Skinfaxi - 01.02.1998, Page 27
Ungmennafélagar fremstir í flokki
Það ber mikið á ungmennafélögum í
íþróttaheiminum þessa stundina og engu
líkara en að allir afreksmenn okkar
fslendinga séu ungmennafélagar. Jón
Arnar Magnússon, Vala Flosadóttir
og Kristinn Björnsson eru þar fremst í
flokki en öll hafa þau skipað sér sess meðal
bestu íþróttamanna heims í sinni grein. Jón
Arnar hefur náð frábærum árangri á
erlendum mótum og þrátt fyrir að vera
tugþrautarmaður hefur hann sett íslandsmet
í nokkrum einstaklingsgreinum í frjálsum
íþróttum. Jón Arnar hefur líklega aldrei
verið í betra formi en í dag og er til alls
líklegur á árinu 1998.
Skíðamaðurinn frá Ólafsfirði, Kristinn
Björnsson, skaust upp á sjónarsviðið seint
á síðasta ári með því að tryggja sér annað
sætið á sterku skíðamóti. Kristinn hefur
síðan sýnt það og sannað að þarna var ekki
um neina heppni að ræða og greinilegt að
hann er orðinn einn albesti svigmaður
heims.
Efnilegasti hástökkvari landsins, Einar
Karl Hjartarson, var alinn upp hjá USAH.
Einar nálgast nú íslandsmetin í hástökki
innan- og utanhúss en hafa ber í huga að
strákurinn er aðeins 18 ára gamall en margir
hástökkvarar eru að „toppa" þegar þeir eru
um 26 ára gamlir. Það má því nánast bóka
að Einar Karl verði næsti íslandsmethafi í
hástökki karla.
Ungur og efnilegur Keflvíkingur, Haukur
Ingi Guönason, gerði fyrir stuttu atvinnu-
mannasamning við enska stórliðið Liverpool.
Það er ekki fyrir hvern sem er að komast að
hjá „fjölskylduklúbbi" eins og Liverpool og
greinilegt er að Haukur Ingi hefur heillað
Roy Evans og félaga upp úr skónum.
í handboltanum er gamla brýnið og nú
ungmennafélagi, Siguröur Sveinsson,
lang markahæstur f Nissan-deildinni. Þrátt
fyrir að vera farinn að nálgast fertugs-
aldurinn all svakalega fær ekkert stöðvað
þessa frábæru vinstri handarskyttu og við
erum stolt af að hafa hann í okkar röðum.
Ungmennafélagið Stjarnan situr sem
fastast á toppi 1. deildar kvenna í handbolta.
Góöur kjarni og umgjörð hefur skilað sér vel
f Garðabænum og hafa Stjörnustelpurnar
verið á toppnum undanfarin ár. Það virðist
vera fátt sem getur komið í veg fyrir að
Herdís, Ragnheiður og félagar fari alla
leið í vetur.
Vigfús Dan er án efa efnilegasti
kúluvarpari landsins. Þessi ungi sveinn
hefur slegið flest ef ekki öll þau met sem
hann hefur möguleika á að slá svo ungur að
aldri. Vigfús var valinn íþróttamaður
Austurlands fyrir skömmu.
Keflvíkingurinn Eydís Konráösdóttir
hefur verið okkar fremsta sundkona
undanfarin ár og í fyrra bætti hún meðal
annars nokkur fslandsmet á Smáþjóða-
leikunum sem haldnir voru hér á landi.
Eydís endaði árið með því að vera valin
íþróttamaður Reykjanesbæjar.
Ungmennafélaginn, Eyjólfur Sverris-
son, hefur slegið rækilega í gegn f þýsku
knattspyrnunni og nýlega var hann valinn
einn af mikilvægustu leikmönnum þýsku
deildarinnar. Eyjólfur hefur leikið mjög vel
með íslenska landsliðinu og er í dag
lykilmaður í liðinu.
Það er ekki sanngjarnt að nefna neinn
einn körfuboltamann þar sem nánast allir
bestu körfuboltamenn landsins eru
ungmennafélagar og nægir þar að nefna;
Guöjón Skúlason, Teit Örlygsson,
Guómund Bragason og svona mætti
halda áfram.
Við óskum þessu frábæra íþróttafólki til
hamingju með árangurinn.