Mánudagsblaðið - 19.12.1967, Síða 4
4
Mánudagsblaðið
MHFvikuðagur 19. desember 1967
Kemur út á mánudögum. Verð kr. lfyOO 1 lausasölu. Askrifenda-
gjald kr. 325,00. Sími ritstjórnar: 13496 og 13975.
Ritstjón og ábyrgðarmaður: Agnar Bogason.
Auglýsingasími 13496. — Prentsmiðja Þjóðviljans.
Svikulgagnrýniibókmenntum
Nú er komið fast að jólum og nú hafa verzlanir flestar og
aðrir sem við kaupsýslu fást auglýst varning sinn um nokkurra
vikna skeið. Fylgir Island öðrum löndum hvað snertir aukið
fjör í viðskiptalifi um jólin og er slíkt að vonum.
Sú er þó ein stétt innan kaupsýslumanna, sem hefur algjöra
sérstöðu í viðskiptum um jólin, ef miðað er við flestar menn-
ingarþjóðir. Það eru bókaútgefendur, stéttin, sem sér þjóðinni
af áhuga og einbeitni fyrir andlegri fæðu. Vart munu dæmi
þess, að jafn fámenn þjóð og við ausum út hvilíku ógrynni
bóka, góðra og lakra, á jafn stuttum tíma og forlögin á íslandi
gera. Ekki er nema gott eitt um það að segja, ef slík viðskipti
reyndust arðvænleg og skapa ekki hið leiða ástand — magn
án gæða.
í þessu tilefni verður mönnum oft hugsað til bókagagnrýn-
enda dagblaðanna, sem á sinn hátt hafa talsverð áhrif á af-
stöðu almennings tii tiltekinna bóka. Því miður virðist það nú
vera, og hafa verið, úr hófi almennt, að bókagagnrýnendur hafi
svikið hlutverk sitt, einkum og sér þegar tili þeirra eru talin
ný skáld og gömul, sem rita um kollega sína og, að öllu jöfnu
vegna fámennis og „jólaskaps“ sneiða gjarna framhjá sann-
leikanum um hinar ýmsu bækur sem út koma. Skáldin okkar
hafa, því miður sum, sýnt einstaka „hroðvirkni“ er þeir dæma
vérk nýrra og gamalla höfunda og gildir þetta helzt um bækur,
þótt ekki sé sambærilegt frægt úr öðrum listgreinum nema þá
helzt málaralist.
Til þess hefur verið tekið undanfarna áratugi, að sumir gagn
rýnendur blaðanna „Iásu“ yfir 10—20 bækgr á viku og birtu
jafnmarga bókadóma og skipti engu máli hvort um skáldsögur,
fræðilegt efni eða bókmenntasögur var að ræða. Skáldin, sem
gagnrýndu, jusu út „dómum“ og, fyrstu árin, varaði alþýða
manna sig ekki á þessum fádæma vinnubrögðum. Vitanlega
var um heiðariegar undantekningar að ræða, en, því miður,
má telja fullvíst, að oft hafi önnur og annarlegri sjónarmið ráð-
ið. Frægust eru þau, er menn rituðu um gæði bóka til þess að
fá þær frítt eða voru þannig staddir að óhægt var að móðga
starfandi kollega.
Bókaforlögin sjálf eru síður en svo barnanna bezt og freist-
uðu oft gagnrýnenda á ýmsan hátt til þess að fá gott veður.
Hér er um að ræða furðulega og hættulega þróun, þróun, sem
er í senn forlögum og gagnrýnendum til vansæmdar. Það er
nú staðreynd, að það eru yngri gagnrýnendur sem bera af í
verki, bera af gömlum fauskum, sem komnir eru á ár velmekt-
Framhald á 8. síðu.
yANDLÁTIR VELJA
Nivada
MAGNÚS E. BALDVINSSON
Laugavegi 12 — Sími 22804.
Hafnárgötu 49 — Keflavík.
Inniskófatnaöur
fyrir kvenfólk, karlmenn og börn. — Mikið úrval.
