Skinfaxi - 01.08.1996, Blaðsíða 25
Okkur hefur liðið mjög vel li
- segir Viðar Þorkelsson fyrrum landsliðsmaður í kn
Það er frekar skrítinn ferill sem Viðar Þorkelsson, fyrrum
knattspyrnumaður, á að baki. Flestir muna eftir honum í
bláa Frambúningnum og kannski aðrir í bláa
landsliðsbúningnum. Viðar var einn efnilegasti
knattspyrnumaður landsins þegar hann allt í einu hætti og
fór til útlanda í nám. Flann sneri svo heim aftur, tók við
útibússtjórastarfi Landsbankans í Neskaupstað og lék um
skeið með Þrótturum í 2. deild en hefur nú lagt skóna á
hilluna. En hvenær hætti hann að spila?
„Ég hætti árið 1994 að spila en er frá þeim degi búinn að
vera í stjórninni hjá Þrótti."
Hvernig atvikaðist að þú komst hingað í Neskaupstað?
„Ég fór út í nám árið 1991 og spilaði þá minn síðasta leik
með Fram í 1. deildinni. Ég var í tvö ár í MBA-námi í
Bandaríkjunum og kom svo beint hingað og tók við sem
útibússtjóri Landsbankans. Ég fór þá að spila með
Þrótturunum þrátt fyrir að hafa verið algjörlega æfingarlaus
í tvö ár. Þeir voru þá í 2. deild og héldu sér uppi það ár en
féllu svo árið eftir og þá hætti ég að spila."
Var ekkert skrítið að flytja í svona lítið bæjarfélag eftir að
hafa alist upp í Reykjavík?
„Okkur hefur liðið rnjög vel öll þessi ár þrátt fyrir að þetta
hafi að sjálfsögðu verið mikil viðbrigði. Það tók tíma að
venjast og hérna er allt annar taktur en t.d. í Reykjavík en
það eru líka mjög
margir kostir við
það að búa úti á
landsbyggðinni -
það er engin
spurning."
Hvernig er
staðan hjá
Þrótturum í dag?
„Þetta er vaxandi
hérna og við erum
í dag með mjög þorl<elsson er i dag útibusstjóri
góða þjálfara bæði í Landsbankans f Neskaupstað,
yngri flokkunum og
í meistaraflokki. Öll
stjórnun hefur batnað mikið og liðið verður sterkara á næstu
árum."
Er aðstaðan góð hjá ykkur?
„Það er mjög erfið aðstaða hjá okkur og aðallega vegna
grasleysis. Við höfum einn keppnisvöll sem er um leið
æfingasvæði fyrir nánast alla flokka. Menn eru að skoða
möguleikana á að fá meira grassvæði og það má segja að
það sé verið að vinna að því." •
UIMFÍ
Skinfaxi
25