Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1940, Blaðsíða 16
Sjálfs er höndin hollus
M.b. Richard I.S. 549, annar stœrsti bátufln1
sem smíðaður hefir uerið á íslandi
Þótt flest blöð séu nú þegar búin að birta
smíðalýsingu af m.b. Richard, telur „Víking-
ur“ sér skylt að geta hans einnig.
M.b. Richard er smíðaður á ísafirði á Skipa-
smíðastöð Marzelíusar Bernhardssonar, er sá
um smíði skipsins. Eigendur eru H.f. Björgvin
og framkvæmdarstjóri þess Björgvin Bjarnson,
er með þrautseigju hefir fylgt byggingu skips-
ins eftir frá byrjun.
Teikningu af skipinu gerði Eggert B. Lárus-
son, skipasmíðameistari, er hefir leyst það
prýðilega af hendi, enda var hann áður búinn
að sína hæfileika sína sem slíkur. — Skipið er
smíðað að mestu leyti úr eik, ca. 90—100 smál.
brúttó og ca. 40—50 smál. nettó (endanlegri
mælingu er ekki lokið). Kjöllengd er 79 fet,
breidd 17,9 fet og dýpt 9 fet.
Lestin er 32 fet á lengd og áætlað að hún
rúmi ca. 135—145 smál. af þungavöru og ca.
75—85 smál. af ísfiski. Olíugeymar skipsins
taka 10—11 smálestir, auk 2 smurolíugeyma
er rúma 4 tunnur. Gangvélar skipsins eru tvær.
Kelvin-Dieselvélar, hver 88—105 hestöfl og er
því Richard fyrsta skipið í íslenska flotanum
er hefir 2 gangskrúfur. Skipið er raflýst, en
sérstökKelvin-Dieselljósavél verður sett í skip-
ið á næstunni. Landssmiðjan hefir hafið smíði
á nýjum stýrisvélum með olíuþrýstingu og var
sú fyrsta sett í M.b. Richard.
Það er sýnilegt að lagt hefir verið mikið í
að gera vistarverur skipverja sem bezta. Há-
setaklefi er frammi í með 12 rekkjum, 2
klæðaskápum, 1 geymsluskáp og auk þess
geymslu í öllum bekkjum. Vistarverur yfir-
manna eru í yfirbyggingu úr stáli á aftur-
hluta skipsins. Aftast á stjórnpallinum er
kortaklefi og er þaðan gengið ofan í skip-
VÍKINGUR
16