Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 28

Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 28
FRJÁLSÍÞRÓTTAANNÁLL U M F í Langstökk Árangur í langstökkinu er svipaður milli ára og einkennist aðallega ai' með- almenskunni. Eins og hjá körlunum virðist þetta vera aukagrein hjá flestum af þeim bestu og vantae að einhver taki þessa grein alvarlega. Nokkrar ungar stúlkur náðu athyglisverðum árangri en reynslan sýnir að þær stoppa yfirleitt allar á milli 5 og 5,50 m. Kúluvarp Iris Grönfeldt var langsterkust í kúlu- varpinu þótt það sé einungis aukagrein hjá henni og hún hafi örugglega ætlað Halldórci Jónasdóttir sér meira. Hún er nú okkar langsterkasti kastari og var hún valin í landsliðið í öllum kastgreinunum og hlýtur það að vera einsdæmi á íslandi og jafnvel þó víðar væri leitað. Guðbjörg Gylfadóttir var önnur í kúluvarpinu þrátt fyrir að hafa lítið æft. Hún hefur hins vegar æft vel í Bandaríkjunum í vetur og líkleg til afreka næsta sumar. Halldóra Jónasdótt- ir bætti telpnametið innanhúss og virðist ætla að feta í fótspor þjálfara síns hvað fjölhæfnina snertir. Kringlukast I kringlukastinu dettur árangurinn niður milli ára og er í raun enginn sem sinnir þessari grein af einhverri alvöru. Guðrún er ennþá sterkust þrátt fyrir að hafa lítið æft síðustu ár og síðan kemur íris sem leggur litla áherslu á þessa grein. Ljósu hliðarnar eru þær að Svava bætir sig og Berglind virðist aftur vera að koma til. Breiddin er hins vegar sára- lítil og hlýtur það að vera áhyggjuefni. Spjótkast íris bætir sig milli ára og virðist vera alveg búin að ná sér eftir þrálát axlar- meiðsli. Hún nálgast nú íslandsmet sitt Iris Grönfeldt frá 1988 og verður spennandi að sjá hvort henni tekst að bæta það næsta sumar. Birgitta er alveg við bætingu en 50 metrarnir virðast ætla að reynast henni erfiðir. Framtíðin virðist vera nokkuð björt í þessari grein. Vigdís var nálælgt meyjametinu og Halldóra bætti telpnametið nokkrum sinnum og endaði á 39,42 metrum 28. desember! Sjöþraut Birgitta náði sæmilegum árangri þótt hún hafi verið töluvert frá íslandsmeti sínu frá 1985. Þuríður kom skammt á eftir og ekki ólíklegt að hún fari að ógna metinu jafnvel strax næsta sumar. Sunna og Kristín gætu ógnað meyjametinu næsta sumar og einnig væri gaman að sjá Ragnhildi Einarsdóttur reyna við þessa grein. Spurning er hvort Berglind Bjarnadóttir fer að sinna þessari grein aftur af fullum krafti. Niðurlag Ég hef nú farið á hálfgerðu hunda- vaði yfir þróun árangurs í frjálsum í- þróttum á síðasta ári. Niðurstaðan er sú að lítt hefur miðað fram á við og oftast afturábak. En það þýðir ekki að láta deigan síga og það er trú mín að á næsta ári verði samanburðurinn hagstæðari. Samkvæmt nýjustu fréttum hafa verið höggvin nokkur skörð í raðir ungmenna- félaganna. Pétur Guðmundsson hefur gengið til liðs við KR inga, en í staðinn hefur Andrés bróðir hans gengið aftur til liðs við HSK. Hjörtur Gíslason er farinn í FH og Sigurbjörn Aðalbjörnsson í ÍR. Ég vil leggja ríka áherslu á að fram- tíðin er í unga fólkinu. Það þarf að hlúa vel að því í framtíðinni, veita þeim við- unandi aðstöðu til æfinga og gefa þeim tækifæri til að reyna sig í keppni. Að lokum vil ég hvetja alla ungmennafé- laga til að setja markið hátt og stefna ó- trauðir hælra, hraðar og lengra á kom- andi árum. Iþrótta- og ungmennafélög athugið. Flytjum stóra sem smáa hópa hvert á land sem er. Hringið og leytið upplýsinga. Öryggi og þjónusta alla leið! HOPFERÐAMIÐSTOÐIN V BILDSHÖFÐA 2a - 112 REYKJAVIK SIMAR: 91-685055 / 91 -682625 / 91-681345 - FAX: 91-674969 f > > l 28 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.