Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 25

Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 25
FRJÁLSÍÞRÓTTAANNÁLL UMFí Þorsteinn R. Þórsson Frjálsíþróttaannáll UMFÍ1991 Inngangur Það hefur verið árviss atburður að birta frjálsíþróttaannál í Skin- faxa. Því miður féll þessi góði siður niður á síðasta ári vegna þess að afrekaskráin lá ekki fyr- ir. Nú verður hins vegar gerð bragarbót á þvi og birt afreka- skrá fyrir bæði árin í einu. Þannig verður allur samanburð- ur á árangri milli ára auðveldari en áður. Það er augljóst að ár- angurinn hefur dottið nokkuð niður milli ára en við því mátti e.t.v. búast þar sem 1990 var landsmótsár. Þetta er þó nokkuð misjafnt eftir greinum og eins virðist körlunum hafa farið meira aftur en konunum. Sumir okkar eldri afreks- manna sem verið hafa í fremstu víglinu í fjölda ára virðast eitt- hvað vera að gefa eftir og bilið í ungu arftakana er oft á tíðum full mikið. Engu að síður virðist vera töluverður vaxtarbroddur meðal þeirra yngri á nokkrum stöðum á landinu. Það verður að hlúa vel að þessu fólki og gefa því tækifæri svo hægt verði að hampa afreksmönnum í framtíð- inni. Spretthlaup Töluverð afturför varð á milli ára í öllum spretthlaupunum og var árangur- inn í 200 metrunum vægast sagt lélegur. Hörður var ekki í jafngóðu formi árið áður, Helgi óheppinn með meiðsli og veikindi og Jón Arnar var meiddur. O- lafur var framalega í öllunt vegalengd- uni en stóð þó að mestu leiti í stað milli ára. Árangur Friðriks Larsen í 400m var ljósi punklurinn og svo árangur ungu strákanna, Hauks og Atla í 100 metrun- um og sérstaklega þó sveinamet Ómars í 400m hlaupinu. Þar er mikið efni á ferð- inni og vonandi að hann einbeiti sér að frjálsum íþróttum í framtíðinni. Jón Arnar virðist vera að ná sér eftir erfið meiðsli og má búast við honurn sterkum í næsta sumar. Við skoðun á afrekaskrá FRÍ fyrir tvö undangengin ár er augljóst að brott- för félaganna Gunnars Gunnarssonar og Egils Eiðssonar úr UÍA hefur mikil áhrif á afrekaskrá ungmennafélaganna í spretthlaupum. Millivegalengdir Hér varð árangur nokkuð svipaður milli ára. Erlingur hefur átt í þrálátum meiðslum og var ekki með í sumar og munar mikið um það. Friðrik Larsen, sem stundað hefur æfingar í Bandaríkj- unurn, bætir sig hins vegar í 800 m, þó Friðrik Larsen sá árangur hafi ekki fengist staðfestur ennþá. Sigmar hefur dvalist í Svíþjóð undanfarið og virðist vera í mikilli sókn. fór undir 2 mínútur í 800 m og var mjög nálægt 4 mínútum í 1500nt. Gunnlaugur bætti sig einnig í báðurn greinunum. Gaman verður að fylgjast rneð ungu strákunum úr HSÞ, Sigurbjörn og Há- kon bættu sig báðir og settu ásamt fé- lögum sínum drengja- og unglingamet í 4x1500 metra hlaupi. Langhlaup Árangur hér var heldur slappari en árið áður og skiptir þar mestu að Már Hermannsson náði sér ekki á strik, hverju sem um var að kenna. Vonandi hristir hann af sér slenið og nær að upp- fylla þær vonir sem við hann hafa verið bundnar. Þetta var fyrsta árið sem Gunnlaugur bætti sig ekki í sínum aðal- greinum enda voru æfingar vetursins heldur risjóttar. Jón Stefáns og Sigmar bættu sig hins vegar verulega og spenn- andi að sjá hvort að framhald verði á því næsta sumar. Rögnvaldur var einnig sterkur en þetta eru þó einungis auka- greinar hjá honum, þar sem hann leggur aðaláherslu á skíðagönguna. Grindarhlaup Hjörtur var ekki jafn sterkur og árið áður og munar um minna. Aðalsteinn og Gísli kornu lílt við sögu og spuming hvort Elli kerlingin er eitthvað farin að hafa áhrif á þessa kappa. Of snemmt er samt að afskrifa þá, þeir hafa áður risið upp frá dauðum. Auðunn bætir sig ekki og segja má að eini Ijósi punkturinn sé sá að Ólafur bætti sig í stuttu grindinni og var raunar óheppinn að bæta sig ekki meira. Það er ekki hægt að segja að framtíðin sé björt í grindarhlaupunum, það er enginn ungur og upprennandi sem einbeitir sér að þessum greinum, þó búast megi við Ólafi og Jóni Amari sterkum í stuttu grindinni næsta sumar. Boðhlaup Árangur í boðhlaupunum hrakar á milli ára og endurspeglar þannig þróun- ina í spretthlaupunum. Athygli vakti þó drengja- og unglingamet hjá HSÞ-strák- unum í 4x1500 metra hlaupi. Hástökk Hástökkið var mjög slappt og hlýtur að vera langt síðan enginn hefur stokkið yfir 2 metra. Gunnlaugi tókst ekki að lifa á fornri frægð og Unnar var ekki jafn sterkur og oftast áður. Breiddin var þó sæmileg í þessari grein og framtíðin verður að teljast nokkuð björt. Sigtrygg- ur ætlar að vísu að einbeita sér að þrístökkinu en þar á eftir koma Róbert Jensson (1,85 ‘75), Magnús Hallgríms- son (1,85 ‘76) og Skarphéðinn Ingason (l,80m ‘77). Allt eru þetta bráðefnilegir Skinfaxi 25

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.