framkvæmdum á þessu sviði og að- staðan kæmi fyrr en ella. Ég álít hins vegar að landsmótið sjálft sé orðið allt of viðamikið og of margar greinar tekn- ar fyrir á því. Þetta veldur því að smærri sveitarfé- lög hrís hugur við þeim miklu mann- virkjum sem byggja þarf upp á stuttum tíma í stað þess að reyna að miða grein- ar við þá aðstöðu sem hver staður hefur upp á að bjóða, sagði Indriði. og Landsmót í Borgarnesi 1997 Skinfaxi 13

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.