SKÓBÚÐ , KJÖRGARÐUR SKÓVAL
AUSTURBÆJAR Skódeild Austurstræti 18
Laugavegi 100 Laugavegi 59 (Eymundssonarkjallara)
Drengjaskór
Stærðir 30 — 39
Telpuskór
Stærðir 27 — 39
Skóbúð Austurbæjar Kjörgarður
Laugavegi 100. Skódeild.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Dregið 23. desember. — Hringt strax í vinningsnúmer. — Glæsilegir vinningar.
1. Volvo-P 144-bifrerö.
2. SAAB-bifreift.
20 AUKAVINNINGAR:
Vörur eftir frjálsu vali, hver
að upphæð 10.000 krónur.
Frjáls sala á happdrættismiðum
er nú hafin.
AÐALUTSÖLUSTAÐIR ERU:
Reykjavík, í Innheimtudeild
Landssímans.
Hafnarfjörður. Bókabúð Olivers
Steins.
Akureyri, í bókabúðinni Huld.
Vestmannaeyjum, Skóverzlun
Axels Ó. Lárussonar.
Keflavík, að Faxabraut 1.
Grindavík, að Víkurbraut 35.
Auk þess verða miðarnir seldir
Fróðleg og
skemmtileg
bók
ÁR OG DAGAR. Upptök og
þróun alþýSusamtaka á ís-
landi 1875—1934. Gunnar M.
Magnúss tók saman. Heims-
kringla 1967.
Fyrir skömmu er komið út rit-
ið: Ár og dagar, fyrra bindi
./
verks, sem fjallar um upphaf og
þróun alþýðusamtaka á íslandi.
Gunnar M. Magnúss tók ritið sam
an, er það í fréttaformi með sama
sniði og Öldin okkar. Leitað er til
samtímafrásagna í flestum til-
vikum og þær settar upp í sam-
ræmi við almennt fréttamat og
með ríkulegu myndavali. Þar er
brugðið upp dæmum og myndum
af kjörum fólks og stríði, af at-
vinnuháttum og svo undirtektum
skálda og rithöfunda við baxáttu
alþýðu.
Bókin hefst 1875 og greinir þá
m.a. frá afleitu hlutskipti hjúa
og þurfamanna, — þar rekumst
við á Rósu Kristjánsdóttur, sem
er dæmd til tíu vandarhagga fyr
ir lausamennsku við Éyjafjarðar
pólitírétt. Þar er og merkilegt
plagg, sem nefnist bæn hjúa og
er tekin úr bænakveri Péturs
biskups og sýnir ágætlega vel
samspil kirkju og efnamanna. Þá
rekur hver atburðurinn annan úr
félagslífi og samtökum alþýðunn-
ar á landi voru síðastliðin níutíu
ár, frá árinu 1875. Þar greinir
einnig frá hinni atvinnulegu þró-
un, sem orðið hefur á tímabilinu.
í upphafsorðum ritsins segir m.
a.: Alþýðusamtökin eru gilidur
þáttur í lífi þjóðarinnar. Þeim er
ekkert óviðkomandi, sem til fram
fara og heilla stefnir í atvinnu-
málum, efnahagsmálum, sjálf-
stæðisbaráttunni og menningu
kynslóðanna. Þessi bók er ekki
einungis skemmtileg til lestrar.
Hún er mjög nytsöm að hafa við
höndina til þess að fletta upp um
menn og málefni á tímabiliinu.
Nýjar bækur
fró LEIFTRI
Guðmundur Jónsson:
Sonur kotbóndans
Énn er Guðmundur Jónsson á
ferðinni með nýja bók. Að þessu
sinni kallar hann bókina „Sonur
kotbóndans“. Guðmundur er glett
inn og fundvís á gamansöm nöfn
á bækur sínar. Má heimfæra nafn
ið upp á flesta íslendinga, því
flestir erum við af kotbændum
komnir. — Fyrri bækur Guð-
mundar hafa selzt allvel, og ekki
fer honum aftur. — Bókin kostar
kr. 161.25.
Ólöf Árnadóttir:
Skessan í Útey
Skessan í Útey er fallegt ævin-
týri, skreytt fjölda mynda eftir
Árna Gunnarsson. — Öllum börn
um þykir mikið koma til Staðar-
Boggu, af því að hún gefur sér
einstaka sinnum tíma til þess að
segja þeim sögur. — Og sagan,
sem hún segir þeim í þetta skipti
er af Skessunni í Útey. — Kostar
kr. 134.40.